Slúðrið: Er Wirtz í ALVÖRU að koma?

Það hefur heldur betur hitnað undir slúðrinu varðandi Florian Wirtz í dag, og ef eitthvað er að marka téð slúður, þá er kappinn búinn að samþykkja að ganga til liðs við Liverpool. Þá er Liverpool búið að hefja formlegt samningaferli við Bayer Leverkusen skv. Paul Joyce, og þegar hann er farinn að tvíta um hlutina, þá er það talsvert meira en bara slúður.

Wirtz á að hafa verið mun hrifnari af planinu sem Arne Slot lagði upp varðandi hans hlutverk í liðinu, eins er æfingaaðstaðan í Kirkby mun nýtískulegri heldur en sú hjá Bayern. Það skemmir líka ekki fyrir að Bayer var aldrei neitt sérstaklega hrifið af því að selja drenginn (sem er jú aðeins 22ja ára) til erkióvinanna, en er alveg tilbúið til að setja hann í hendurnar á Slot. Talað um að Bayern München hefði alltaf þurft að punga út 150 milljónum evra (sem eru í kringum 127 milljónir punda á núverandi gengi), en verðið gæti orðið eitthvað lægra fyrir Liverpool.

Wirtz á að vera búinn að skoða möguleg hús á Merseyside, það var meira að segja slúðrað um það fyrir meira en viku síðan að þekktur leikmaður hefði verið í sambandi við fasteignasala, svo líklega er þetta ferli búið að vera í gangi í lengri tíma en við kannski áttum okkur á. Það gæti því farið svo að það fari að bresta á með opinberum tilkynningum. Líklega mun þó klúbburinn leyfa lokaleiknum að klárast ásamt bikarlyftingunni ðg tilheyrandi fagnaðarlátum, sem og rútuferðinni um borgina á mánudaginn. En eftir það skulum við ekki verða neitt hissa þó svo að það fari að koma opinberar tilkynningar.

16 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Frimpong og Wirtz kynntir á sama tíma ?
    Ég á samt erfitt með að trúa þessu eins og er en það er nokkuð ljóst að þetta er að verða líklegra og líklegra.
    Ef að þessir helstu pennar ganga svo langt að segja að Wirtz sé búinn að semja við Liverpool þá hlýtur þetta bara að vera tímaspursmál, nema að Alonso og Real fari að koma að þessu.

    8
  2. ????????: Florian Wirtz has total ????????? on personal terms with Liverpool as Bayer Leverkusen are also aware of his desire

    The contract agreement is done after Wirtz gave clear preference to Liverpool over Bayern, decision made.

    Club to club talks already underway as revealed earlier as Liverpool are confident to get the ???? ???? ????… and not a long saga for the upcoming weeks.

    6
  3. Síðustjórnendur hvað segið þið um að bæta við hnapp með “tilkynni til útfellingar” merkingu á svona rusl, ásamt (viðvörunar)talningu sem viðvörun til annara lesenda?

    (Hef “soldið” verið að smella viljandi á svona hlekki í dag til að skoða, þessi hafði þó íslenskt nafn. Tökum agað á þessu vandamáli.)

    4
    • ok gott múv, hjá ykkur, þið tókuð innleggið út á meðan ég skrifaði þetta.

      Öll mín virðing!!

      5
      • Já þetta blessaða spam er að gera okkur gráhærða (umfram hefðbundin ellimerki).

        Ég kann ekki nógu vel á WordPress til að vita hvort það sé hægt að vippa þessu upp, en í grunninn þá erum við bara með auga á þessu oft á dag, og erum grimmir að setja IP tölur á bannlistann.

        8
  4. Sýnist að þessi leikmannagluggi sem er framundan verði á öðru kaliberi en ég man eftir að hafa séð hjá okkar mönnum.
    Gríðarlega flottir leikmenn sem verið er að vinna í að fá til okkar.

    YNWA

    8
  5. Sælir félagar

    Grav kjörinn besti ungi leikmaður ensku deildarinnar núna rétt áðan. Frábært og hann á það svo sannarlega skilið

    Það er nú þannig

    YNWA

    5
  6. Max Eberl (yfirmaður íþróttmála hjá Bayern) hefur tjáð mér að Florian Wirtz sé líklega að hallast í áttina að Liverpool. Ég get ekki sagt til um hvernig hlutirnir munu þróast varðandi Bayer Leverkusen,“ sagði Hainer við AbendZeitung

    Þægilegt að Bayern se farið að staðfesta felagsskipti fyrir Liverpool

    3
  7. Líklegast er þá Diaz á leiðinni út líka, vonandi ekki en það er farið að hljóma þannið víða á vefnum

    1
    • Get ekki sagt ég sé spenntur fyrir því en vonandi er þetta bara eh slúður með hann ég vill halda honum.
      Nunez má fara samt.

  8. Er Wirtz í ALVÖRU að koma? Ég vona það. Því meira sem ég sé því hrifnari er ég.

    Ég man ekki eftir því að allra stærstu bitarnir komi til Liverpool. Við erum að tala um leikmann sem færi venjulega til liðs eins og Real Madrid, Barcelona eða Man City. Þetta er algjör elítu leikmaður sem er aðeins 22 ára.

    Liverpool kaupir venjulega ekki leikmenn sem eru svona rándýrir nema það er raunveruleg ástæða fyrir því. Mo Salah og Van Dijk voru keyptir með möguleika að verða háklassa og urðu það. Þessi gaur er nær því að vera það nú þegar.

    Skoðum staðreyndir varðandi þennan leikmann.

    Stoðsendingar 23 (efstur í bundeslígunni)

    Heppnaðar sendingar á vallarhelmingi andstæðingsins (í grennd við vítateig) 1790 (í Öðru sæti í búndeslígunni)

    Take on Atempted ( held það þýði að fara fram hjá leikmannni) 313 ( efstur í í búndeslígunni)
    Through Ball . (Sendingar í gengnum vörn ) 39 ( Fyrstur í búndeslígunni)

    Bolti unnin á vallarhelmingi andstæðingsins ( 71) Fyrstur í bundeslígunni.

    Þegar ég sé þessar tölur finnst mér alveg blasa við að hann fari í svipað hlutverk og Firmino á hans forendum, Hálfgerð fölsk nía. Ég get vel séð að leikmaður með svona stoðsendingargetu geri leikmenn eins og Mo Salan og Luiz Diaz jafnvel betri en þeir eru í dag og svona leikmaður skili meira af mörkum fyrir liðið en hefðbundinn 9ja.

    Hann minnir mig mjög mikið á Philippie Coutinho og Diogo Jota. Lítill og teknískur með tæknitöfra í löppunum. Mig grunar að Slot sjái svona leikmann sem betri möguleika en venjulegan framherja og þegar ég sé tölfræðina hans þá finnst mér blasa við að hér er á ferðinni eðaleintak af leikmanni sem verður jafnvel betri ef hann spilar fyrir lið eins og Liverpool.

    2
  9. Trúi þessu vel, sé liverpool léttilega eiða hátt í 300m í sumar, kaupa 2 bakverði, wirtz og sóknarmann úr efstu hillu.

    Liðið ætlar að vinna titla.

    1

Leave a Reply to Örn(fuglinn) Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Gullkastið – Schadenfreude