Þvílíka snilldar tímabilið sem þetta er að verða, Liverpool eru Englandsmeistarar og lyfta bikarnum á loft um helgina á meðan lið eins og Arsenal, Man City og Man Utd fara öll titlalaus í gegnum mótið.
Leikmannaglugginn virðist heldur betur ætla að verða fjörugri í sumar en hann var síðasta sumar og mjög spennandi nöfn orðuð við Liverpool, jafnvel strax í næstu viku.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
MP3: Þáttur 522
Takk fyrir gott hlaðvarp.
Ég er Þórður þessa dagana eins og þið. Tengt því þá hlustaði ég á annað hlaðvarp í dag þar sem Pollýanna (einnig þekkt sem dr. Football) gladdist yfir Evrópuleysi sinna manna næsta vetur því þá myndi hann í staðinn alltaf sjá sína menn spila á laugardögum kl 15. Hann gleymdi að taka það með í reikninginn að aldrei þessu vant verður helmingurinn af andstæðingunum í Evrópukeppnum þ.a. rökin hans fyrir laugardagsleikjum kl 15 halda ekki vatni.
Það þarf ekki meira en þetta til að gleðja Þórðinn mig.
Man Utd eru að verða af gríðarlegum peningum sem áttu að fara í að kaupa leikmenn fyrir leikkerfið góða.
Auk þess er Man Utd skuldum vafið og eru alveg upp við þanþolsmörk FFP.
Þeir eru í aævarlegum vandræðum og þessi doktor hefur í langan tíma verið í afneitun gagnvart þessu lélega liði sem að óllum líkindum mun ekki spila í Evrópu næstu 2 árim.
Þetta eru æðislegir tímar… bara halla sér aftur og njóta
Það sem doc og hans meðvirka samfélag gleymir er að það skiptir engu máli hvort þú spilir kl 15:00 á Laugardegi eða í hádeginu á sunnudegi. Þegar þú tapar 90% leikjana.
En að þessu sem kopverjar ræddu varðandi
Dan Ashworth þá er það eitthvað galnasta sem hefur verið gert í PL lengi og þar sem podcostum á Íslandi er stjórnað 90% af utd mönnum þá er þessu sópað undir teppið.
Það átti heldur betur að taka til í sumar og ráða fólk í stöður sem hefði afburðarþekkingu á leiknum og menn borguðu td Dan Ashworth út frá Newcastle þetta var eitthver galin upphæð 12 mp heyrði maður. Svo byrjar sumarið og það fara detta inn kaup og þau flest svona áhættusækin sem gerist oft hjá liðum í þessari stöðu leikmenn sem hafa verið í basli og menn trúa að nái fyrri getu hjá sér.
En svo í fyrstu stóru ákvörðun félagsins þá segir sagan að þessi Dan Ashworth hafi hvorki viljað reka ten hag strax þar sem menn á raðgreiðslum komu inn í sumar á hans vegum og þetta væri ekki fullreynt svo taka snillingarnir sem eiga þetta félag fram fyrir hendurnar á þessum rándýra yfirmanni knattspyrnumála sem þeir biðu eftir í 1 ár og reka gæjan! Svo þegar átti að finna nýjan stjóra þá varaði Dan Ashworth við að félagið myndi ráða Rubin amorin þar sem hann teldi hann vera með allt aðrar áherslur en félagið væri búið að fjárfesta í og bara mögulega ekki með reynsluna og þekkinguna til að taka þetta skréf á þessum tímapunkti.
Hvað gera snillingarnir reka manninn sem átti að hafa þekkinguna og reynsluna í að byggja upp félag Dan Ashworth. Og halda áfram að gera bara eitthvað !!
Þvílíka veislan sem verið er að bjóða okkur liverpool mönnum uppá!
Manutd er að verða af 100mp! 17 milljörðum isk að hafa tapað í gær! Félagið skuldar 300mp bara í leikmenn sem þarf svo að losa í sumar! 51 milljarða isk! Ég er farinn að hugsa til þess að næsta Leeds ævintýri sé að fara hefjast !
En kl 15:00 á laugardögum strákar kl 15!
Dan Ashworth var einungis 5 mánuði í starfi hjá Man Utd. Ekki nóg með að það hafi verið dýrt að reka hann heldur borguðu þeir Newcastle talsvert fyrir að fá hann.
Hefðu væntanlega betur haldið honum, en þó verður að segjast að þessi kaup frá í sumar hafa öll sömul floppað.
Sumir vilja sumir meina að tapið í Euopa league hafi með öllu kostað þá 150mp og þá er gert ráð fyrir því að þeir falli strax úr meistaradeildinni.
Nú er staðan þannig að þeir verða að selja til að kaupa og einmitt treysta á að geta keypt með þægilegum afborgunum.
Nú á að segja upp 200 stm til viðbótar.
Man Utd skuldar jú billjón pund.
Verður þetta ekki þannig að þeir selja Bruno og Kobbie til að kaupa leikmenn sem passa inn í kerfi Amorim. Amorim verður svo rekinn í oktober og inn kemur stjóri sem fer aftur í 433 og þarf þá leikmenn sem henta fyrir það kerfi?
Hér kvarta menn yfir okkar eigendum sem vissulega eru ekki fullkomnir, en berið þá saman við Ratcliffe og Glazer familíuna.
Sælir félagar
Takk fyrir þáttinn kop-arar og góðaferð og skemmtun SSteinn. Ég er sammála öllum sem hafa haft notalega þórðargleð eftir sigur C.Palace og Spurs í vikunni. Það er öllum ljóst sem hlusta á þátt Hjörvars Hafliða að manjú gleraugu hans eru orðin ansi kámug og byrgja honum sýn. Afneitun hans á stöðu MU er hlægileg í besta falli en bróstumkennanleg annars. Hvað sem öðru líður þá finnst mér lítið að frétta af stöðu M.City og þeirra hundraðogfimmtánþúsund brotum. Mikið mundi það gera þórðargleðinni gott að fá skemmtilegar fréttir af þeim vettvangi. 🙂
Það er nú þannig
YNWA
Ég velti fyrir mér hvort að það hafi nokkurn tímann gerst í sögu ensku deildarinnar að á sama tímabilinu gerist það að það vinni fjögur likable lið sem auðvelt er að samgleðjast (allavega fyrir þann hlutlausa). Liverpool, Palace, Newcastle og Spurs. Allt félög með gríðarlega ástríðufulla stuðningsmenn sem hafa þurft að bíða lengi eftir að hafa náð takmörkum sínum. Kannski ekki langt síðan L’pool vann deildina en þá var ekki hægt að fagna saman. Klárlega eitt besta tímabil frá því að ég man eftir mér og ekki skemmir fyrir bullið í kringum sálarlausa ljósbláa Manchester liðið og hitt litla liðið úr sömu borg.
Svona ef maður leyfir sér aðeins að dreyma stilla upp drauma signings fyrir næsta tímabil
Fá inn Isak, Wirtz, Frimpong og Kerkez og Mamardasvili
Seljum
Nunez, Kelleher, Tsimikas, Endo, Elliot, Morton og Chiesa
það er hægt að fá fullt af peningum fyrir þessa leikmenn sem spila lítið sem ekkkert.
A- liðið
———————Isak———————
Gakpo———-Wirtz———–Salah
—-Gravenberch–MacAllister—-
Kerkez–Van Dijk–Konate–Frimpong
——————-Allison———————-
B- liðið
———————Jota———————
Diaz———-Szobozlai———–Doak
————Jones——-Bajcetic————–
Robbo–Quansah–Gomez–Bradley
——————-Mamardasvili———————-
Held við getum alveg gleymt því að kaupa Isak. Möööööögulega ef Newcastle ná ekki meistaradeildarsæti, en þá yrði hann samt alltaf 100+ millur.
Sælir bræður og takk fyrir góðan þátt.
Sjaldan hefur ein vika í fótbolta verið eins þægileg og skemmtileg og þessi – tek undir með ykkur, aldrei vekja mig! 🙂 Afhroð Manchester-liðanna í þessari viku er algert og Ange á kaldasta quote-ið í enska boltanum sem hann lét falla í fyrra: “Usually in my second season, I win things.” ManUtd-menn eru margir hverjir í algerri afneitun á meðan annaðhvert YouTube-video er að sýna þessa flokksgæðinga í algeru meltdown – versta frammistaða þeirra í langan tíma í ensku deildinni er staðreynd. Mögulega er þetta frávik þeirra í frammistöðu á Premier League-tímanum undir stjórn Sir Alex það sem er að valda þessu veseni hjá þeim – sögulega hefur ManUtd verið í besta falli meðal-lið þannig að það að þeim hafi tekist að fljúga svona nærri sólu hefur mögulega skaðbrennt þá fyrir lífstíð.
Ekki græt ég það svo sem 🙂
Hvað varðar leikmannamálin þá finnst mér eiginlega alveg ótrúlegt að sjá hversu fljótir menn eru að grípa til aðgerða við að ganga frá kaupum – maður hefur ekki séð þetta gerast í seinni tíð enda hafa menn á Anfield oftast beðið fram á sumarið með sínar tilkynningar… ef einhverjar tilkynningar voru til staðar á annað borð enda verið tiltölulega hljótt um að vera í leikmannaskiptunum hjá okkur. Eiginlega er ég enn gáttaður á því að þessi Wirtz-orðrómur sé enn svona sterkur, sérstaklega í ljósi þess hverjir það eru sem eru að bera þennan orðróm áfram. Það þarf ekki einu sinni að ræða það hversu stórt statement það væri ef Liverpool er af fullri alvöru að bítast um bestu bitana á markaðnum.
Ég er svolítið pirraður yfir því að við getum ekki klárað þetta blessaða tímabil okkar með smá sæmd. Við löndum enska titlinum og höfum ekki einu sinni unnið leik eftir það. Við vorum í kjörstöðu að senda Arsenal og Chelsea í smá niðurfalls-spíral en okkur tókst það ekki. Við vorum í kjörstöðu að klára deildina með mesta stigamun sigurvegara í ensku deildinni en okkur tókst það ekki. Við endum með færri stig heldur en Arsenal náði í fyrra og það landaði þeim öðru sætinu í deildinni þá.
Helst hefði ég viljað sjá Slot raða upp sínu besta liði en það virðist eitthvað fara í taugarnar á sumum, hvort sem það þarf að hvíla einhverja leikmenn í lok tímabils eða ekki? Tímabilinu er að verða lokið og næg hvíld framundan þannig að þau rökin falla um sjálft sig. Helst hefði ég viljað sjá TAA spila alla þessa leiki en það má víst ekki móðga einhverja millistjórnendur úr Breiðholtinu eða einhver lítilmenni sem finnst það bara eðlilegt að baula á leikmann Liverpool. Endemis fásinna sem er þess valdandi að tímabilið endar með þessari magalendingu. Það skiptir víst ekki öllu því við erum enskir meistararar – ManUtd er síðan eins langt frá því að geta nokkuð og munu líklegast enda í fjórða neðsta sæti í deildinni – það eitt og sér er alveg tilefni til þess að skála!
Áfram að markinu – YNWA!
Ég held að góður mórall og hvíld sé fókusinn og einmitt það sem mun skila góðu start í ágúst. Það er verið að fórna minni hagsmunum fyrir meiri held ég. Munið þið hvað allir voru gjööörsamlega búnir á því eftir “næstumþví tímabilið” með klopp. Eg vil frekar vinna deild svona og fá menn bara ferska og glaða inn aftur. Það er miklu meira cool að vinna 2-3 ár í röð en að eiga eitthvað stigamet.
Menn voru lika bara orðnir þreyttir og tæpir. Held að
Þeir beri bara meiri virðingu fyrir Slot og stjórnendum fyrir vikið
Það er mikill titringur núna í loftinu, ýmsir málsmetandi menn fullyrða að Wirtz hafi náð samningum við Liverpool. Þið sem eruð á kafi í samfélagsmiðlunum, hvað eru Ornstein og co. að tvíta?
Ornstein var einmitt að tvíta að Wirtz hallist meira að LFC, þ.e. ef hann vilji fara frá Bayer yfirhöfuð.
Í ljósi þess að þeir eru að spá í að ráða Ten Hag, þá myndi ég segja að líkurnar séu okkar megin á að Wirtz komi til Liverpool.
Þetta var að birtast á This is Anfield:
https://www.thisisanfield.com/2025/05/florian-wirtz-favours-liverpool-transfer-over-bayern-major-update-from-top-source/
In fact the player has already “visited the north west of England to look for houses to live in,” according to Ornstein.