Næstu kaup sumarsins: Armin Pesci

Þá er búið að gefa út hver næstu kaup félagsins í sumar verða, en það er tvítugur markvörður frá Ungverjalandi sem heitir Armin Pesci, þykir ansi efnilegur, en er nú væntanlega keyptur með það í huga að byrja í akademíunni a.m.k. svona að mestu leyti. Semsagt; einn markvörður út, annar inn (og svo einn að koma sem var keyptur síðasta sumar). Alltaf nóg að gera í markvarðadeildinni hjá Liverpool.

Við vonum auðvitað að þetta verði ekki eini ungverski leikmaðurinn sem verður keyptur í sumar…. *hóst*Kerkez*hóst*

Annars er orðið laust, er ekki eitthvað áhugavert slúður sem þið hafið rekist á?

Maggi er svo að vinna í pistli um gengi lánsmanna Liverpool á síðasta tímabili, þið getið beðið spennt!

25 Comments

  1. Flott að fjárfesta í ungum og efnulegum leikmönnum.

    En að öðru þá er okkar scouser Jones í hægri bakverðinum í dag og Trent á bekknum.

    6
  2. Mjög flott kaup. Fylgdist með kappa í allan vetur og hann stóð sig eins og algjör hetja. Ég vil sjá hann fá traustið strax í 1. umferð!

    YNWA

    3
  3. Van Dijk, Gravenbergh, Gakpo og næst nýjasti leikmaðurinn okkar hann Frimpong byrja allir inná á eftir.
    Það sem er mjòg athyglisvert er að bakvörðurinn okkar spilar sem kantsóknarmaður í stöðunni hans Salah 🙂

    3
  4. Sælir félagar

    Mér finnst eðlilegt að Maggi taki þennan strák út þar sem hann er sérfræðingur í svoddan peysum ?

    Það er nú þannig

    YNWA

    4
    • Já það verður spennandi og skoða “einnkunnir kennarans af framistöðu lánsleikmanna”
      p.s kennarinn lætur vita líka af stafsetningina villum

      1
  5. Eyddi ca. 2 klst í youtube sérfræðinga pælingar um hitt og þetta. Eitt af því var að Frimpong kemur úr liðum ársins í þessari stöðu. Bæði þeirri þýsku og meistaradeild. Salah var að spila í þessari sömu meistaradeild.

    Er ekki bara alveg mögulegt að það sé ástæðan fyrir kaupunum. Ekki endilega í bakvörðinn.

    Hitt er að Wirtz er ekki sóknarmaður og verði að spila vinstra megin á miðjunni.

    Má vel vera að hann sé til í að prófa eitthvað nýtt.

    Þeir tala jú allir við þjálfarann áður en þeir ákveða sig.

    Hvað vitum við. Bara geðveikir báðir 2 meira svona takk.

    3
  6. “Hitt er að Wirtz er ekki sóknarmaður”

    Er hann þá varnarmaður?

    Hvers vegna ætlarðu að spila honum vinstra megin?

    • Síðustu tvö tímabil eða frá því hann var tvítugur, hefur Wirtz komið að 69 mörkum. Skorað 34, lagt upp 35. Harla gott fyrir leikmann sem er ekki sóknarmaður

      4
    • Vinstra megin á miðjunni eða sem 10. Ekki kantinum og ekki vörninni og ekki sem striker eða nía. Það er ekki hans staða hingað til.

      2
      • Sælir félagar. Er að skrifa hérna í fyrsta skipti en hef lesið hvern einasta pistil og comment hér seinustu ár? En á fótbolta.net kemur fram að samkvæmt Fabrizio Romano (biðst afsökunar ef nafnið er vitlaust skrifað) þá hafa LFC og Leverkusen náð samkomulagi um 150 m evra fyrir Wirtz? Geggjað ef satt reynist?

        1
  7. Kerkez hefur yfirgefið herbúðir ungverska landsliðið „af persónulegum ástæðum” og mun ekki taka þátt í landsleiknum á þriðjudaginn. Eigum við ekki að giska á að hann sé á leiðinni í læknisskoðun á Englandi?

    7
  8. Þarf að fara klára Wirtz og Kerkez asap svo hægt sé að fara all in í striker kaup.

    Hvaða kjaftæði er þetta city dæmi? Það átti að koma dómur snemma í febrúar. Þeir keyptu amk 4 leikmenn í jan fyrir hátt í 200m.p. og svo kom enginn dómur. Núna talað um að niðurstaða komi í sumar en Cherki og At-Nouri á leiðinni fyrir ca.80m total og væntanlega meira á leiðinni. City hljóta að vita að dómurinn verður djók því í hvaða veröld ættu þeir annars að eyða svona miklum peningum og signa leikmenn með loforð um epl og cl bolta?

    Hvað með utd og eyðslu þeirra? Cunha og Mbuemo, þeir velja utd því þeir bjóða miklu hærri laun. Ok, skil það alveg frá þeirra sjónarhorni en það þarf að selja hálft liðið til að uppfylla ffp er það ekki? Bara þeir tveir eru 140m.p. cirka plús feitur launatékki. Ég hélt að europa league final tapið yrði enn einn naglinn í kistuna en massa statement að ná strax í þessa tvo. Cunha svosem böggar mig ekki en Mbuemo, ok ekki skjóta mig en í dag tæki ég hann í starting11 í stað Salah. Hefði ekki sagt þetta í des ’24 en tja…Mbuemo er svoldið góður biti í hundskjaft.

    1
    • Man Utd er ekki búið að tryggja sér Mbuemo. Spurs er komið í málið.

      2
    • Ég setti nú inn pistill í Wirtz þræðinum um þetta
      Opinberlisti um hvað lið meiga tapa er eftirfarandi

      Chelsea um 300
      Man City 292
      Manutd 141
      LFC 75

      Svo City hafa mikið svogrúm í leikmannakaup. Og utd mun meira en Liverpool. 🙂
      Ég bað líka Kopverja að skoða hvernig þetta meigi vera í næsta þætti.
      Þetta er stórfurðulegur veruleiki sem við erum að horfa uppá.
      Bókhaldsleikfimi þessara félaga City og Chelsea virðist skila þeim 200 í öllum gluggum. Meðan Liverpool sem væri á skrá sem fyrirmyndar fyrirtæki hjá credit info er hvergi nálægt þessum tölum.
      Ef regluverk knattspyrnunar myndu virka sem skildi yrðu þessi félög gjaldþrota um leið enda langt frá því að vera sjálfbær sem fyrirtæki.
      En Liverpool er það.

      Þetta er bara sá veruleiki sem félagið okkar er að keppa við. En við erum samt meistatar sem segir mikið um lúser element hinna klúbbuna

      4
      • Ég er löööngu hættur að skilja þetta FFP dæmi. Er virkilega svona auðvelt að fara fram hjá þessu ? Eru þetta einhverjar leikskóla reglur ?

        1
  9. Chelsea seldi td kvk liðið sitt og gera 7-8 ára samninga. Svo eiga þeir fleiri félög sem eru að versla sín á milli

    En afhverju þessir löngu samningar hjá chelsea
    Tökum liverpool sem dæmi 75 tap sem má eiga sér stað.
    Hvernig geta þeir þá keypt
    Frimpong 29
    Kerkez 45
    Wirtz 150

    Frimping gerir td 4 ára díl 7.25
    Kerkez 5 ár 9
    Wirtz 5 ár 30
    Þá dreifist kaupverðið og liverpool er að eyða 46.25 á rekstrar árinu.

    Þessar reglur eru mjög flóknar

    1
    • Chelsea sýndi öllum hvernig þetta virkar, svo koma sölur inn í þetta í sumar sem réttir strax af töluna í ár.

      Getum keypt sóknarmann líka og fleyri varnarmenn, seljum jota, nunez, elliott og gomez, bókhaldið komið í lag.

      1
  10. Frimpong, Quansah, Gomez, Jaros, Davies, Robbo? Bradley, Jones, Elliott, Morton.

    Eru þetta þeir leikmenn sem flokkast sem home-grown í núverandi aðalliðshópi?

    1

Kelleher farinn til Brentford

Uppgjör – lánsmenn LFC