Einsog margir lesendur ættu að vita er ég annar eigandi [veitingastaðarins Serrano](http://www.serrano.is).
Allavegana, við á Serrano erum að opna nýjan og glæsilegan veitingastað á laugardaginn, klukkan 10. Þessi staður er á nýrri ESSO stöð við Hringbraut, við hliðiná BSÍ.
Ég hvet alla til að koma og prófa matinn. Við verðum með 2 fyrir 1 á burritos og quesadillas bæði laugardag og sunnudag. Á Serrano seljum við hollan og góðan skyndibita með mexíkósku ívafi.
Endilega kíkið við á nýja staðinn. 🙂
Ég mæti klárlega í þynnktu burrito uppúr hádegi! 🙂
Til hamingju með staðinn!
Til lukku með nýja staðinn. Maður kíkir við, við tækifæri, engin spurning. Kemst samt væntanlega ekki um helgina. En það kemur önnur helgi eftir þessa helgi :biggrin:
Djöfulsins klassssi, ég er í kvennó svo það tekur mig svona 5 min labba þangað! 😀 Ég á klárlega eftir að éta þarna svona 2-3 í viku minnst 😉 til hamingju með þetta !