Diogo Jota látinn

Þær hörmulegu fréttir bárust fyrir nokkrum mínútum að Diogo Jota og bróðir hans hafi látist í bílslysi.

Það hefur ekki enn komið staðfesting á því frá félaginu en flest allir áreiðanlegir miðlar greina frá þessu.

Þetta eru hrikalega sorglegar fréttir og hugur okkar að sjálfsögðu með fjölskyldum þeirra og aðstandendum.

Við uppfærum ef frekari upplýsingar berast.

Uppfært Nú hefur Liverpool og portúgalska knattspyrnusambandið staðfest þessar sorgarfréttir af Diogo Jota og Andre Silva, bróður hans.

27 comments

  1. Maður er bara sleginn yfir þessum fréttum. Hræðilegt slys og hann er nýbúinn að gifta sig og átti þrjú börn, fædd ’21, ’23 og ’24. Yfirgengilega sorglegt í alla staði.

    9
  2. Manni bregður við að fá svona váleg tíðindi af dreng í blóma lífsins. Vil þakka Jota fyrir allar stundirnar á vellinum. Megi minning hans lengi lifa.

    10
  3. Maður hugsar auðvitað mest til ekkju hans og barna. Jota var klárlega yndislegur fjölskyldufaðir og góður maður. Þar fyrir utan var hann frábær liðsmaður Liverpool og þar er mikill missir. Við stuðningsmenn Liverpool gerðum miklar kröfur til hans þar sem við vissum um hæfileikana. Úff, þvílíkt kjaftshögg fyrir knattspyrnuheiminn.

    17
  4. Algerlega hræðilegt ?
    Er í sjokki, einn af mínum uppáhalds.
    Frábær fótboltamaður og víst enn betri persóna.
    Hvíl í friði. ?

    8
  5. Mikill missir að flottum strak og fjolskyldumanni i bloma lifsins.

    YNWA

    7
  6. Mér líður eins og ég hafi þekkt hann persónulega þegar ég les þessar hörmulegu fréttir. Mig langar að fara á völlinn og syngja með stuðningsmönnum lagið hans á næsta tímabili.

    Þvílíkur eðal knattspyrnumaður og stundirnar sem hann gaf Liverpool samfélaginu yfirveguðum mörkum sínum.

    Minningin lifir
    NR20

    11
  7. Pem nr.20 sem er einmitt númer Diegos!
    það væri óskandi að félagið myndi merkja þennan titil í minningu þennan frábæra leikmanns!

    Maður er gjörsamlega harmislegin eftir þær fréttir sem bárust í morgun.

    Og en segi ég hvenær er nóg , nóg hjá þessu félagi…

    YNWA! Jota!

    6
  8. Sælir félagar

    Skelfilegar fréttir og svo hörmulegt fyrir konu og börn og reyndar alla fjölskyldu Jota og bróður hans. Birfreiðar og bifreiða akstur eru hættuleg og verða mörgum að fjörtjóni þó þær séu af dýrari gerðinni. Svona hörmulegt slys skilur eftir sig djúp sár hjá þeim sem næst standa og votta ég aðstandendum mína dýpstu samúð. Hvíl í friði Jota YNWA og takk fyrir allt og allt.

    Það er nú þannig

    YNWA

    17
  9. Þetta er mikill harmur. Jota var leikmaður sem gat breytt gangi leikja, hann opnaði t.a.m. markareikning liðsins núna á þessu meistaratímabili.

    Jota var bersýnilega vandaður einstaklingur, farsæll fjölskyldumaður og skilur eftir sig stórt skarð hjá öllum sönnum knattspyrnuáhangendum.

    Blessuð sé minning hans.

    8
  10. Þegar ég frétti þetta í morgun þá var það eins og að náinn fjölskylduvinur hefði dáið.

    RIP Diogo

    7
  11. Ég vona svo innilega að kop.is taki sér tíma til að minnast Diogo Jota betur en ég.

    Í mínum huga var þetta drengurinn sem oftar en ekki kom svo vel ferskur inn (oft úr meiðslum) af bekknum og skoraði einmitt sín úrslitamörk, og nokkuð svo oft með skalla, svo lágvaxinn sem drengurinn var, en ekki síður með tilbrigðum einleiks, tvíleiks eða þríleiks innan markteigsins. Hann bjó til og/eða fann sín mikilvægustu færi, annað verður bara ekki sagt!

    Í afturábak skruni dagsins, var hann góði, brosmildi og heilsteypti drengurinn á okkar velli. Hann var t.d. heilsteyptur í stuðningi sínum við Diaz þegar mannræningjar rændu föður hans. Hann var yfirleitt brosandi, hann var liðsmaður, hann var LIVERPOOL liðsmaður heill og beinn. En ekki síst hann var fjölskyldumaður. Konan og börnin 3 voru honum efst í huga.

    Af lestri minninga dagsins var hann einmitt það “heill og beinn”. Við sáum þetta með stuðningi hans við Diaz, en það sem við sáum ekki var stuðningur hans við aðra pósta. Ég las í dag þakkir fá kvennabolta (gengur illa í þessum töluðum orðum að finna það aftur), þar sem honum var sérstaklega þakkað fyrir að mæta á staðinn og sýna stuðning sinn þar með í verki. “Að koma og vera til staðar” var lykilatriðið í þakklætinu í þeim pósti.

    YNWA!

    7
  12. Það er þyngra en tárum taki þegar ungir menn í blóma lífsins falla frá, tala nú ekki um þegar það gerist með svona sviplegum hætti. Erfitt að ímynda sér þá angist sem fjölskylda þeirra bræðra glímir nú við. Fótbolti verður hjóm eitt á svona stundum.
    Það kveður við svipaðan tón í yfirlýsingum sem stjórnendur LFC hafa sent frá sér, þar er lýst heilsteyptum fjölskyldumanni sem lét gott af sér leiða. Fyrirmynd innan vallar sem utan.
    Hvíl í friði Diogo og takk fyrir gleðistundirnar á vellinum. YNWA

    2

Leave a Reply to Jón Bjarnason Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Hafnað boði í Luis Diaz