Á morgun mæta Liverpool á King Power völlinn til að spila gegn heimamönnum í Leicester. Tapi Leicester leiknum er ljóst að þeir spila í næst efstu deild á næsta ári á meðan að Liverpool gæti tryggt sér Englandsmeistaratitil með sigri á morgun en Arsenal tapar gegn Ipswich fyrr um daginn.
Leicester hafa verið heppnir að hafa Southamtpon í deildinni því það hefur dregið athygli frá því hvað þeir hafa verið ótrúlega slakir í ár, þá sérstaklega í markaskorun. Þeir skoruðu tvívegis í jafntefli gegn Brighton um síðustu helgi en þar áður hafði þeim ekki tekist að skora í átta leikjum í röð.
Hjá okkar mönnum er aðallega verið að bíða og sjá hvenær titillinn kemur í hús en nú með þrettán stiga forskot og sex leiki eftir eru meira að segja svartsýnustu menn orðnir vissir um að titillinn sé í okkar höndum.
Einnig eru samningamál kominn í betri farveg þar sem Van Dijk og Salah hafa krotað undir nýja samninga og aðeins Trent sem verður samningslaus í sumar og virðist ljóst að hann sé á förum. Hinsvegar er að styttast í endurkomu hjá Trent og gætum við jafnvel séð hann á bekknum á morgun.
Alisson
Bradley – Konate – Van Dijk – Robertson
Mac Allister – Gravenberch
Salah – Szoboszlai – Diaz
Jota
Giska á þetta byrjunarlið á morgun þar sem Robertson og Szoboszlai taka aftur sæti sín í byrjunarliðinu. Liðið hefur verið ansi fyrirsjáanlegt undanfarið og vonandi að það sé frekar vegna þess að nú er að litlu að keppa eftir að hafa dottið úr Meistaradeild og deildarbikar frekar en að hin liðin séu búinn að ná að lesa Slot.
Spá
Ætla að spá 5-0 sigri Liverpool þar sem liðið springur út gegn vonlausu liði Leicester. Salah setur þrennu og Diaz og Gakpo með sitt hvort í hvorum hálfleik.
Æ, hvað það væri nú gaman að vinna þá 0-5! Ættum jafnvel að hafa það 0-7 júnæted-jálkinum sem stýrir þeim bláu til heiðurs!
Hef aldrei fílað þetta Leicesterlið. Sé ekki á eftir þeim úr PL.
Rosalega væri gaman að spila vel einn leik í 90 mínútur og ná sannfærandi sigri á morgun. Ég er þó ekki búinn að sjá Liverpool vinna á morgun. Vona að þetta hafist og Ipswich nái í stig gegn Arsenal. Annars verð ég að taka undir með Gary Neville, Ronaldo Nazario og fleirum og fleirum sem hafa haft orð á því að Guardiolafótboltinn og róbótískur leikur sé kominn of víða. Halda bolta. Margar sendingar aftast. Leikmenn mjög taktískir og halda stöðum. Lítið um áhættur og flæðandi sóknarleik. Of margir leikir flatir, hægir og frekar leiðinlegir. Þetta á líka við um okkar lið, sérstaklega eftir áramót. Kannski eru stórliðin að spara orku út af glórulausu leikjaálagi sem verður þá ekki leyst nema með stærri og betri leikmannahópum. Svo er einn punktur. Markmenn mega hafa bolta í 8 sekúndur sem er framfaraskref fyrir boltann. Af hverju mega lið taka 30s plús í innköst og 60-90s í hornspyrnur?? Af hverju mega leikmenn hlaupa með boltann út að hornfána til að tefja?
Kraft og gleði, bið um það, við erum að verða meistarar. Njótum þess í botn. Lífið er núna.