Þá er komið staðfest á brottför Trent í sumar og PR spin yfirlýsing frá honum um mest allt annað en að hann fær rosalega góðan signing bonus frá Real Madríd fyrir að yfirgefa uppeldisfélagið frítt.
Hef persónulega rosalega lítinn tíma fyrir PR spin yfirlýsingar frá honum sem stangast á við fyrri PR spin yfirlýsingar hans um Liverpool. Það eru leikmenn í mun minni liðum sem virða sín lið nógu mikið til að semja við þau til að tryggja kaupverð þegar þeir fara. Hafði mikið meiri skilning á brottför Owen en Trent, hann skilaði smá kaupverði, fór frá verra liði og var bara ekki eins almennt vinsæll meðal heimamanna og Trent hefur verið. Hann er að fara frá ríkjandi meisturum og hefur verið að spila til úrslita í öllum helstu keppnum. Eins situr það alls ekki vel að hann sé að fara til Real Madríd eftir einvígi liðanna í tíð Trent.
Hann um það, frábær ferill hjá Liverpool þar sem hann var lykilmaður.
After 20 years at Liverpool Football Club, now is the time for me to confirm that I will be leaving at the end of the season.
This is easily the hardest decision I’ve ever made in my life.
I know many of you have wondered why or been frustrated that I haven’t spoken about this… pic.twitter.com/emAw5RvXq0
— Trent Alexander-Arnold (@TrentAA) May 5, 2025
Úff. Allt í lagi okkar vegna en hann er að gera stór mistök með þessu.
Ósammála, finnst okkur hafa skort kjark til að setja seðlana á borðið. Ég er hæst ánægður að við settum Mo og Virgil á svimandi há laun, en hvað klikkaði hér? Er þetta af því að hann er uppalinn? En það er bara upp upp og áfram! Sumarið er tíminn.
YNWA
Verst geymda leyndarmálið. Ekki ætla ég að vera á “Haturs vagninum” því hann skuldar mér akkúrat ekkert og þetta er hans líf. Gangi honum bara sem allra best, nema þegar hann mun mæta Liverpool, og takk fyrir allar góðu minningarnar, frábæru sendingarnar og stundum góðan varnarleik.
Það má hinsvegar velta fyrir sér í hvað hann er að ganga. Real virðist vera á stórum tímamótum og það logar stafnanna á milli þar innanhús að virðist vera. Fýla og gremja út í Ballon Dor, dómara á Spáni og svo er einn sigursælasti þjálfari sögunnar að yfirgefa skútuna. Ég er ekkert viss um að hann muni njóta dvalarinnar mikið endilega. Mögulega mun hann sjá eftir þessu og mæta galvaskur í Newcastle búning eftir ár eða tvö.
Á hinn bóginn er þetta Real Madrid!! Þeir eru yfirleitt ekkert lengi í einhverjum uppbyggingarfasa og finna einhvernvegin alltaf leiðir til þess að vinna titla.
Við púllarar höfum áður horft á eftir góðum leikmönnum, betri leikmönnum en Trent, og alltaf höfum við staðið af okkur það.
YNWA
Ég er búinn að vera pirraður á þessu í marga mánuði en ég nenni því ekki lengur.
Ég skil alveg hjá honum að vilja breyta til og spila í sólinni í Madrid í 30 stiga hita alla daga og á flottum launum og með þessu Real liði sem berst líka um alla titla ár eftir ár.
Það sem er kannski fúlast í þessu er að Liverpool fær ekki krónu fyrir hann og það er glatað, hann hefði alveg getað skrifað undir samning sem væri með klásúlu sem Real hefði getað virkjað ef þeir vildu.
En þá fær hann ekki þennan feita bónus og það vill hann frekar en uppeldisliði sitt.
En gangi honum samt bara vel í spænsku deildinni og bikarnum en megi vera langt í sigur í CL
Æ þetta er sorglegt og alveg ljóst að hann er að elta peningana (það má svo sem).
Maður sér amk. ekki oft stór signing þegar það liggur fyrir að liðið er að reka þjálfara. Hann veit í raun ekkert útí hvað hann er að fara en segir samt já. jæja það verður bara að hafa það.
Set einnig spurningamerki við það hvernig hann fagnaði því manni fannst hann vera að gefa okkur smá von 🙁
Samála pistlahöfundi.
Það er alveg sama hvað er sagt eða gert núna.
Ég get ekki beðið eftir því þegar stuðningsmenn drulla og púha á þennan leikmann sinn þegar hann fer að gleyma sinna varnarleiknum.
Það hefur aldrei og verður aldrei neinn eilífur fyrir félagið innan vallar. Sumir ná þó að vera eilífir í huga fólks.
Nú er hann búinn að taka ákvörðun næsta mál.
Það er alltaf vont þegar við missum einn af bestu leikmönnum heims frá okkur en þetta lá í loftinu.
Ég var þó vo sannarlega að vona að hann yrði áfram.
Hann verður allt Liverpool legend fyrir mér. Frábær einstaklingur sem unnið hefur allt með Liverpool.
Er svekktur að einum að bestu leikmönnum liðsins hafi verið leyft að fara og þetta veikir okkur en styrkir RM. En vonandi verður fenginn góður leikmaður í staðinn þó þá megi telja á fingrum annarrar handar þá sem komast með tærnar sem Trent hefur hælana.
Áfram Liverpool!
Vonandi er eitthvað hægt að læra af þessum samningamálum á þessu tímabili. Ef liðið væri ekki Englandsmeistarar frá því í janúar þá hefði þetta truflað mann talsvert meira.
Varðandi Trent þá er þetta bara svekkjandi en gott að fá þetta á hreint. Ég virði hans ákvörðun en ég er bara og barnalegur til að óska honum góðs gengis. Ég vona þetta verði ömurlegt move og spænska deildin henti honum einstaklega illa og hann skori sjálfsmark og Real komist ekki í meistaradeildina.
Núna er mikilvægt að Liverpool eigi gott sumar á markaðinum. En ég ætla ekki að gera mér of miklar vonir samt. Væri til í að geta spólað yfir þá FGS spólu.
Slot á skilið gott sumar en ég man eftir að hafa sagt það sama um Klopp.
Áfram Liverpool!!!
Ágætt að þetta er frá.
Áfram gakk.
Jú, það sem er vissulega það versta við þetta er að LFC er í alvörunni ekki að fá pening. Það finnst mér mjög illa gert hjá Trent og býður bara upp neikvæðni í hans garð. Hann hefði alltaf getað samið um 1-2 ár í viðbót til að tryggja okkur góða upphæð. Mjög illa gert hjá honum.
Sælir félagar
Mér er nákvæmlega sama um alla leikmenn sem ekki vilja spila fyrir Liverpool. Mér er einfaldlega sama hvað um þá verður, hvernig þeim gengur og hvert þeir fara. Ég bara hef engan áhuga á þeim leikmönnumá neinn hátt. Arnold er þar engin undantekning. Það eru hinsvegar aðrir leikmenn sem vekja áhuga minn eins og til dæmis Kerkes, Huijsen og Göykeres. Menn sem verða ef til vill framtíðarleimenn Liverpool og munu koma inn í lið sem er fullt af gæðaleikmönnum og er á góðum stað í sínum verkefnum með frábæran stjóra og frábært “staff” og samheldnin og áhuginn til staðar hjá hverjum manni.
Það er nú þannig
YNWA
Hefði getað endað sem Club legend en mun að öllum líkindum enda sem Owen eða Coutinho í augum Liverpool stuðningsmanna.
Real er ekkert á sínum besta stað, Ancelotti mun örugglega ekki halda áfram með liðið og VinÍcius er tregur til að endursemja við Real.
Engu að síður tapurt að sjá leikmann Scouser sem hefur verið alin upp af LFC í einhver 20 ár að hann fari frá okkur frítt, þarna hefði Liverpool átt að stiga fast inn og henda honum á sölulista þegar tækifæri gafst. Trent er toppleikmaður sem hefur vaxið mikið í höndum Liverpool og hefur unnið allt með okkar klúbbi sem hægt er að vinna og hann er partur af velgengni Liverpool síðustu ára.
Áfram og upp, Liverpool hefur misst betri leikmenn en Trent og ég treysti eigendum Liverpool 100% að finna nýjan leikmann og það er pottþétt eitthvað að gerast á bakvið tjöldin þvi það er ekki nýtilkomið að Trent sé að fara þótt stðafestingin hafi komið útí dag.
YNWA
Vonandi spilar hann ekki eina mínútu það sem eftir er. Helst ekki í hóp og medalían send til hans í Madríd.
Senda hana í póstkröfu. Svo hann þurfi að borga fyrir að leysa hana út. Hehehe…
Sama upp á teningnum og hjá Emre Can á sínum tíma. Fær milljarða í signing on bonus. Skilur félagið eftir með 0 kr og búinn að draga félagið á asnaeyrunum í allan vetur. Liðið hefur þurft að aðlaga taktík sína að veikleikum hans vavarnarlegamiðjumenn og hafsentar að lenda í að hlaupa í skarðið og lenda í erfiðum stöðum hans vegna. Hann hefur átt margar góðar sendingar, góð mörk og fínn í uppspilinu en klárlega veikur hlekkur varnarlega. Nú vantar okkur nýja bakverði beggja vegna, níu upp á topp, miðjumann til að auka breiddina og mann til að leysa Salah af. Helst hafsent til framtíðar. 6 leikmenn takk fyrir mig. Tsimikas, Kelleher, Nunez, Morton, Doak og mögulega fleiri mega fara upp í það.
Takk fyrir allt, Trent, þú fékkst sannarlega draum þinn uppfylltan að vinna allt galleríið með æskuliðinu. Auðvitað hefði verið magnað að sjá þig verða eina af goðsögnum félagsins en líklegast nærðu ekki að vera á pari við hetjur á borð við Rush, Barnes og fleiri. Vonandi sjáum við þig aftur í Liverpool-treyjunni áður en þú setur skóna á hilluna – við vitum vel að hjarta þitt mun alltaf slá með Liverpool, hvert sem þú ferð.
Varðandi síðan þessa afstöðu pistlahöfundar sem og annarra í aðdraganda þess að TAA ákveður að láta þeta gott heita, samningaviðræðurnar voru alveg í gangi fram í mars á þessu ári þegar ljóst var að ekki myndi nást saman. TAA hefur sjálfur sagt að þetta viðhorf stuðningsmanna gagnvart honum hafi ekki hjálpað við að halda honum hjá liðinu áfram þannig að til hamingju með þetta… veit ekki alveg hvernig er hægt að lýsa svona stuðningsmönnum sem eru að gefa hvaða kjaftasögu sem er einhvern byr undir báða vængi og láta fylgja með öll helstu fúkyrði sem hægt er að hugsa sér.
Held að lexían sé að sumir ættu frekar að halda sig til hlés, bæði í hljóði og og lyklaborði, ef þeir vita ekkert betur en það sem staðfest hefur verið í opinberum tilkynningum.
Sælir félagar
Þá er það ljóst. MVS telur að aðeins “réttar” skoðanir eigi að heyrasthé. Það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem svona ritskoðunartilhneigingar heirast úr þeim belg. Sú hugmynd að við hér uppi á “köldum klaka” stjórnum viðhorfum manna eins og þessa arnolds eru auðvitað fáránlegar. Þessi arnold liggur varla á kop.is til að kanna hvað við segjum um hann og hans framgöngu, ekki frekar en að aðrir leikmenn og starfsmenn LFC geri það. Við erum að líkum afar litlir áhrifavaldar í lífi manna í þeirri ágætu og fallegu Liverpool borg
Það er afar merkileg tilhneiging sumra manna að vilja stjórna og hafa vit fyrir öðrum þeim óviðkomandi. Fyrir mér mega skoðanir manna ver þær sem þær eru. Þær eru þeirra mál og þeir standa fyrir þeim sjálfir og eiga allan rétt á skoðunum sínum. Við getum verið þeim ósammála þeim eftir atvikum en við getum ekki og megum ekki banna fólki skoðani sínar þó við séum þeim ósammála.
Hitt er annað að nefndur arnold hefur örugglega fengið orð í eyra frá sínu heimafólki og það er einfaldlega eðlilegt. Fólk í Liverpool hefur fullan rétt á að láta skoðun sína í ljós við téðan arnold án “okkar” tilsagnar. Það er nottla líka fáránleg framsetning hjá umtöluðum arnold að þær skoðanir hafi haft úrslita áhrif á ákvarðanatöku hans. Þvílík eftirá afsökun manns með slæma samvisku, er að vonum.
Það er nú þannig
YNWA
Veit ekki hvort þetta er hreinlega kynslóðarmunur en ég allaveganna reyni að temja mér það í samskiptum að vera ekki með einhver svona uppnefni eða níðingshátt gagnvart núverandi eða fyrrverandi leikmönnum, hvað þá gagnvart mönnum sem hafa fórnað líkama og sál fyrir liðið sitt og stuðningsmenn.
Kannski finnst öðrum í lagi að vera með svona skætingshátt gagnvart öðrum en kannski er þetta líka bara vottur af minnimáttarkennd þegar einhver þarf að bregðast svona við sem er ekki sammála manni.
Þú hefur þína skoðun og það er ekkert sem ég get gert í því, sama hversu ömurleg mér finnst hún vera.
Ömurleg innlegg Magnús.
Get sagt þér að viðhorf stuðningsmanna Real verður ekki blíðara þegar TAA gerir sín kæruæeysislegu byrjendamistök þar.
TAA hefur sannað að hann hefur ekkert Liverpool hjarta. Hann kýs að láta samning sinn renna út og fara frítt, einungis út af eiginhagsmunum. Vegna þess að TAA kemur frítt borgar Real honum amk 10x hærri upphæð fyrir undirskriftina en þeir hefðu annars gert.
Bæri TAA snefil af virðingu fyrir klúbbnum hefði hann samið um riftunarákvæði.
Vissulega væri frábært ef þú héldir þig til hlés en virða ber tjáningafrelsið.
Frábært innlegg hjá þér, virkilega mikil dýpt í þessu hjá þér og ljóst að þú ert greinilega með puttana á púlsinum á gangverkinu þarna á Anfield. Hlakka mikið til lesa pistlana frá þér á næstunni hérna á síðunni.
TAA er búinn að gefa þessum klúbb 20 ár af ævi sinni, búinn að vinna allt galleríið og langar að takast á við nýjar áskoranir. Hann var í virkum samningaviðræðum fram að landsleikjahléinu í mars þannig að þú kannski athugar hvort heimildir þínar á Englandi séu mögulega eitthvað að spila með þig.
Liverpool hefur aldrei sett inn release-ákvæði í samningana hjá sér, sem var m.a. ástæðan fyrir því að Emre Can fór frá okkur til að sigra Evrópu (!)
Ég þakka TAA fyrir hans framlag til klúbbsins, hans hjarta mun alltaf slá með Liverpool og ég vona að við séum sem stuðningsmenn sýnum um þá virðingu þegar fram í sækir. Skil það vel að þetta stingi ykkur suma að sjá góðan mann ná velgengni og vilja takast á við áskoranir en við þurfum að lifa með þessu og læra og halda svo áfram.
YNWA – Ef við ætlum að láta þessi orð hafa einhverja merkingu þá þurfum við að láta gjörðir fylgja orðum. Það hefur ekkert upp á sig að snýta sér í mann sem er vill fara annað.
Algjörlega sammála þér Magnús.
Trent Alexander Arnold átti flottann feril hjá Liverpool og við skulum þakka honum fyrir allt sem hann færði okkur.
Ég ætla ekki að fara niður á það plan að hata Trent frekar en nokkurn annan af þeim leikmönnum sem hafa yfirgefið okkur. Vissulega eru sumar brottfarir verri enn aðrar eins og þegar Torres fór frá okkur til Chelsea um árið, enn svona er þetta nú bara.
Lífið heldur áfram og nú er bara að finna verðugan arftaka fyrir Trent í sumarglugganum.
YNWA
Ef Trent væri lélegur leikmaður væri enginn að skammast út í hann. Það er sárt að sjá hann fara því hann er frábær fótboltamaður með yfirburðasendingagetu. Liverpool áttu að ganga frá samningi fyrir 2 árum og því er þessi staða uppi og sá tími er einfaldlega liðinn að bestu leikmennirnir spili allan tímann með uppeldisfélaginu. Vonandi verða gerð verulega góð innkaup í sumar svo Liverpool vinni alla titla næstu árin, líka CL á kostnað Real. En takk fyrir allt Trent.
Já þetta var vitað í langann tíma að það yrði af þessu.
Leiðinlegt að missa góðan leikmann eins og Trent en það er sama lumman bara það er enginn leikmaður stærri en klúbburinn.
Og eh stuðningsmenn annara liða hlakkar í þeim yfir þessu en við eigum eftir að fá inn aðra leikmenn og aðlagast að hann sé ekki þarna ég hef engar áhyggjur Liverpool mun halda áfram.
Ég hélt mikið uppá Trent frá því hann kom í aðalliðið maður vissi alltaf að þarna yrði einn sá besti í þessari stöðu.
Hann er að selja part af arfleið sinni hjá Liverpool til að taka þetta skref á ferlinum og það mun hann aldrei getað tekið til baka.
Ég óska honum hins vegar góðs ég ber ekkert illt til hans þó ég sé dapur yfir því að missa hann núna.
Spurning hvernig stuðningsmenn Real taka honum eftir smá tíma þegar rykið settlar og hann gerir mistök þar það verður athyglisvert.
YNWA
Æ
Ég með minn athyglisbrest.
Ég er aveg búinn að gleyma hvað þessi leikmaður heitir.
Æ,Æ 🙂
Lélegt af bæði Liverpool að láta hann fara og eins lélegt af TAA að halda að grasið sé grænna hinum megin við lækinn. En hann fer þá í hóp þeirra Liverpool manna sem verða bara nöfn á leikskýrslu og minningin ein, en ekkert meira en það.
Má fara mín vegna en súrt að fá ekki aur fyrir kappann. Hefði verið huggulegra að semja til þriggja ára og leyfa félaginu að selja hann svo fyrir 100 m.
En svona er þetta bara. Trent hefur frábæra hæfileika en oft gat maður orðið ergilegur yfir frammistöðunni í vörninni. Það sýndi sig líka á sunnudaginn.
Félagið heldur í Trent og Salah, losnar við nokkra ,,farþega” og nú fara nýir leikmenn að bætast í hópinn. Verður spennandi að fylgjast með því!
Real Madrid hefði aldrei keypt Trent fyrir slíka upphæð. Það er mergurinn málsins. Þeir eru að kaupa hann út af því að hann fer frítt => hann fær sjálfur kaupverðið í sinn eigin vasa. Gráðugur.
Heigulsháttur að gera þetta ekki eins og maður. Tilkynna fyrir löngu og gefa svo allt fyrir félagið í sigurbaráttunni í deildinni. Í staðinn stóð hann og þagði þegar allir félagar hans sungu hástöfum YNWA fyrir framan Kop stúkuna eftir að titillinn var í höfn. Það fannst mér lélegt.
Eftir að Bellingham kom ekki til okkar eftir spjall við Klopp þá held ég að þetta hafi legið í loftinu að félagarnir Trent og Bellingham myndu enda saman hjá Real.
Allt sem við gerum í þessu lífi hefur með einum eða öðrum hætti áhrif á hvað sé næst á dagskrá en getur líka haft áhrif á það sem er liðið.
Feril Trent með Liverpool er drauma saga. Ungur stuðningsmaður, fer í gegnum alla akademíuna, brýst í gegn og verður stór þáttur í frábær Liverpool liði og nær að vinna alla titla sem eru í boði og skapa fullt af stórkostlegum minning. Liverpool borgaði ekki krónu en átti sinn þátt í að móta strákinn og hjálpa honum á sinni vegferð.
= Þetta hér er ekkert að fara að breyttast. Þetta gerðist og á hann þökk fyrir sitt framlag og fyrir að skapa okkur stuðningsmönnum fullt af minningum.
Hann ákveður að láta samning sinn renna út og semja við Real sem við höfum verið að berjast við í meistaradeild og Liverpool fær ekki krónu fyrir hann.
= Þetta hér hefur áhrif á það sem undan hefur gengið.
Trent ef hann hefði tekið Carragher leiðina hefði hann orðið algjör goðsögn hjá liðinu og talað um hann í sömu andrá og okkar helstu stjörnur. Ef hann hefði tekið Gerrard leiðina að elta smá seðla þegar ferilinn er alveg að klárast þá hefði það breytt litlu um hvernig við lítum á feril Trent með Liverpool en hann er að fara frítt á sínum prime árum frá liðinu sem er drullu sterkt.
Svo að það eru blendnar tilfinningar.
+ Maður er þakklátur fyrir hans feril hingað til og minningarnar sem hann hefur skapað fyrir mann í Liverpool búningnum.
– Hann er að fara frítt, hann er að fara þegar við erum á góðum stað og líklegir til að bæta í og hann er að fara til Real sem hefur verið okkar andstæðingur undanfarinn ár.
+/- = Takk fyrir allt. Þú verður ekki Liverpool goðsögn en við munu samt ekki gleyma þér og þínum þætti í stórkostlegu Klopp liði og síðar meir meistaraliði Slot.
Ég held að allar tilfinningar stuðningsmanna Liverpool eiga rétt á sér.
Þeir sem vilja bara þakka honum fyrir og óska honum góðs gengis.
Þeir sem vilja brenna treyjuna og tala um hann sem svikara
og Þeir sem eru á báðum áttum.
Nú þarf bara að njóta þess að við erum meistara og ekki láta þetta versta geymda leyndarmál fótboltands undanfarna mánuði( jafnvel ár) skemma partýið.
YNWA – Er okkar mottó og við höfum misst stærri bita en Trent en þetta er extra sárt því að hann er uppalinn og á nóg eftir .
Í guðana bænum látum þennan leikmann eyðileggja ánægjuna af því að við erum meistarar. Ekki láta þessa leiki sem eftir eru snúast um hann, heldur gleðjumst yfir árangrinum og minnumst ekki meira á hann.
Hefði viljað fá pening fyrir Trent, en það er ekkert sem getur skemmt gleðina að hafa unnið erfiðustu deild í heimi, ótrúlegt afrek og maður ennþá í skýjunum
Tímasetning þessarar tilkynningar vekur furðu mína. Hvers vegna ekki að bíða bara þar til tímabilinu er alveg lokið?
Hvernig ætli stemmningin á Anfield verði þegar hann lyftir bikarnum eftir lokaleikinn? Held að viðbrögð viðstaddra verði blendin. Ætli RM hafi pressað á hann að tilkynna þetta núna? Það væri þeim drulluhölum líkt.
Hvað sem þessu líður hefur sagan kennt okkur stuðningsmönnum að enginn leikmaður er stærri en klúbburinn. TAA er engin undantekning þar. Það er vissulega súrt í broti að hann fari frítt og aðeins framtíðin mun leiða í ljós hvernig ferill hans mun þróast upp frá þessu.
Þessi tilkynning og þetta video er sett fram núna til að flýta fyrir sölunni. Allt eftir bókinni. Eg persónulega held það se fyrir bestu hann fari strax og Liverpool fái smá pening. Allir græða miðað við stöðu mála.
Hann hefur ekkert að gefa lengur, hans kveðjuleikur var gegn Leicester þar sem hann skoraði sigurmarkið.
Mjög sérstakt að Trent fari frítt sama ár og liðið vinnur epl, eiginlega mjög súrealískt. Ég sagði síðasta sumar að það ætti bara að selja hann ef hann framlengdi ekki. Getur ekki látið lykilmann eiga svona stutt eftir af samning. Margar breytur koma upp sem snúa leikmönnum og klúbburinn gefur sér lítið svigrúm í þannig aðstæðum. Fyrst og fremst er þetta klúður hjá klúbbnum að það sé enginn aur að koma inn fyrir hann. Trent sjálfur græðir mest fyrir undirritun sem free agent. Er hægt að álasa honum það? Nei, ekki að mínu mati. Stuttur ferill og menn verða hámarka launatékkann sinn með öllum ráðum.
Varðandi þessa ákvörðun hans skil ég hana. Grunaði ástæðuna í haust og hún er einmitt sú sem hann segir í tilkynningunni. Vilji nýja áskorun, nýtt umhverfi. Þetta er ekki flókið. Hans líf, hans ákvörðun. Hann verður bara standa og falla með því.
Líklega er þetta úthugsað plot milli Trent og Real. Trent væntanlega spilað þannig úr sínum spilum að viðræðurnar færu fram um haustið og þannig slegið möguleikann á sölu út af borðinu.
Það getur vel verið að taa komi til með að sja eftir þessari akvorðun sinni, nokkur dæmi sanna það, malið er, hann veit vel hvað hann er að gera. Eg þykist samt viss, innvigður og innmuraður Liverpoolbui með ættir jafnvel langt aftur myndi nu gefa Magnusi a.m.k. einn god morgen, og spyrja, hver gaf hverjum hvað. Það er ekki verið að tala um einhvern tolvusnilling sem fer fra einu fyrirtæki til annrs, flest ollum er sama um það. Það er siðan aðalatriðið, það kemur alltaf maður i manns stað. End of story.
YNWA
Þið sem hafið reynslu af þjálfun, hvað mynduð þið gera við TAA væruð þið í sporum Slots?
Á hann að spila leikina sem eftir eru? Sitja á bekknum en koma aldrei inná? Eða stimpla sig inn og heiðra samninginn alveg fram að fyrsta júlí en spila ekki neitt?
Nokkuð augljóst að tímasetning fréttanna miðast við að hann komist til Real Madrid NÚNA og geti spilað Club World Cup með þeim í júní.
Hallast að því að Bradley byrji restina af mótinu haldist hann heill.
Bradley er þó varla 90 mín maður og líklegt er að Arnold verði eitthvað skipt inn á.
Verður fróðlegt að sjá viðtökurnar sem hann fær.
Hef ekki reynslu af þjálfun en meðan hann er leikmaður Liverpool þá á bara að nota hann sem slíkan. Það er svo margt í þessu að það er ekki hægt að láta tilfinningar ráða ferðinni, nema kannski ef leikmenn vilja hann ekki inná. Sem í raun ekkert bendir til.
Maður vill frekar að Trent meiðist en Conor Bradley til dæmis.
Það er vel skiljanlegt að leikmaður vilji nýjar áskoranir. Fótboltinn í dag er atvinnugrein og menn þurfa að huga að eigin ferli. En þegar leikmaður eins og Trent Alexander-Arnold, sem hefur verið hjá Liverpool frá barnsaldri, ákveður að fara frítt á besta aldri þá segir það sitt um karakterinn.
Það er þessi mótsögn sem pirrar mann hvað mest. Hann talar um ást sína á Liverpool og hvað félagið og stuðningsmennirnir skipti hann miklu máli. En ef það væri virkilega satt, hvers vegna sér hann þá ekki til þess að félagið fái eitthvað í staðinn? Hann hefði getað framlengt og beðið um sölu. Það væri að sýna þakklæti í verki, ekki bara með innantómum og fögrum orðum.
Í staðinn fer hann til Real Madrid frítt og fær væntanlega stóran undirskriftarbónus á kostnað félagsins sem mótaði hann og gerði hann að heimsfrægum leikmanni. Þetta er ekkert annað en einstaklingshyggja og sjálfhverfa, sama hvernig á það er litið.
Mér finnst í raun ekkert að því að hann fari. Sóknarlega hefur hann verið frábær en varnarleikurinn, guð minn góður. Það sem situr þó mest í mér er viðhorfið sem hann sýnir. Þegar leikmaður sem átti að tákna hollustu og endurspegla ákveðna sál félagsins sem uppalinn leikmaður velur sjálfan sig fram yfir allt annað þá er kominn tími til að kveðja. Ég er í alvöru bara feginn að losna við svona hugarfar úr klúbbnum þó maður eigi eftir að sakna sendinganna.
Fótbolti er vissulega orðinn business en stuðningsmenn tengjast klúbbum út af einhverju stærra. Þetta snýst um menningu, virðingu, sögu og þakklæti. Þegar hljóð og mynd fara ekki saman, þá skilur það eftir sig óbragð. Þetta væri annað ef hann væri kominn yfir þrítugt. Þá væri eðlilegt að fara frítt.
Takk fyrir framlagið Trent. Og takk fyrir að sýna hver raunverlegi karakterinn þinn er. Þú mátt fara.
Bara handa Daníel… en það gæti verið í uppsiglingu svaka æsingur hjá Man Jú. Al-Hilal vill kaupa Bruno Fernandes fyrir 120 milljón pund og borga honum um og yfir milljón pund á viku í laun. Verður hann seldur? Stay tuned!
Ég hélt ég væri búinn að útlista hve
mikinnlítinn áhuga ég hef á þessummiðjumoðsfallbaráttu liðum…Mér finnst bara svo gaman að toga í löppina á þér… hehehe.