Loksins er Liverpool að landa alvöru stórlax því núna í morgun eru fréttir þess efnis að 100m tilboði í Florian Wirtz hafi verið tekið sem geti hækkað í allt að 116m með bónusum. Bara þannig gæti hann orðið dýrari en t.d. Caisedo sem við misstum af til Chelsea í fyrra.
Þetta er fáránlega spennandi leikmaður sem hefur verið leikmaður tímabilsins undanfarin tvö ár í Þýskalandi og er ennþá bara 22 ára. Besti vinur hans er þegar búinn að semja við Liverpool þannig að hann verður vonandi fljótur að aðlagast enska boltanum.
Frábært að þetta sé að komast á hreint þó læknisskoðun sé eftir og væntanleg þegar hann snýr aftur úr fríi. Ekki að ég held að maður myndi nú aðeins hliðra til fríinu sínu fyrir svona…
Geggjað!
Get ekki beðið eftir að næsta tímabil byrji.
YNWA
Okkar næsti Bobby Firmino!!
Ansi ólíkir knattspyrnumenn.
Ef líkja ætti Wirtz við fyrrum LFC leikmann væri það Coutinho þó nærtækasti samanburðurinn væri auðvitað De Bruyne
Sælir félagar
Þetta eru frábær tíðindi og svo stenst hann vonandi læknis skoðun og allt klárt. Þá er bara Kerkes eftir af þessum þremur sem byrjað var á og svo framherji (9) og “bakkup” fyrir Grav ásamt miðverði ef Quansa fer til BL. Maður er helsáttur þó ég hefði viljað fá Cherki líka. En maður fær nú ekki allt sem maður vill fá 🙂
Það er nú þannig
YNWA
spurning hvort Szoboszlai muni ekki spila aftar á vellinum og rótera með Mac Allister og Gravenberch.
Cherki hefur orð á sér fyrir slæmt “attitude” og maður heyrir að Lyon vilji losna við hann.
Það er eitt sem við verðum að taka saman, því núna eru menn að spá í að kaupa Wirtz á þessa upphæð meðan Cherki kostar mun minn.
Wirtz er mjög ofarlega í % tölum og slíku þegar kemur að pressu og sinna annari varnarvinnu. hann er ekki alveg eins duglegur og Sobo en mjög duglegur!
En Cherki er mjög latur og takmarkaður í að sinna þessari vinnu á vellinum.
er slappur í að pressa.
en vissulega frábær í sókn og í að rekja bolta
Cherki gæti þess vegna sem næsti Grealish hjá City mönnum en líka R.Mharez sem var flottur í sóknarleiknum hjá þeim.
Þannig að ég er nokkuð viss um að Cherki sé plan B hjá City en Wirtz hafi verið á undan.
þar sem við erum að fá mun heilsteyptari leikmann.
Svo við ættum bara að gleyma þessum Cherki gæja! hann hefði aldrei slegið í gegn á Andield 🙂
Cherki ku vera búinn að skrifa undir hjá City.
Hefur vissulega hæfileika, en er meingallaður að öðru leyti.
Sá verður fjótur að fara í fýlu fái hann svipaða meðferð og Grelish.
Þetta eru algjörlega geggjuð kaup, svo bara Kerkes og isak ? gleðilegan fössara ??
Veit ekki afhverju það komu spurningamerki, en allt í gotti
Hljómar afbragðsvel. Það stefnir i að Liverpool verði sterkir kandidatar í baráttunni um titla á næsta tímabili, jafnvel sterkari kandídatar en á því nýliðna, serstaklega ef við fáum þá sem eru líklegir til viðbótar.
Það hefur verið poddari af minna tilefni en þessu!!:)
YNWA
Sammála
Já væri svo til
Næstum nauðsyn..
Þetta eru sannarlega góðar fréttir.
Ég ætla að stinga uppá því við síðuhaldara að …(staðfest) sé einungis notað þegar klúbburinn hefur staðfest undirskrifaðan samning og myndir eru komnar af leikmanni. Allt í lagi að segja …(99% prósent) — en fréttin er ekki staðfest. Hún er bara fengin frá almennt áreiðanlegri heimild, en ekki frá frumheimild.
-YNWA
það er verið að staðfesta að tilboðið hafi verið samþykkt en ekki að leikmaðurinn hafi skrifað undir. Stendur hvergi í færslunni að leikmaðurinn sé búinn að semja
Það er ekki staðfest af neinum frá LFC að tilboð hafi verið samþykkt. Ég er ekkert stressaður yfir þessu — en það er alveg nóg af bulli á öðrum síðum og þessi hefur verið laus við það. Það er gagn af því að orð hafi skýra og almenna merkingu. Engin ástæða til að gjaldfella hvað “staðfest” þýðir.
Er þetta nógu öruggt fyrir þig, Páló?
https://www.thisisanfield.com/2025/06/florian-wirtz-transfer-fee-liverpool-agree-deal/
Eða þetta? Sett inn kl. 11:50 að breskum tíma að morgni föstudagsins 13. júní.
https://www.theguardian.com/football/2025/jun/13/liverpool-agree-116m-fee-with-bayer-leverkusen-for-florian-wirtz
menn eitthvað að tala um að versla back up aftarlega á miðjunni? Hvað með Sefan Bajcetic? er hann lengi frá eftir þessa aðgerð? Mjög spennandi ungur leikmaður sem gæti leist af þær stöður og komið inn í þetta einmitt aftar á miðjunni á þessu tímabili
Menn segja að Robertson vilji fara til Atletico
Það hefði nú þurft að segja mér það tvisvar í fyrra að báðir bakverðirnir okkar myndu leika í Madrid næsta haust… trúi þessu samt ekki með Robbo.
Ég trúi alveg að Robbo fari til Madrídar en á bágt með að trúa að Trent fari þangað.
Andy Robertson er og hefur verið einn minn uppáhalds leikmaður síðari ára og er úr mörgum að velja. Hann hefur gefið allt í þetta. En hans bestu ár eru klárlega búin. Væri samt leiðinlegt að sjá hann kveðja núna.
Atlético Madrid væri samt gott move fyrir hann.
Andy Robertson og Darwin Núñez til Atletico Madrid og á móti fær Liverpool Julian Alvarez?
Annars er markmaðurinn Vitezslav Jaros að fara á lán til Ajax. Vonandi fær hann að spila fullt af leikjum þar og þannig öðlast dýrmæta reynslu sem mögulega á eftir að nýtast Liverpool síðar.
Spurning hvort liðið fari í tígulmiðju eftir þessi kaup?
Tækifæri Jones mun minnka eftir þessi kaup,myndi ég halda,meira squad player.
En virkilega áhugaverð kaup og Kerkez inn og liðið er mun meira hraðfljótandi fram á við.
Vissulega svona gamla karls raus, en ég vona að Robbo fari ekki heldur skrifi undir stuttan samning. Það er mikilvægt að halda í ákveðna staðla og hafa menn í klefanum sem tryggja að nýir menn taki upp gamla siði sem hafa virkað vel. Þegar liðið yngist og breytist hratt er það alveg jafn mikilvægt og hvaða leikkerfi er spilað. Við sjáum það í EPL að jafnvel minnsti skortur á einbeitingu eða vinnuframlagi í leikjum getur leitt til taps.
– YNWA
Sammála, en á móti þá hefur Liverpool staðið sig vel í að endurnýja, Szoboszlai og McAllister góð dæmi um sigurvegara. Endo líka, var fyrirliði í Stuttgart og algjör fagmaður. Það þarf ekkert að efast Kerkez og Wirtz ef þeir koma, báðir leikmenn sem kæmu til að vinna.
Vona svo innilega þessi tvö kaup gangi í gegn. Elska að horfa á Kerkez spila og bara tilhugsunin um að bæta Wirtz í þennan hóp.
Af þeim sem er verið að orðað við brottför sæi ég sennilega mest á eftir Diaz. Markið sem hann skoraði á móti Argentínu um daginn er með þeim betri.
Áfram Liverpool og áfram Slot.
Slot leggur mikið upp úr því að leikmenn sætti sig við sitt hlutskipti í hópnum.
Staðan er bara þannig að verið er að kaupa vinstri bakvörð sem verður á undan Robertson í goggunarröðinni.
Visulega vonast maður til þess að Robbo sé tilbúinn í samkeppnina um stöðuna en hann gerir sér væntanlega grein fyrir því að allar líkur eru á að hann verði backup/rotation leikmaður.
Það eru nokkrir áreiðanlegir pennar sem vilja meina að Robertson vilji frekar fara til Atletico en vera nr. 2 hjá Liverpool.
Robbo er líka með umboðsmanninn Tyler Alexander Arnold sem er væntanlega að agitera fyrir þessum $kiptum.
Fabrizio Romano
? Milos Kerkez and Liverpool, the deal will happen. Very soon.
Nunez í viðræðum við Napoli.
Nunez fyrrir Osimhen skiptidíll?
” Real Madrid á Spáni, hefur nú sett á fullt aðgerð að sækja franska varnarmanninn Ibrahima Konate frá Liverpool á frjálsri sölu á næsta ári”
ÞAÐ ER SKO ALVEG Á HREINU AÐ EF EKKI SEMST VIÐ KONATE AÐ ÞÁ VERÐUR HANN SEDLUR Í SUMAR, HVERT SEM ER.
Helvítis þetta RM lið, skamstafað eins og stíflueyðir eða eitthvað álíka.
Vandamalið er bara, Konate getur hafnað ollum samningum við onnur felog, eins og eg skil þetta allt saman.
YNWA
Ef Konate neitar að skrifa undir nýjan samning þarf að gera honum ljóst að þá verði hann seldur í sumar. Það sé ekki í boði að láta samninginn bara renna út og fara frítt til RM. Vilji hann það frekar verði hann geymdur á bekknum þar til samningurinn rennur út. Miðjað við fjárútlátin undanfarið sýnist mér klúbburinn vel hafa efni á því að gera hann að fordæmi fyrir aðra sem vilja reyna svipaða hluti.
Kannski Chelsea leiðin sé ekki svo vitlaus. Enzo Fernández er í eigu þeirra öll hans bestu ár. Átta ára samningur. Og var það ekki svipað með Haaland?
“gera honum ljóst að hann verði seldur í sumar”
Klúbburinn stjórnar ekki alfarið ferðinni.
Á meðan Konate er samningsbundinn þá getur LFC ekki þvingað hann til að skrifa undir hjá einhverju liði sem vill borga fyrir hann í sumar.
Sé Konate búinn að ákveða að fara í RM frítt næsta sumar þá getur Liverpool ekkert gert til að stoppa það.
Helsta vopn Liverpool væri að hóta Konate því að frysta hann út samningstímann.
Slík ákvörðun kæmi miklu óorði á Liverpool
Chelsea leiðin er ekki beint sambærileg þar sem þetta eru einungis leikmenn sem stjórinn vill ekki nota sem eru utan hóps.
Ég var að meina langir samningar þegar ég talaði um Chelsea leiðina. En þetta truflar mig ekki. Konate kostaði £36m og ef það deilist niður á árin fimm sem hann samdi um að spila þá er það bara þannig. Hann ræður því hvort hann vill endursemja við Englandsmeistara eða reyna fyrir sér annarstaðar. Hann var peninganna virði á yfirstaðnu tímabili. Ef hann semur ekki í sumar þá er hinsvegar nauðsinlegt að finna staðgengil sem fyrst.
Frysta menn er aldrei góð lausn. Nema þeir hafi hreinlega neikvæð áhrif á liðið.
“Helsta vopn Liverpool væri að hóta Konate því að frysta hann út samningstímann.”
Það er nákvæmlega það sem ég er að segja Indriði. Ef leikmaðurinn neitar að framlengja samninginn er einfaldlega hægt að bjóða honum annað hvort að fara í sumar eða sitja á bekknum næsta vetur. Ef “vinir okkar” í RM virkilega vilja hann geta þeir einfaldlega borgað fyrir hann. En þeir gera það aldrei því þeirra módel virkar ekki þannig.
Þannig að klúbburinn verður einfaldlega að fara í störukeppni við leikmanninn.
Því miður fyrir Konate er hann alltaf að fara að tapa slíkri keppni, Liverpool getur fundið mann í hans stað en hann hefur ekki efni á því að sitja í frysti heilt keppnistímabil því þá verða RM löngu búnir að snúa sér að einhverjum öðrum bita.
“Slík ákvörðun kæmi miklu óorði á Liverpool”
Svona gerast bara kaupin á eyrinni, þetta er ekkert persónulegt, bara viðskipti. Klúbburinn verður að vernda sína hagsmuni og því miður er þetta leiðin til þess.
Skrítnar umræður.
Eftir að Klopp tók við þá lagði hann ofuráherslu á að sýna mönnum virðingu. Þannig væri best að byggja upp klúbb sem myndi ekki bara laða að sér bestu leikmenn heims heldur væri það vænlegra til árangurs. Hann var spot on með þessa hluti
Guði sé lof að hans andi svífur ennþá yfir vötnum Liverpool og ég vil ekki hugsa þá heimsku hugsun til enda ef Trent hefði verið frystur í vetur.
Ef leikmenn og klúbburinn ná ekki að semja þá er það bara þannig. Samningar renna út og vænn launapakki opnast. Ef Liverpool vill ekki, eða getur ekki, jafnað aðra þá er það jafnt ákvörðun klúbbsins eins og leikmannsinns.
Sú umræða sem er hér hjá sumum að ofan varðandi okkar allrabest Konaté er að mínu mati týpísk manutd umræða – enda vill enginn koma til þeirra eða þeir sem koma eru ekkert sérlega vandaðir gaurar sýnist manni.
Guð forði okkur frá því.
Jahérna, skal vel undirgangast það að vera kallaður heimskur þegar kemur að Liverpool sem ég hef fylgt í gegnum súrt og sætt í ca 40 ár. Öllu sárara er að vera líkt við þá Utd liða fyrir að viðra hugmyndir sem ekki hugnast öllum hér.
Joe Gomez, Jarell Quansah og Harvey Elliott til Newcastle og Alexander Isak í hina áttina. Síðan virðast þeir líka hafa áhuga á Jota.
Ætli þyrfti ekki að bæta þeim síðastnefnda við? Þá væri reyndar byrjunarlið okkar orðið svimandi. Og plís ekki Diaz burt!
Diaz langar burt. Einhverra hluta vegna.
Ef við tökum isak inn líka ásamt kerkez þá erum við komnir með eitt sterkasta lið í evrópu.