Kop.is hefur borist tilkynning sem við birtum hér með glöðu geði:
Heimavöllur stuðningsmanna Liverpool á Akureyri!
Eins og flestir Liverpool-stuðningsmenn á Akureyri vita þá höfum við verið án heimavallar í dálítinn tíma. Nokkrir okkar hafa verið að skoða þá möguleika sem eru í boði hér í bæ og höfum við komist að niðurstöðu.
BRYGGJAN, Strandgötu 49, verður okkar heimavöllur út þetta tímabil.
Við komum til með að hafa tjald og skjávarpa bæði í sal að austan og eins í salnum á 2. hæð. Á BRYGGJUNNI er boðið upp á frábærar veitingar og mjög góða þjónustu en þess má geta að BRYGGJAN verður með tilboð á mat og drykk fyrir okkur á meðan leikir fara fram. Leikurinn á móti Man City verður vígsluleikur okkar þarna og það er um að gera að fjölmenna og styðja okkar menn til sigurs á sunnudaginn kl. 12:00!
Sjáumst á BRYGGJUNNI á sunnudag. Come on you REDS!
Þar hafiði það, norðlendingar. Bryggjan sér um ykkur.
magnað, ég mæti pottþétt á þennan stað.
Ljómandi mæti næstu helgi til að taka þetta út.
Bestu rif á Íslandi þó víðar væri leitað.