Diogo Jota var að framlengja með við Liverpool til næstu fimm ára, hans fyrri samningur var ekkert að renna sitt skeið heldur er þetta gott dæmi um Liverpool að verðlauna þá leikmenn sem standa sig vel, ljómandi gott mál. Hann er meiddur eins og er en verður ekki lengi frá skv. nýjustu fréttum af honum.
We are delighted to announce that @DiogoJota18 has signed a new long-term contract with the Reds ??
— Liverpool FC (@LFC) August 2, 2022
Frábærar fréttir. Nú þurfum við bara að fá hann í leikstand og inn í öflugustu framlínu sem hefur sést á vellinum síðan Raggi Bjarna, Ómar Ragnarsson og Laddi komu allir fram í sama þættinum hjá Hemma Gunn!
Mjög gott.
Frábær leikmaður.
Einn af mínum uppáhalds…
Frábærar fréttir ??