Nú er komið að 5. síðasta leiknum á þessari mjög svo sérstöku leiktíð, og liðið sem heimsækir Brighton hefur verið gefið út:
Bekkur: Adrian, Fabinho, Milner, Mane, Minamino, Robertson, Origi, Jones, Elliott.
Stóru fréttirnar eru auðvitað að Neco Williams er að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir klúbbinn í deildinni, og núna í vinstri bakverði. Það væri svo frábært ef hann gæti tekið að sér að vera valkostur nr. 2 í bæði hægri og vinstri bak, og líkurnar á því að hann fái ansi margar mínútur á næstu leiktíð eru alltaf að aukast. Þetta er strákur sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið í lok október í fyrra, og magnað að sjá hversu hraður uppgangur hans hjá klúbbnum í raun og veru er.
Ég stilli þessu upp í hefðbundnu 4-3-3 á myndinni með Ox á vinstri kantinum, en það kæmi manni ekkert á óvart þó það verði prófaðar einhverjar fleiri uppstillingar, þess vegna svissað í miðjum leik.
Virgil van Dijk á afmæli í dag, og myndi örugglega þiggja 3 stig í afmælisgjöf.
KOMA SVO!!!
Er Klopp að setja Ox í sýningargluggann? Hann var átakanlega slappur í síðasta leik.
jafnvel verri í kvöld
Hann var hálflélegur karlgreyið. En auðvitað ekki í sinni bestu stöðu á vellinum. Kemur sjaldan mikið út úr honum á köntunum. Mikill munur á vinnusemi að sjá Mané vera kominn aftur í eigin vítateig að pressa og hirða boltann.
Vel gert hjá Keita og flott klárað hjá Salah
Hendo vá
Svakalega pressa okkar menn hátt. Mætti halda að þeir þyrftu að vinna leikinn 4-0!
Ánægður með ‘etta.
Vörnin búin að vera furðu óörugg í fyrri hálfleik. Vonandi að Robertson komi inn í seinni.
Salah frábær skalli
Mér fannst Keita vera með bestu mönnum Liverpool á meðan hann var inná. Veit á gott, vonandi.
Hi there, I found your site via Google while looking for a related topic, your site came up, it looks great. I have bookmarked it in my google bookmarks.