Aarrrrgh Houllier, aaaarrrrgh!

Ég ætti að vita betur en svo að “kíkja aðeins” á netið á föstudagskvöldi. Ég rakst á smá viðtal við elsku dúlluna mína hann Gerard Houllier.

Ég getsvo svarið það, það eina sem gefur Gerard Houllier gildi í lífinu er að pirra MIG!

Trúiði mér ekki? Ég get sannað það.

Fyrsta sönnunargagn (það eina sem þarf) er þetta viðtal af opinberu heimasíðunni: [GH: MASSIVE ACHIEVEMENT IF WE FINISH 4TH](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N144733040430-1444.htm)

Það er ekki oft sem titill á grein gerir mig strax pirraðan, en það text þeim á Liverpool síðunni með þessu bjánalega kvóti. Hvernig í andskotans helvítis andskotanum er það frábært afrek að Liverpool, sigursælasta lið enskrar knattspyrnu, endi í FJÓRÐA FOKKING SÆTI!!!!! AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARGH!!!!

Ok, Einar rólegur. Viðtalið er ekki nema 188 orð, en samt tókst Houllier að pirra mig ógurlega FIMM sinnum. Ég er ekkert að grínast með að þessi maður hafi áhrif á geðheilsu mína. Okei, byrjum á fyrstu setningunni:

>He said: “I don’t care what people think, if we finish fourth then it will be a massive achievement for us.

Ok, frábært að honum sé sama hvað við aðdáendur finnst um hlutina. Það eina sem skiptir máli fyrir Houllier er að í hans veruleikafirrta heimi, þá séu hlutirnir í lagi. Fyrir Houllier, þá vil ég taka það fram að það að lenda í fjórða sæti verður ALDREI ásættanlegt fyrir Liverpool, sérstaklega ekki í ár, þegar öll hin liðin í keppninni um 4. sætið hafa skitið á sig viku eftir viku.

Ok, næsta setning.

>”Despite everything that has gone against us this season – injuries, refereeing decisions and other problems – we are still in there competing and battling. If we manage to finish fourth then we will be pleased we have brought some joy to the supporters.

Þetta er RUGL! Rugl rugl rugl! Liverpool hefur átt við einhver meiðsl að stríða en það er ekkert til að væla yfir. Þegar svo allir leikmenn Liverpool hafa verið heilir hvað hefur þá gerst? Jú, þeir hafa leikið enn verr en þegar mennirnir voru meiddir.

Ég á erfitt með að horfa með hlutlausum augum á Liverpool leiki. Ég tók til dæmis ekkert eftir því að Henchoz hefði nokkurn tímann varið með hendi á móti Arsenal í Cardiff um árið. Hins vegar þá hef ég ekki staðið upp eftir einn einasta Liverpool leik í vetur og sagt: “við töpuðum af því að dómarinn dæmdi svo illa.” Ef einhver gæti nefnt mér einn leik, þar sem við töpuðum útaf dómaranum en ekki af því að við lékum illa í 85 mínútur, þá væri það vel þegið.

Ok, næsta setning:

>”I think if we’d kept our best players fit for most of the season then we would have been challenging for second or third. I doubt we’d have challenged for first because Arsenal have been as good this season as they were two years ago when we came second to them.
 
Æðislegt! Þannig að þetta Liverpool lið sem hann hefur byggt uppí 6 ár er núna nógu gott til að keppa um annað sætið. Stórkostlegur árangur, Gerard!

>”We just haven’t been as clinical as we could have been at times. We’re not a boring team though. You can check the facts and you’ll see that we have had more shots on goal than any other team this season.

HALLÓ GERARD! Ég [var búinn að segja að ef að þú myndir nota þessa markskotaafsökun einu sinni enn þá myndi ég fríka út](http://www.jupiterfrost.net/index.php?p=26#comment-13)

Ok, ég var í innanhúsbolta síðastliðinn þriðjudag. Þar var ég í ágætisliði og við sóttum meirihluta tímans. Við áttum ábyggilega 150 skot á markið á móti svona 50 skotum hjá hinu liðinu. Hitt liðið vann hins vegar alla leikina nokkuð auðveldlega. Og hverjum er ekki sama um þessi markskot? Sanna þau eitthvað? Sanna þau ekki einungis að við vorum hroðalega lélegir (aðallega Borgþór sko) í að skjóta á markið? Þessi statistík sannar EKKI að við höfum verið með svo sókndjarft og skemmtilegt lið einsog Houllier er að gefa í skyn. Ef þú skýtur boltanum frá miðju uppí 30 röð í stúku þá telst það sem markskot.

>”I’m relaxed about the final three games. It’s not about me. It’s about all of us working for the good of the club to try and finish as best we can.”

Ok, hef svo sem ekki mikið um þetta að segja nema að auðvitað snýst þetta um HANN. Ef honum væri annt um liðið þá myndi hann segja af sér strax eftir Newcastle leikinn. Ef hann heldur áfram þá er það einfaldlega útaf eigingirni. Ef honum er virkilega annt um Liverpool þá viðurkennir hann sig sigraðan, segir af sér og leyfir liðinu að leita sér að hæfari þjálfara.

Ein athugasemd

  1. Ég sé að Houllier pirri þig jafn mikið og Blatter pirrar mig!

    Er annars nokk sammála þér þó ég sé ekki og verði aldrei púllari :biggrin2:

Núll-Eitt!

Bring on Real Madríd!