Fullkomlega afleitur seinni hálfleikur gegn Man City og ljóst að Liverpool er komið ó nokkuð slæma krísu innanvallar og hugarfar leikmanna bara hreint ekki gott. Framundan eru stjóralausir Chelseamenn í enn meiri krísu. Slæm vika fyrir breska þjálfara og núna er búið að reka 13 stjóra á tímabilinu, apríl rétt að byrja!
Arsenal bíður svo um helgina, guð blessi okkar menn í þeim leik með álíka spilamennksu og núna um helgina.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Miðbar / Jói Útherji / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 421
það er nú bara mjög erfitt að átta sig á því hvernig þessi leikur mun fara gegn Chelsea?
það er bara mjög langt síðan maður hefur verið eins lítið spenntur yfir leikjum Liverpool og núna.
tap í næstu tveimur leikjum mun þýða að Liverpool er endanlega úr leik hvað varðar top fjóra.
Klopp búinn að vera lengst, of lengi líklega.
Hipp hipp eins og æfinlega fyrir alla leiki þá er glasið mitt hálf fullt og þannig er það líka fyrir leikinn við Chelsea. Við vinnum þennan leik 1-3 ef ekki þá skal ég éta sokk minn einu sinni en þetta tímabilið en þeir eru að verða býsna mörg sokkarnir sem ég hef orðið að japla á í vetur.