Þær sorgarfréttir voru að berast að fyrrum framkvæmdastjóri Liverpool, Gerard Houllier, lést í nótt á heimili sínu 73ja ári að aldri.
Houllier var ráðinn framkvæmdastjóri Liverpool FC sumarið 1998 og þá í tvíeyki með Roy Evans. Það samstarf náði aldrei flugi og á haustmánuðum það ár steig Evans frá verkinu og Houllier var einn stjórinn.
Á þeim 7 árum sem Houllier var við stjórnvölinn vann liðið sex titla, eftirminnilegast líklega veturinn 2000 – 2001 þegar bikarþrennan góða var í húsi og liðið tryggði sér sæti í Meistaradeildinni í fyrsta sinn.
Hann er líka maðurinn sem leiddi Steven Gerrard inn á sviðið og hafði mikil áhrif á Jamie nokkurn Carragher, báðir hafa mikið rætt um áhrif stjórans á sinn feril.
Við munum fara mun betur yfir feril hans hjá Liverpool í podcasti kvöldsins.
Minning hans mun lifa hjá aðdáendum LFC, fjölskyldunni eru sendar samúðarkveðjur frá kop.is – klaninu!
Hvíl í friði stjóri!
??????
Hvíl í friði Herra Houllier
Takk fyrir allt.
Hvíl í friði.
Blessuð sé minning þessa meistara.
Hlýjar minningar. Hvíl í friði kæri Houllier.
Hvíl í friði, meistari! Ótrúlega góður karakter og frábær stjóri ??