Nú segir Romano að það sé komið á samkomulag um kaupin á Florian Wirtz, 150 millur takk fyrir (reyndar evrur, en samt brjáluð upphæð). Vissulega með öllum mögulegum klásúlum, svo upphafsgreiðslan er eitthvað talsvert lægri, en samt vel yfir 100 milljónir punda. Semsagt, dýrasti leikmaður Liverpool sögunnar, og líklega dýrasti leikmaðurinn í sögu deildarinnar sömuleiðis. Nema að við komumst einhverntímann að því hvert raunverulegt kaupverð Haaland hafi verið. Við kannski bíðum með að opna kampavínið þar til Joyce eða þeir kappar koma með þetta, en þetta lofar góðu.
Liverpool og Bournemouth eiga víst að vera að ræða saman um Milos Kerkez, vonandi gengur það hratt fyrir sig. Talað um að suðurstendingar vilji fá 45 millur fyrir kappann.
Nú og svo er orðrómurinn um að Liverpool ætli að bjóða í Alexander Isak ekki alveg dáinn úr öllum æðum. Er líklegt að Newcastle selji hann? Nei. Ómögulegt? Nei ekki heldur.
MO AND FLO WILL HAVE A GO!
To ongoing show!!
YNWA
140 milljón evrur + 10 í add-ons.
Þvílíka statementið sem Liverpool hendir út í samfélagið með þessum risa risa kaupum á einum mest spennandi leikmanni heims.
Vonandi heldur strákurinn haus enda gríðarleg pressa á 22 ára strák og enska pressan tekur engum vettlingatökum ef það byrjar brösuglega.
Hlakka til að sjá englandsmeistara byrja tímabilið með þessari uppfærslu á liðinu og vonandi sjáum við 2-3 kaup í viðbót.
Já og ég held að ég verði að taka Mr. John Henry og FSG í sátt eftir þessi kaup, svona á að bakka upp stjóra
Sælir félagar. Ég var held ég fyrstur að skrifa hérna inni um þessa frétt en commentið mitt endaði einhversstaðar? kannski afþví ég hef aldrei skrifað neitt hérna bara lesið?
Átti reyndar að vera broskall en ekki spurningamerki?
ROSALEGT!!!
Hvar er Plumbus?
Sem betur fer eru kaupahéðnar liðsins með yfirburðarþekkingu á öllum hliðum málsins umfram sófann mig!
Er efins um að þetta sé sanngjarnt verð fyrir leikmann sem maður hafði lítið heyrt talað um áður. En er líka efins um forsendur mínar til að meta það.
Já, ef þetta er rétt þá er það morgunljóst að við meinum bísness og ætlum að gera gott enn betra.
Svo best maður hneigi sig bara í auðmýkt og þökk og segi: Velkominn Wirtz og takk fyrir!
já þú ert semsagt á því að LFC séu að borga fullmikið fyrir leikmann sem þú hefur lítið sem ekkert heyrt af?
Og væntanlega ekki aflað þér nokkurra upplýsinga um leikmanninn, sem þér þykir fulldýr? En vissulega skynsamlegt hjá þér að efast um eigið mat 🙂 því þetta er einn besti leikmaður heims í dag.
Það er varla við öðru að búast en best leikmaður Bundeligurnar kosti sitt. Leikmaður ársins í fyrra, var í liði ársins þriðja árið í röð og hefur unnið þar alla titla. 22 ára fastamaður í Þýska landliðinu með yfir 30 leiki að baki.
Mæltu manna heilastur
Keita bömmerinn situr enn í manni. En maður verður bara að vona að nú fari þetta á betri veg.
Hugsaðu frekar um Bobby!! Það var enginn bömmer
Hellings peningur auðvitað, en sýnir kannski bara enn og aftur að Liverpool eru tilbúnir að eyða stórum upphæðum þegar þeir telja að leikmaðurinn sé þess virði. Það þótti líka mörgum glapræði þegar Van Dijk var keyptur á metupphæð á sínum tíma en hann hefur auðvitað borgað sig margfalt til baka. Vonum að þessu kaup heppnist eins vel!
Það hefur verið mikið ritað og rætt um FSG,
og menn mikið pirrað sig á að liðið sé aldrei að kaupa eins og aðrir.
málið er bara
þegar kaup eins og Alison,dijk,mane,salah og fleiri á sínum tíma voru komnir
þá voru menn ekki að kaup bara menn í þessar stöður til þess að kaupa þá. svo ertu kominn með 3-4 í sömu stöðuna og enginn getur neitt.
Mané fór og Gakpo og Diaz komu inn. nú eru ákveðin vatnaskil og félagið er búið að endurnýja miðjuna og bakvarðarstöðunar eru í vinnslu.
Ég vona að þegar menn skoði nú heildarmyndina að menn fari að skilja hversu heppið félagið er að hafa FSG sem eigendur. og gleymum ekki að félagið er sjálfbært.
félagið er að eyða þessum svakalega upphæðum í sumar því það á fyrir því! það sama verður ekki sagt um aðra sem annaðhvort eru í risaskuld eftir kaup eða í bókhaldsleikfimi sem mun bíta þau í rassinn á endanum hvort sem það verður gert með lögum eða eigendaskiptum.
En loksins eru þessu risakaup félagsins kominn, kaup sem við höfum kallað á í langan tíma.
þetta er alvöru högg í stuðningsmenn annara stuðningsmanna sem voru farnir að tala um að nú væri era okkar að taka enda Klopp farinn og menn að verða gamlir!
en nei félagið er PL meistarar og eru að styrkja sig með alvöru seðlum í sumar og við sjáum ekki fyrir endan á toppbaráttunni!
þannig við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur á hvað menn kosta núna félagið á fyrir því og aðal málið er að félagið ætlar að sýna að við erum ekkert að fara af stallinum!
Risa stórt statement frá Liverpool FC eftir vonbrigðin með Trent.
Það er eins og John hafi orðið smá reiður og ákveðið að sýna að hann ætti alveg fullt af seðlum : )
Þessi kaup á Wirtz eru huge þá á ég ekki bara við með verðmiðann hann er líka generational talent í þýskalandi og þú þarft ekki að lesa mikið þaðan eða hafa horft á hann spila til að sjá hvað er í gangi hefur verið besti leikmaður í þýskalandi síðustu ár og þá var hann 20-22 ára gamall.
Þarna er næsta stórstjarna á ferð og hann verður hjá okkur !
Þessu ber að fagna og ekki dvelja of mikið við verðmiðan því þeir sem hafa heila og vita eitthvað hvernig Liverpool hafa hagað kaupum myndu sjá þó þeir eyddu 200m í viðbót þá væru þeir ekki nálægt hinum klúbbum í eyðslu síðustu 10 ára.
Svo skiptir líka máli hvernig klúbbar eru reknir því Liverpool er ekki með olíuveldi eða glæpamenn fyrir aftan sig einfaldlega frábæran rekstur sem fer vaxandi enda stórveldi sem klúbbur.
Næst er að klára Kerkez eftir Wirtz og vonandi erum við að sjá mögulega sóknarmann koma inn líka en kanski er maður að verða of gráðugur ég veit ekki.
YNWA
Væri svoooo mikið til í að sjá þetta staðfest áður en þessi fyrri gluggi lokar.
Þori ekki að fagna fyrr.
Hann lokaði í gær …., en væri gott að sjá staðfest sem allra fyrst ??.
Opnar aftur 16.nda Júni og er þá til 1.sept
Þetta verður staðfest þá.
Mér finnst alveg galið að kaupa tuðrusparkara fyrir meiri pening en nýja stúkan kostaði. Því miður er þetta orðið svona og miðaverð, búningaverð og allt í kringum þetta sport orðið mjög dýrt. Mæti samt aftur á Anfield og býð þann þýska velkominn og vona að hann standi sig vel.
Maður er pínu hræddur við svona verðmiða. En Maður verður að vona það besta
Hvað erum við að fara að sjá með Wirtz í liðinu, er hann að fara að vera í falskri 9 með Diaz/Gakpo vinstra megin og Salah hægra megin.
Með Szoboszlai, MacAllister og Gravenberch þar fyrir aftan, eða erum við að fara að sjá Mac og Szobo rótera meira sín á milli og við fáum Ekitete líka eða álíka sóknarmann ?
Wirtz er svona Coutinho/Firmino týpa held ég, allavega með flesta þeirra eiginleika og getur spilað flest allar stöðurnar þarna frammi.
Svo koma þessar rakettur Frimpong og vonandi Kerkez endalaust upp og niður vængina, litla veislan framundan.
Einsog Reynir Pétur sagði svo skemmtilega….þetta er alveg ÓTRÚLEGT
Slotal Voetbal. Ef svo heldur sem horfir þá stefnir Slot á einhvers konar brjálaða nútíma útgáfu af totaalvoetbal.
Frimpong er ekki bakvörður, Gravenberch er ekki 6, Szobo er 10 sem spilar 8. Wirtz mun spila eins og Messi sem hleypur. Virgil með Kerkez til að hlaupa í skarðið verður orðinn einhvers konar Beckenbauer “libero” sem dúkkar upp hvar sem er.
Það sem okkur vantar er einhvers konar bola eins og Vardy var á sínum tíma sem getur hrætt allar varnir og finnur netið hvaðan sem er.
Þetta verður eitthvað! Hver þarf stöður þegar allir eru með hæfileika, hraða, hjarta, leikskilning, leiðtogahæfileika?
Frelsið er yndislegt — við gerum það sem Slot vill!.
websitem için çok i?ime yarad? te?ekkür ederim
dxd global | Marka yönetimi K?br?s , sosyal medya yönetimi, promosyon ürünleri, Seslendirme Hizmeti , SEO , Dijital pazarlama , Videografi
Mjög spennandi leikmenn sem orðaðir eru víð Liverpool þessa dagana. Kerkez átti frábært tímabil og Wirtz er búinn að sanna sig sem meira en bara efnilegur.
Zubimendi sem núna virðist á leið til Arsenal var líka mjög spennandi og hvað þá Caicedo sem samdi við Chelsea.
Staðan í dag er Trent út, Frimpong inn. Liðið er í besta falli á pari. En þetta er spennandi eins og alltaf.
Áfram Liverpool og áfram Slot!