Liverpool lenti í ótrúlegu mótlæti gegn Fulham og tapaði á endanum ósanngjarnt tveimur stigum í leik þar sem stóru atvikin féllu svo sannarlega ekki með okkar mönnum, ekkert þeirra. Engu að síður sæmilegt stig m.v. að liðið var marki undir þegar Robertson var sendur í bað og því manni færri í 74.mínútur plús 16.mínútur í uppbótartíma. Samtals 90 mínútur og það voru svo sannarlega ekki 10 leikmenn Liverpool sem voru að reyna tefja og halda stiginu á lokamínútunum.
Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar.
Næstu verkefni eru stjóralausir Southampton menn í deildarbikarnum þar sem Slot mun klárlega nota hópinn töluvert því að um helgina bíður Tottenham úti, leikur liðanna á síðasta tímabili er í sögubókunum sem sá ósanngjarnasti ever í úrvalsdeildinni enda dómgæslan bókstaflega glæpsamleg. Vonandi er ekki annað fíaskó framundan svona strax í framhaldi af þessu bulli sem við horfuðum uppá gegn Fulham. Lágmark að þau mörk sem okkar menn skora telji allavega og aðeins jafnvægi í rauðu spjöldunum myndi einnig hjálpa!
Happatreyjur.is
Minnum áfram á Happatreyjur.is eru auðvitað jólagjöfin í ár, lesendur Kop.is geta notað afsláttakóðan KOP10
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
MP3: Þáttur 501
Sælir félagar
Takk fyrir þáttinn, alltaf gott að heyra í Liverpool stuðningsmönnum sem virðast vera þeir einu sem sjá hlutina í réttu ljósi 🙂
Það er nú þannig
YNWA
Sælir, ég get verið sammála því að meðan leikurinn spilaðist þá var maður ekki mikið að spá í rauða spjaldinu á Robertson. Eftir á að hyggja hins vegar þá var þetta svo langt því að vera “clear and obvious goal scoring opportunity”. Það var bara allt of mikið sem gat gerst, í fyrsta lagi hafði Wilson eiginlega enga stjórn á boltanum, boltinn var á leiðinni í áttina að VVD og Jimenez. VVD hefði líklega náð til hans fyrst ef ekki hefði verið fyrir Jimenez osfrv. Bara einfaldlega rangur dómur.
Þó sárt sé að segja það, þá er þetta bara nokkuð gott að ná 2 jafnteflum í 2 mjög erfiðum leikjum. Getum ekki ætlast til að vinnum alla leiki. Það kemur alltaf að smá lægð. En núna er hún búin!
Koma svo, YNWA.
Sælir bræður og takk fyrir gott uppgjör sem og góðan þátt.
Til þess að ræða aðeins fílinn í herberginu, maður að nafni Andy Robertson, þá verð ég að viðurkenna að mér hefur hann verið að slakna aðeins að undanförnu, sérstaklega undir lok síðasta tímabils en í leiknum nú á móti Fulham þá fær hann þessa skelfilegu tæklingu á sig í byrjun leiks, sem með réttu hefði átt að gera Fulham manni færri og við það er maðurinn bara off það sem eftir lifði frammistöðu hans í leiknum. Án efa hefur þetta stuðað hann og valdið einhverjum eymslum en að geta ekki brotið odd af oflæti sínu og flaggað því við Slot þannig að það sé þá gerð skipting skil ég ekki. Niðurstaðan varð þetta ömurlega mark sem hann er að þvælast fyrir þarna og svo stuttu síðar að vera sendur rakleitt beint í sturtu fyrir satt best að segja litlar sakir.
Hinsvegar þá var þessi frammistaða hjá liðinu svo framar öllum vonum að hálfa væri hellingur og samt ekki nógsamlega lofað hversu góðir þeir voru. Maður fann ekkert fyrir því að við værum einum færri og þessi tvö mörk sem við skorum voru svo yndislega flott. Við vorum mun líklegra að klára þennan leik undir lokin en því miður fór þetta svona og má vel við una, miðað við stöðuna að við næðum stigi.
Það að lið séu bara að ná einhverjum svona grísa-mörkum á okkur segir manni heilmikið líka um hversu þéttir við erum í vörninni en svo má nefna það að þetta skák-upplegg hjá Slot – að nota fyrri hálfleikinn svona eins og það sé verið að stilla upp og þreifa á andstæðingnum til þess að sjá hvar veikleikar hans eru er farið að verða svolítið þreytt. Ekki að það komi að sök, við náum alltaf að keyra yfir liðin í seinni hálfleik og oftast að klára þessa leiki. Það væri samt oft gott að geta afgreitt þetta í fyrri hálfleik því það þarf ekki alltaf að þreyta bráðina áður en reitt er til höggs – sum af þessum liðum eru ekki það burðug að þola okkur í hálfgírnum sem við erum of oft í.
Quansah þarf síðan að fá fleiri mínútur, það er deginum ljósara, svo að hann geti hrist þetta slen aðeins af sér. Minni ykkur á að þið voruð ekkert að spara lofsyrðin á hann í fyrra þegar hann átti hverja stjörnuframmistöðuna á fætur annarri – treysti því að hann byrji gegn Southampton og komi sér almennilega í gang.
Svo þurfum við að finna næsta gír á vegferðinni okkar. Það er farið að verða vel pirrað að missa svona mörg stig á meðan Chelsea nær að saxa þarna á okkur. Það eru engar líkur á því að Man€ity sé að finna sitt fræga run og grunar mann að menn þar á bæ viti í hvað stefnir með kærurnar sem eru á liðinu og að það sé meginástæðan fyrir því að það hriktir svona hressilega í stoðunum hjá olíuliðinu. Megi ógæfa þeirra vara sem lengst um ókomna framtíð.
Áfram að markinu – YNWA!
Næst veljum við hægri kantmann í Brostnar vonir – Ögurverksliðið. Endilega koma með tilnefningar 🙂
Le Tallec
St. Downing = Ekkert mark og engin stoðsending í PL á fyrsta tímabilinu (Andy nokkur Carroll fór víst illa með sumar sendingarnar). Alls 91 leikur, 7 mörk 9 stoðsendingar. Var svona Keita bragur á þessu. Biðum lengi eftir honum, gerðum ítrekuð tilboð áður en nógu há upphæð var sett á borðið. Spilaði reyndar á báðum köntum.
Lazar Markovic
Oussama Assaidi
Milan Jovanovic
Victor Moses
Fabio Borini
Takk fyrir flott Gullkast að venju!
Er Salah búinn að skrifa undir?
https://www.thisisanfield.com/2024/12/salah-has-already-signed-new-deal-says-aguero-latest-liverpool-fc-news/
Áfram KS ! Takk fyrir þáttinn drengir !