Hér er þáttur númer 130 af Podcasti Kop.is!
Stjórnandi: Einar Matthías.
Gestir: SSteinn og Maggi.
Á dagskrá í dag var slysið gegn Bournemouth um helgina, tekið fyrir fréttir tengdar Liverpool og undir lokin spáð í spilin fyrir leikinn gegn West Ham.
MP3: Þáttur 130
Mér fannst Emre Can vera fyrstur í liðinu að gefa eftir í pressunni….virkaði kærulaus. Sá reyndar ekki seinni hálfleikinn eftir 2-1.
Fá Fonte í janúar .. kostar slikk, með mikla og góða reynslu .. er á fínum aldri fyrir halfcent, ná síðustu góðu árum hans.
http://fotbolti.net/news/07-12-2016/fonte-segist-ekki-fa-nyjan-samning-hja-southampton
Tek undir það að West Ham er örugglega eitt besta liðið til að mæta eftir svona ömurlegan leik eins og við áttum um helgina. Var á vellinum á West Ham – Arsenal, þeir voru átakanlega lélegir. Sköpuðu ekkert framávið, verður vonandi eins á sunnudaginn.
Andy Carroll er mættur aftur í sína 3 leiki áður en hann meiðist í 3 mánuði. Hann hefur ekkert spilað síðan í ágúst. Vonandi verður hann sprækur (alltaf haldið upp á hann)…en við verðum sprækari.
Spái 4-3 í þriller.
Vil minna á blaðamann sem varaði við Klopp að því leitinu til að svona sjötta hvern leik kæmi alltaf eitthvað óvenjulegt upp og fólk klóraði sér í hausnum og spurði sig “Hvað var þetta?”. MInnir að ég heyrði Kristján Atla segja þetta í brodkasti.
Ég vona leikurinn gegn Bormouth hafi verið einn af þessum “hvað var þetta leikurinn”.
Frábærar frettir að Matip hefur akveðið að fara ekki i afrikukeppnina.