Gullkastið – Aftur upp á hestinn

Liverpool kom sterkt til baka eftir slæmt tap gegn Forest. Ansi magnaður leikur í Mílanó og síðan örugg þrjú stig á heimavelli ættu að vísa liðinu inn á rétta braut, í sveitinni var manni sagt að þegar maður dytti að baki þá bara strax aftur upp og af stað og það gekk eftir. Þessa dagana er málið að klára leiki og undirbúa sig fyrir þá næstu, framundan er að hefja titilvörnina í Carling cup gegn West Ham og svo ferðalag til Wolverhampton í deildinni, bæði lið sem hafa komið löskuð undan sumri en verða sannarlega ekki einfaldur biti að kyngja.

Einar og Steini fá frí að þessu sinni, fáum einn góðkunningja í þáttinn og öflugan nýliða með honum!

Stjórnandi: Maggi
Viðmælendur: Sveinn Waage og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

Ef fólk vill skoða upphitun á síðunni fyrir leikinn við West Ham á morgun er hana að finna hér á þessum hlekk.


Egils GullHúsasmiðjan / Verdi Travel Ögurverk ehf / Done

MP3: Þáttur 488

6 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Getur verið að það sé eitthvað rugl upload-i á þessum þáttum á podcastveitur? Það er sami þátturinn að koma í þriðja skiptið í röð, nýr titill en sami hljóðfællinn. Þetta er í lagi í spilaranum hér að ofan og á Spotify en í öðrum podcast forritum þá er ég að fá sama þáttinn aftur og aftur.

    2
      • Spurning að installa því aftur. Gæti verið komið upp eitthvað bögg. Sérstaklega ef þetta er að virka eðlilega hjá Hjalta.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Deildarbikar á morgun

Liðið gegn West Ham í deildarbikarnum