Svona er liðið sem mætir á Ataturk í dag. Nokkrar breytingar – Hendo og Coutinho fá langþráða hvíld og Toure kemur inn í vörnina og Can færir sig yfir á miðjuna. Mer list ágætlega á þetta. Balo byrjar svo frammi með Sterling & Sturridge.
Mignolet
Toure – Skrtel – Lovren
Ibe – Allen – Can – Moreno
Sterling – Balotelli – Sturridge
Á bekknum: Ward, Manquillo, Williams, Brannagan, Lallana, Lambert, Borini
virkilega áhugavert og spennan er að magnast ætla að spá þessu 2-1 fyrir besiktas þetta er rosalegur útivöllur förum áfram á útivallarmarki og komum tvíefldir til leiks á móti city
Ætli hann flippi þríhyrningnum efst, hefur Balotello og Sturridge tvö frammi með Sterling í holunni…..?
Eins gott og getur verið
Vá.
Svakalega ungur bekkur…og eins og ég sagði við upphitunarþráðinn þá er þetta heldur betur karlmennskupróf hjá mörgum okkar drengja…
Alveg Evrópufiðringur hér!!!
Sælir félagar
Líst vel á þetta lið og að hafa Can á miðjunni sem er hans besta staða. Ef Lovren stendur sig þá er þatta hin nánasta framtíð.
Það er nú þannig.
YNWA
SIBS
Sterling Ibe – Balotelli – Sturridge
Lýst mjög vel á þetta byrjunarlið.
Lyst hrikalega vel a þetta lið, can a miðjunni og Balotelli með tækifæri i liðinu, bara flott mál.
og enginn annar en Cameron Brannagan á bekknum… (hver er það annars?)
Tryggvi, þetta er hörkuefnilegur leikmaður sem hefur verið hjá félaginu frá því hann var 9 ára. Var á bekknum um daginn líka (janúar).
Þetta er bara flott rótering (allavega fyrir leik). Svo er hægt að bölva þessu og blóta ef illa gengur. Worst case scenario er að detta út núna og tapa svo fyrir City á sunnudaginn. En ef þetta gengur allt vel þá förum við áfram og vinnum City. Spennandi tímar, og já bara Evrópufiðringur 🙂
Ég hefði hvílt Sterling eða Sturridge og haft Lallana inná en Rodgers er stjórinn og hefur staðið sig mjög vel sem slíkur.
Hvort ætli það séu meiri líkur að við endum í top 4 á Englandi eða vinnum Evrópukeppnina? Kannski sér Rodgers stórt tækifæri í Evrópukeppninni til þess að tryggja okkur í meistaradeildina
Best væri ef bæði Can og Lovren geta sannað sig í þessum hlutverkum. Væri mikill bæting á hópnum að fá Lovren inn í liðið, þ.e. leikmanninn sem við héldum að við værum að kaupa. Sama á við um Emre Can auðvitað á miðjuna.
Er einhver með link?
http://www.rojadirecta.me/goto/max-deportv.net/?canal=10 ætti að virka.
Takk
http://premier-league-lives.net/live/liverpool-live-stream/channel-1/
Pff… Engin stemming þarna! Minnir mig á Hlíðarenda þar sem heyrist bara ,,Vaaaaaluur… Vaaaaaaluuurr”.
Líst frekar vel á þetta – yrði ekki hissa ef Ibe setti hann í kvöld.
Sæll! Þokkaleg læti á vellinum. 🙂
Líst vel á þetta byrjunarlið. Must að rótera og flott að sjá Lovren í miðverði og Can á miðjunni. Eflaust er þetta svo inverted þríhyrningur fremst, eins og #2 veltir fyrir sér.
úff…frekar lélegir linkar í gangi núna…engin með hágæða link?
Þvílíkt baul á vellinum þegar við erum með boltann,vá maður!!!!!
Held að þetta sé meik or breik leikur fyrir Balotelli. Ætlar hann að vera varamaður eða byrjunarliðsmaður?
Svakalegur hávaði þarna….úff
Balo verður að passa sig núna!
Balo tæpur í kvöld?
Þreytandi þessi leikmenn þarna í Besiktas, veinandi eins og smábörn og kasta sér í grasið trekk í trekk.
Búnað leita mikið en veit einhver um góðan Acestream link??
Ég hef aldrei séð fótboltalið tapa leik útaf hávaða. Ég vona að leikmenn séu bara að drekka í sig stemmninguna þarna og njóti þess að spila aftur á þessum leikvelli. Ná svo í góð úrslit í leiðinni 🙂
KOMA SVO REDS ! ! ! !
Svona hávaði hefur áhrif,bæði á leikmenn aðkomuliðs og ekki síður dómarana!
Líst nokkuð vel á þetta enn sem komið er.
Bara vera slakir, halda niðri tempóinu og sjá hvort það opnist ekki eins og eitt eða tvö færi til að klára leikinn.
Þetta verður allavega rosalega góð reynsla fyrir ungu strákana að takast á við svona stemmningu á útivelli. Mjög gott bara. LFC virðist so far vera með leikinn í nokkuð góðu jafnvægi. Engin hættuleg færi hjá Besiktas so far. Erfitt þó að Balotelli skuli vera kominn með gult strax…þarf jafnvel að taka hann út af í hálfleik og fá Lallana inn til öryggis…en hvað veit ég svo sem 🙂
Gleymst að taka límið af skónum hans Sturridge fyrir leikinn.
#gefurekkiboltann
Er ekki að deyja úr hamingju með þennan dómara!
Þessi dómari ætlar greinilega a? spila sem tólfti ma?ur Be?iktas í kvöld
Væri gott að skora mark….þá þyrftu þeir þrjú stykki til að vinna…sem er varla að fara gerast eins og leikurinn er að spilast…
Filmon.com sýnir leikinn á ITV4 ekkert svakaleg gæði en alveg nógu gott 🙂
Mér finnst eins og við séum að keppa við þýska landsliðið……. búningarnir hræða….
hvað er að sturridge ? búinn að vera ömurlegur 3 leiki i röð núna!
Plís ekki fara að væla yfir dómaranum hérna…
Sammála síðasta ræðumanni,Dude #38,ekkert væl yfir dómurum!!!
Flottur leikur til þessa. Vörnin að virka vel, Allen mjög góður og nánast bara tímaspursmál hvenær sóknin skilar einu í netið.
Fáranlegt flott skot hjá honum Balotelli 🙂
Sturridge er að klappa boltanum alltof mikið… pirrandi
Veit ekki með ykkur , en mér finnst Balo búinn að vera flottur í þessum leik..Þeir eru í miklum vandræðum með hann tyrkirnir :)..En hvað er að Sturridge?..Er einhver rödd í hausnum á honum sem bannar honum að gefa boltann?
vont að vita til þess að Tyrkirnir þurfa bara að setja eitt mark til að allt verði jafnt og leikurinn gæti með því móti farið í framlengingu. Sem er ekki gott fyrir City leikinn….Skora nú eitt strákar og sigla þessu heim!
Vantar okkur ekki bara þennan snilling í sóknina hjá okkur?
[img]blob:https%3A//vine.co/e8691b14-53e2-4bae-a07b-9059183f2cbb[/img]
[img]blob:https%3A//vine.co/e8691b14-53e2-4bae-a07b-9059183f2cbb[/img]
haha ok i give up
@45
This Guid you found is at least unique.
Flottur fyrihálfleikur hjá Liverpool.
Virkilega skipulagðir og Rodgers að koma smá á óvart með því að hafa Sterling á miðsvæðinu.
Lovren fín varnarlega en á í vandræðum með sendingar.
Ibe og Toure þurfa að vinna aðeins betur saman. Ibe ríkur stundum út og Toure nær ekki að komast í kanntmanninn nógu snemma en heimamenn hafa ekki náð að nýta sér þetta.
Joe Allen búinn að eiga flottan leik en eina ferðina. Passar vörnina, góð vinnsla og skilarboltanum vel frá sér.
E.Can virkar dálítið þungur á sér, hann á einn og einn skriðdreka sprett en hefur verið í smá vandræðum.
Maður er alltaf hræddur um að Balo fari útaf með rautt en hann og Sturridge hafa verið ógnandi en hanga stundum of lengi á boltanum.
Heilt yfir góð framistaða á gríðarlega erfiðum útivelli og ef við höldum áfram að vera þéttir(sóknarleikurinn hjá þeim byggjist á löngum sendingum á Ba sem Skrtel/Lovren eru búnir að éta) þá þurfa þeir að taka smá sénsa og gæti hraðir sóknarmenn Liverpool nýtt sér það.
haha það er 100% líkur á að baloteeli fái að sja það rauða ef að besiktas menn fatta að bögga hann allan seinni hálfleik held að malið se að setja borini inn fyrir hann þó hann se búinn að vera með okkar bestu mönnum
Vill sjá meiri hraða og ákefð þegar möguleikar skapast frammá við, skil samt alveg uppleggið við erum jú marki yfir 🙂 væli ekki en vill samræmi í dómgæslu, Balo á spjaldi er ekki gott og ef samræmi væri í dómgæslunni þá væru einhverjir af anstæðingunum líka komnir með spjald. Best hefði samt verið og sangjarnast ef mið er tekið af dómgæslunni að ekkert spjald væri komið á loft.
YNWA
Besta streamið sem ég hef rekist á: http://blabseal.de/foot/
http://livetv.sx/en/eventinfo/282300_besiktas_liverpool/
Fullt af linkum bæði soapcast og Ace stream
Leikurinn að þróast eins og handboltaleikur, nóg að horfa á síðustu fimmtán, vonandi ekki. Koma svo , skora á “55
nr 52 er þetta stream ekki að hiksta jafn mikið hjá þér og mér?
#55 Nei ekki neitt
Leikurinn á ITV 4 í flottum gæðum
dfjull lét hann sig detta þarna
jæja…núna fer ég að verða stressaður….helvítin geta stolið þessu …
Nú verða okkar menn að fara að herða sig ef ekki á illa að fara.
Helvítis helviti. Nenni ekki i framlengingu. Koma svo sækja nuna og klara þetta
Stefnir í dæmigerða BR drullu í Evrópuboltanum
óverjandi…
Jæja ætla menn að vakna núna ekkert að gerast hjá okkar mönnum
Hlaut að koma að þessu. Besiktas einfaldlega mikið betri í seinni hálfleik.
Getum sjálfum okkur um kennt að nýta ekkert af okkar sénsum í fyrri hálfleik, sérstaklega Sturridge!
Framlenging og ég held að við getum líka farið að hafa verulega áhyggjur á leiknum á sunnudaginn. Betra ef að Besiktas setja annað án alls gríns frekar en að þetta endi í framlengingu! ANDSKOTINN
lallana inn fyrir sterling eda sturridge
Sælir félagar
Erum yfir spilaðir á miðjunni og það boðar aldrei gott, þetta mark er búið að liggja í loftinu.
hvað er að Brendan ? horfir uppá liðið og sérlega marga einstaklinga spila illa í seinni,,, og gerir fucking ekkert………..
set hinsvegar stort spurningamerki vid þessa skiptingu
Sælir félagar
Tyrkirnir komnir yfir sanngjarnt. Það kann ekki góðri lukku að stýra að ætla að liggja í vörn í 90 mín og vonast til að vinna á einu heimavallarmarki. Uppleggið hjá BR ekki eins og maður hefði viljað,
Það er nú þannig.
YNWA
Guð minn góður eru þið að sjá Sturridge í þessum leik. Verið eins áhugalaus og latur og hægt er að vera. Rodgers taktu hann útaf ffs.
Já um að gera að spila eins og Aston villa enginn vilji til þess að skora bara parkera rútunni og vona það besta. Ömurleg frammistaða
Inn með Lallana! Það vantar alla sköpun í framlínuna!
hérna….. – erum við manni færri? Við lítum þannig út amk?
Fyrir alla muni hættið þessu h……. væli….þeir eru bara að spila betur en við í augnablikinu. Og auðvitað á að skipta meiddum manni útaf.
Bara allt annað en framlengingu! Það væri verra en tap!
Sturridge búinn að vera verri en enginn so far.
Vona samt að hann sokki mig með jöfnunarmarki á 93.
Hvar er Sterling..engin hlaup?
Menn eru útkeyrðir á þessu leikjaálagi sýnist mér og ekki verður þetta eitthvað betra um helgina… sérstaklega ef þetta ætlar að fara í einhverja helvítis framlengingu
Við erum skítlélegir og markið liggur í loftinu hjá tyrkjum.
Halda haus næstu minúturnar og klára dæmið i framlengjunni.
Gladíatorarnir okkar eru útkeyrðir og búnir á því. Fara ekki að skora í þessum leik.
Oj hvað ég nenni ekki framlenginu í fokking evrópu fokking deildinni í fokkin 32 liða úrslitum og það fokking tveimur dögum fyrir leik á móti fokking manchester city. Djöfulsins óþarfa rugl er þetta
Þetta helvítis óþarfa leikjaálag á eftir að kosta okkur Meistaradeildarsætið á næsta ári. Fórum í tvo leiki gegn Bolton sem kostaði okkur tvö stig gegn Everton og nú framlenging gegn grútlélegu Besiktas. Allir keppinautarnir okkar úr leik í Evrópu, þ.e.a.s. Arsenal, Spurs og svo auðvitað Utd. Fá þar af leiðandi mun meiri hvíld en við – e-ð sem við nýttum okkur vel í fyrra.
Hræðilegt fyrir okkur að það sem framlenging sérstaklega ef ekkert kemur útúr henni, þetta á eftir að hafa afleiðingar fyrir liðið næstu vikur????
Frábært, var að kveikja á sjónvarpinu þar sem ég hélt að leikurinn væri að byrja 🙂
Kooooma svoooo!
Höddi B, markið kemur hjá þeim i framlengingunni, er ég hræddur um.
Munum þá detta út með skömm OG þurfa að spila 120 mín 🙁
Þetta fer í vítakeppni auðvitað, er Dúdek ekki örugglega með?
Ég verð að viðurkenna að ég er farinn að vonast til að Liverpool detti út úr þessari keppni. Þreytan er orðin svo augljós og það sem verra er að liðið er farið að verða sér ólíkt. Ég held við ráðum ekki við að vera í bikarkeppninni og Evrópukeppninni líka.
Það vantar greinilega fjóra lykilmenn í liðið okkar og það er farið að sjá á liðinu. Það sárvantar – Sakho- Henderson – Lucas og Coutinho.
algerlega Brendan um að kenna. Sér að við erum búnir að tapa miðjunni strax í seinni og gerir ekkert. Það er hans hlutverk að lesa leikinn og bregðast við,, ekki bara horfa á liðið yfirspilað !
Anskotin…. Vill heldur tapa frekar en framleingingu
afhverju að byrja með 2 centera og liggja i vörn ? tilgangslausum 120 min eytt í sturridge illa farið með orkuna á leikmönnum og er ansi hræddur að þessi framlenging segi til sin á sunnudaginn djöfull !!!
Dettum bara útúr tessari blessudu keppni og einbeitum okkur ad deildini og bikar. Tetta er svo drepleidinlegt
malið er einfalt hefði þessi bolti ekki njólast i markið væru allir her að hæla rodgers fyrir snilldar taktík
Ef við skorum i framlengingu og þeir lika förum við þa afram a utivallarmarki eða hverni eru regurnar i þessari keppni ?
Já, Dude, hefði frekar viljað tapa þessu í venjulegum leiktíma en framlengingu :-/ En helvíti bara, setjum bara eitt núna og tökum þetta, er ekki gull mark ? eða þarf að spila allar 120 mín ?
Gildir útivallar markið eftir framleingingu??
Það er nú ekki eins og það séu einhverjir augljósir kostir að setja inn á miðjuna. Veit ekki hvað menn myndu segja ef BR færi að henda einhverjum kjúkling inn á miðjuna í þessari stöðu. Í hans sporum myndi ég samt fara að nota þriðja varamanninn, en hvað veit ég.
Enginn Balo inná ef það kemur til vítaspyrnukeppni.
Gáfulegasta skiptingin væri Borini inná fyrir Sturridge, en gæti verið að Rodgers sé að spara skiptinguna til að geta sett Lambert inná fyrir vítaspyrnurnar
menn að reyna að eyða eins litlari orku og þeir geta i framlengingunni. senda sterling aftur til jamaica og sturridge i skammarkrókinn
Það væri ekki amalegt ef það væri hluti af upphituninni í svona bikarleikjum hverjar reglurnar eru varðandi framlengingu, útivallarmörk, gullmark?? eða vítaspyrnukeppni.m það skapast alltaf umræður hér í þessarri stöðu um hverjar þessar reglur eru sem eru mjög mismunandi oft milli keppna 😉
Eru menn alveg búnir að vera enginn vilji í að vinna þennan leik.
Tökum þetta samt í vító 🙂
DJÖF ! ! ! ! Can meiddur 🙁
Þetta fer aldrei í vítaspyrnukeppni, tyrkirnir fara að skora. Liverpool eru alveg sprungnir
Djöfulsins ansi er CAN á að standa í lappirnar. Þoli ekki að sjá svona dýfur.
Can getur varla hlaupið lengur…er ekki ein skipting eftir?
Sóknarlega erum við alveg geldir. Hef ekki séð Sturridg svona slappan síðan ég veit kki hvenær. Balo hefði allan daginn átt að vera áfram inná, þrátt fyrir að vera með gult.
Helvítis. Ég er að fara á leikinn um helgina og var nú að vonast til að fá ekki Sturridge til baka eins og sprungin vindil. Ég hef minni áhyggjur af varnarmönnunum, Can og Sterling.
#101 Borini var vítaskytta Sunderland í fyrra, fínasta skytta og eflaust ekkert verri en Lambert.
Já þetta hefði átt að klárast í fyrri hálfleik með marki frá Sturridge. Hann er ennþá augljóslega ryðgaður. Ég er ekki sammála með það að Balotelli hafi verið góður. Jú, allt í lagi í fyrri hálfleik en afleitur í þeim seinni. Ég var farinn að garga á að skipta honum út fyrir Lallana eftir 50 mínútur. Ef sú skipting hefði verið gerð þá eða á 60. mínútu hefði þetta mark aldrei komið. Sóknarleikurinn er síðan búinn að vera máttlaus í 60 mínútur utan við smá sprett fljótlega eftir að Lallana kom inn á. Vonum að Lambert klári þetta. Já eða Dudek!
Með verstu frammistöðum sem ég hef séð í mörg mörg ár. Yrði skandall ef Liverpool færi áfram miðað við þessu hryllilegu frammistöðu. Rodgers ábyrgur enda liðið joggað um völlin frá fyrstu mínútu og sóknarleikurinn eins og hjá Neista á Hofsósi.
JÆJA LAMBERT. Kláraðu þessa tyrkjaguddur. 🙂
Rickie Lambert? Rickie Lambert?? RICKIE LAMBERT??? RICKIE LAMBERT????? Ma?urinn hlýtur einfaldlega a? hata Borini.
Djöfull er þessi Töre búinn að fara illilega í mínar fínustu í kvöld.
Óh Bjé #115:
Lambert er enginn Messi… En Borini getur einfaldlega ekki rassgat, hefur margsannað sig.
Borini hefur sanna? sig alls sta?ar þar sem hann hefur fengi? tækifæri, 4 mìnútur inn af bekknum í einum af hverjum 15 leikjum kallast ekki tækifæri..
Dude#117
Ljósið í myrkrinu er það hversu gríðarlegt þol hann Allen hefur, hann virðist ekkert vera neitt þreyttur í samanburði við hina. Hann vinnir gríðarlega mikið og hleypur maraþon
Ég finnst Borini betri kostur enn Lambert og skil ekki allveg þessa breytingu. Borini hefur einhvern hraða miðað við Lambert.
Þvílikir sendinga feilar megnið af þessum leik hjá okkur. Það er slys ef tyrkir skora ekki í framlengingunni. Það getur allavega engin skorað af leikmönnum LFC. Agalega blóðugt að þurfa að spila framlengingu.
Já Allen er flottur í pressunni. Hann myndi hins vegar vinna mun fleiri bolta ef væri ekki svona mikill væskill. Strákurinn þarf pumpa smá járn.
Það mun reynaast erfitt fyrir kjúklinganna að halda taugum gegn svona gríðarlega hostile stuðningsmönnum í vítaspyrnukeppni
Can er sprunginn á öllum ! ! Hvað er hann að taka þessar aukaspyrnur………
einn leiðinlegasti leikur sem eg hef horft á .
og þessi leiðindarhávaði í þessum tyrkja andskotum
Ég bara veit ekki hvort ég hef tíma til að horfa á 14 víti.
Ég hélt að við værum með þetta, mér fannst þeir aldrei líklegir til þess að skora. Ba reynir að taka boltan með sér missir hann frá sér og úr varð þetta stórkostlega mark.
Nú er komið að vító og er það einfaldlega 50-50 og allt getur gerst.
Ef við vinnum þá er það auðvita það besta ef við töpum þá er það ömurlegt en eini kosturinn er að losna við fimmtudagsleikina.
HVER Í ANDSKOTANUM SKRIFAÐI ÞETTA Í SKÝIN, VITAKEPPNI Á ÞESSUM VELLI
Dudek kemur okkur áfram og við vinnum mótið
1. Gerrard 2.Balo 3. Hendo 4. Sturridge og enginn af þeim inná ??
Hef ekki náð að fylgjast með öllum leiknum en náði síðustu 15 og síðan framlengunni og ég held að ég hafi ekki séð eitt skot á markið hjá Liverpool í þessum leik. Sennilega einn leiðinlegasti leikur sem ég hef séð með Liverpool í langan tíma.
þú misstir ekki af neinu !
versta við þetta er óíþróttamannslegir stuðningsmenn þessa skíta liðs sí púandi bara leiðindartappar
Þegar Heiðin er lokuð þá fer maður Þrengslin
Grátlegt hvað Simon er alltaf nálægt því að verja þessi víti!
Alvöru víti hjá Allen
Had to be Lovren!
Nákvæmlega ekkert gott sem hefur komið með Lovren
Auðvitað var það lovren 🙁
Rándýr leikur 🙁
Já nú munu hrææturnar líklegast mæta og tæta Lovren í sig…
Hver ákvað að Lovren tæki síðustu spyrnuna, sást langar leiðir að hann myndi klikka….
Louvren klárar þetta eins og hans tímabil hefur verið “hræðileg”
Auðvitað Lovren. Rodgers átti halda Coates og eyða þessum 20m i einhvern annan leikmann. Verstu kaup sumarsins.
Fokking Lovren, átti sinn þátt í markinu líka, hann hafði tíma til að koma sér nær gæjanum sem skoraði markið. Hvernig í fjandanum gat þessi gæji kostað 20 milljónir punda, hann getur ekki einu sinni tekið víti mannfjandinn.
Sjaldan séð jafn vel teknar vítaspyrnur…..en svona fór um sjóferð þessa. Lífið heldur áfram og nú þurfa menn að jafna sig á þessu áfalli fyrir sunnudaginn.
YNWA
Eina sem ég get sagt er að Basiktas átti þennan sigur skilið. Vissi það allan tímann að við myndum líklega tapa vítaspyrnukeppninni því Mignolet er mjög lélegur í vítum.
Ég er eiginlega feginn því leikjaálagið var orðið allt of mikið. Hæfilegt að vera bara í tveimur keppnum á þessum tímapunkti.
takk lovren
Þetta skrifast algjörlega á BR, og þa? sérstaklega a? setja mann me? ekkert sjálfstraust á punktinn. Me? þessu hefur hann gjörsamlega ey?ilagt Lovren, og Kolo Toure, sem er búinn a? vera mjög öruggur þegar hann stígur á punktinn tekur ekki víti.
Hver er að stýra þessari skútu? Það myndi ekki skipta mig nokkru máli þó Lovren væri sá eini sem myndi bjóða sig fram til þess að taka þessa spyrnu, hann á ekki að fara á punktinn…
Vítakeppni er bara happa glappa. Liðið átti ekkert skilið úr þessu. Ömurlegir frá fyrstu mínútu, áttu varla markskot allan leikinn, sendingar hræðilegar, vinnusemin engin, ákefðin engin (minnti á Arsenal í gær). Af mörgum slæmum í dag var Rodgers yfirburðaslakastur með ferlegu varnaruppleggi. Sturridge var skelfilegur. Sterling fær 0 hjá mér og ef drengurinn sá fer ekki að girða sig í brók þá væri mér slétt sama þótt klúbburinn myndi gefa hann. AFLEITUR á löngum löngum köflum og getur ekki heimtað 200 skrilljónir á viku. Að mínu mati ofmetnasti leikmaður heims um þessar mundir-þótt ég sé harður Liverpool maður.