Southampton-sunnudagur framundan

Í æsku beið maður eftir því að jólin kæmu, en núna á fullorðinsárum þá hefur í staðinn tekið við biðin eftir því að landsleikjahléum ljúki. Og viti menn: síðasta hléinu á árinu er lokið! Næsta hlé er í mars, en í augnablikinu er mars í órafjarlægð frá okkur.

Góðar fréttir fyrir okkur áhangendur, en þetta þýðir auðvitað slatta leikjaálag fyrir leikmennina sjálfa. Það er útlit fyrir það að okkar menn muni núna spila á 3-4ra daga fresti næstu tvo mánuðina eða rúmlega það. Einu undantekningarnar eru bilin á milli leikjanna við West Ham þann 29. des og svo gegn United á Anfield 5. janúar annars vegar, og svo kemur 9 daga bil þangað til okkar menn heimsækja Forest. En inn í þessi bil geta bikarleikir vel ratað, svo mögulega fá okkar menn fyrst einhverja smá hvíld á tímabilinu 1. feb – 15. feb. Meira að segja það er ekki tryggt, því ef þeir ætla að fá einhverja hvíld þar þá verða þeir líka að lenda í einu af 8 fyrstu sætunum í CL deildinni sem nú er í gangi. Semsagt, nóg af leikjum framundan, og nóg af tækifærum fyrir leikmenn til að meiðast.

Andstæðingarnir

Um tengsl Liverpool og Southampton þarf ekki mikið að ræða, enda liggur við að það sé sérstök lestarlína á milli fyrir leikmennina sem koma frá Southampton til Liverpool (aðeins minna um að þeir fari í hina áttina). Clyne, Lallana, Lovren, Mané, van Dijk… bara svo nokkrir séu nefndir.

Suðurstrandarliðið kom upp í úrvalsdeildina í vor en hafa kannski ekki verið að setja nein met í stigasöfnun það sem af er. Niðurstaðan það sem af er eru 4 stig í sarpinn, einn sigur í deild og það var meira að segja bara í síðustu umferð gegn Everton. Þar fyrir utan gerðu þeir 1-1 jafntefli við Ipswich á heimavelli.

Meiðslalistinn þeirra er ekkert nálægt því sem við höfum mátt búa við á köflum, en það gæti samt alveg munað um Aaron Ramsdale og Jan Bednarek sem verða líklega báðir frá á morgun. Er gott fyrir okkur að Ramsdale verði ekki í markinu? Það er góð spurning, við erum nú svosem vön því að nánast allir markverðir andstæðinganna sæki innblástur frá Buffon, Dino Zoff og Lev Yashin í leikjum gegn okkar mönnum, en falli svo í meðalmennsku strax í næsta leik á eftir. Búum okkur a.m.k. undir að sú verði raunin í þessum leik, en það eru líkur á að Alex McCarthy verði í marki hjá þeim í þetta skiptið.

Okkar menn

Eins og gengur voru allnokkrir Liverpool leikmenn á ferð og flugi í landsleikjahléinu, en sem betur fer virðist enginn þeirra hafa meiðst á meðan á því stóð. Nokkrir þeirra leikmanna sem voru meiddir eru nálægt því að koma til baka, þá sérstaklega Alisson, Trent og Elliott. Undirritaður á þó ekki von á því að sjá neinn þeirra í byrjunarliði á morgun, möööööögulega verður einhver þeirra á bekk. Það er einfaldlega engin ástæða til að henda Alisson t.d. of snemma út í harkið, ekki miðað við hvernig Kelleher (sem á afmæli í dag!) hefur verið að standa sig. Eins er ekkert að því að láta Bradley byrja þennan leik, og eiga þá Gomez inni. Jota og Chiesa verða enn frá um sinn, ég efast um að við sjáum þá gegn City um næstu helgi, en vonandi ekki mikið seinna en í leiknum þar á eftir gegn Newcastle.

Suður-Ameríkumennirnir verða sjálfsagt allir pínku lúnir eftir ferðalögin í vikunni, og það væri gott að hlífa þeim eins og hægt er, en líklega verður þó a.m.k. einn þeirra að byrja.

Við skulum því giska á þessa uppstillingu:

Kelleher

Bradley – Konate – Virgil – Tsimikas

Gravenberch – Jones

Salah – Szoboszlai – Gakpo

Nunez

Það hvort Kostas eða Robbo byrji er alveg 50-50, þar gæti spilað inn í hvorn þeirra Slot ætlar að byrja með í miðri viku gegn Real. Eins gætum við alveg séð Díaz í níunni í stað Nunez, velur aðeins á því hvernig flugþreytan hefur leikið þá.

Auðvitað er þetta ekkert annað en skyldusigur. Liverpool er í 1. sæti, Southampton í því 20. En við vitum vel að ef menn labba inn á völlinn og halda að það þurfi ekkert að hafa fyrir hlutunum, þá fer illa. Vonandi nær Slot að mótívera okkar menn til að koma í veg fyrir að menn ofmetnist.

Svo gæti verið gaman að sjá einhverja kjúklinga á bekknum. Á æfingum í vikunni hjá aðalliðinu sáust andlit eins og Jayden Danns, Rio Ngumoha og fleiri, en reyndar er lang líklegast að þeim verði hlíft í þessum leik og að við gætum hugsanlega séð einhvern þeirra dúkka upp í leiknum 18. desember í bikarnum – en sá leikur er einmitt líka gegn Southampton.

Að venju þá biður maður bara um þrennt:

1. 3 stig
2. Leikmenn sleppi við meiðsli
3. Halda hreinu

og þá fyrst og fremst atriði nr. 1 og 2.

Til vara þá væri gaman að sjá hagstæð úrslit í leikjum dagsins í dag, þá sérstaklega í leiknum 17:30, en auðvitað þurfa okkar menn bara að hugsa um sjálfa sig, sína frammistöðu, og að standa sig í næsta leik. Allt annað er bara bónus.

KOMA SVO!!!

21 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Fjandinn hafi það, getur einn maður skift svona miklu mali, er manc bara miðlungslið an Rodri.

    YNWA

    3
      • Hrun, en samt í öðru sæti. Tottenham voru líka rosalegir. Mikið væri gaman að ná í öll stigin á morgun.

        2
  2. Klopp hlýtur að vera brjálaður og spyrja sig hversvegna gerðist þetta aldrei í minni tíð. Ótrúlegt hrun hjá City, Guardiola vantar greinilega samkeppnishvatan frá Klopp.

    2
  3. Mesta hrun City og Pep frá upphafi að verða staðfest. Pep hefur aldrei tapað 5 í röð

    5
  4. Já, varaplanið er að ganga upp. City spilar í þunglyndislegum takti, hægir, þreyttir og vonlausir eitthvað. Getur veirð að það muni svona óskaplega mikið um eitt stk. Rodri að liðið hrynji eins og spilaborg? Er það öll snilldin hjá Pep?

    Nú vonar maður að Frísneska skynsemin mæti til leiks á morgun. Ekki missa haus. Ekki missa haus. Skila þremur stigum og engin meiðsli.

    3
  5. Ja hérna hér!!!

    Laugardagsnammið í boði Kulusevski og Maddison! Ég held að ég fái mér annan mola…

    3
  6. Guardiola klókur að krækja sér í samning núna. Mun taka með sér feitan pening þegar City reka hann.

    4
  7. Gaman að sjá City gera upp á bak.

    En þetta er sennilega ekki gott fyrir okkar menn. Munum mæta mjög særðu dýri og ég sé City því miður ekki tapa 4 deildarleikjum í röð. Þannig hættan er sú að hlutir fari að spilast upp í hendur á Arsenal.

    Vonum að okkar menn standist raunina næstu helgi.

    En til að byrja með skildusigur á morgun!

    11
      • nefnilega, sé ekki hvernig þetta ljósbláa lið á að sigra á Anfield.

        Menn geta talað um sært dýr og að þeir tapi ekki svona mörgum leikjum í röð, en stóra vandamálið er það að þeir hafa ekki sýnt sannfærandi frammistöðu í deildinni síðan í ágúst.

        Vissulega unnu þeir eins marks sigur gegn Southampton, Brentford, Wolves og Fulham. Engin af þeim frammistöðu getur talist sannfærandi og oft höfðu þeir heppnina með sér.

    • Ekki gott?? Uuu jú!
      Við klárum leikinn á morgun 1-4 og þeir koma skíthræddir á Anfield! Held að það sé einmitt ekki betri tímapunktur að mæta þeim. Grátandi og lafhræddir með ekkert plan

  8. Ef mögulegt ÁTTA STIGA FORSKOT á næsta lið hvetur menn ekki til dáða, þá veit ég ekki hvað þarf til. nú vona ég bara að City vinni meistaradeildarleik í vikunni, því líkurnar eru litlar á 7 leikjum í röð án sigurs!

    Treystum á að óþreyttur Salah skori í bæði mörkin á vellinum og Diaz klári dæmið 0-3.

    1
    • Mér finnst að Curtis Jones ætti að smella marki um næstu helgi. Hann er búinn að vera líklegur undanfarið.

      1
  9. City ríða sér á slig
    safna döprum leikum
    Áfram sækjum 8 stig
    ofar þessum shjeikum

    Koma svo.
    YNWA

    6

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Gullkastið – Gjafaleikur Happatreyjur.is