Ja hérna, Fernando Morientes tjáir sig um spekúlasjónir síðustu daga og segir að það hafi “einhverjir aðrir” verið að tala fyrir sig þegar hann sagðist vilja fara frá Real Madrid.
Þetta er án efa besta afsökun, sem ég hef heyrt. Þetta var semsagt ekki hann, sem sagðist vera óánægður hjá Real Madrid, heldur einhver maður útí bæ, sem þóttist vera Fernando Morientes. Sjá [þetta viðtal](http://skysports.planetfootball.com/list.asp?hlid=233803&cpid=23&CLID=14&lid=&title=Morientes+tired+of+speculation)
>”I want to make it clear to all these people who are speaking for me and saying how I am feeling, I am fine and leaving has never entered my thoughts.
>”I understand that when a team needs to sign a player they will look around for people that are not playing very much at their current club.
>”It is flattering that I am being linked with all these different clubs, but I am honestly fine where I am.
>”I want to stay here at least until my current contract finishes, that is what I hope.”
Til upprifjunnar, þetta var það sem “Morientes” [sagði](http://www.kop.is/gamalt/2004/10/16/12.06.43/).
Svo er leikur á móti Milwall á morgun. Ég veit ekki hvort Kristján ætlar að setja inn almennilega upphitun, en lfc-news birta sína [ágiskun um byrjunarliðið á móti Milwall](http://www.lfc-news.co.uk/cgi-bin/display?mainarea=news,20041025160246&page=default). Það er svona:
Josemi – Whitbread – Henchoz – Warnock
Potter – Diao – Biscan – Kewell
Mellor – Pongolle
Þetta eru bara hugleiðingar, en það verður gaman að sjá leikinn á morgun því það verða án efa margir, sem fá tækifæri til að sanna sig. Allavegana býst ég fastlega við að Biscan, Warnock og Pongolle fái tækifæri til að sanna sig. Kannski Kristján setji inn frekari pælingar varðandi leikinn á morgun.