Þá er hinn eitilharði Nat Phillips genginn til liðs við WBA eftir að hafa átt stuttan (8 ár eða svo) feril með Liverpool, þar af allnokkrum sinnum á láni hjá öðrum félögum. En í þau skipti sem hann var hjá Liverpool gaf hann allt í leikinn, og yfirgefur klúbbinn sem “legend”. Tímabilið 2020-2021 mun að eilífu verða greypt í minni okkar, þar sem hann átti þátt í því að meiðslahrjáðasta lið Liverpool síðustu áratuga náði 3ja sæti.
Hver er ykkar helsta minning af Nat Phillips? Hendið því endilega í athugasemdirnar hér fyrir neðan.
Þessi sala þýðir einhverjar 3 millur í kassann, og líkur á að veskið hjá Edwards og Hughes eigi eftir að fitna enn meira því Jarell Quansah er líklega að fara til Bayer á einhverjar 30 millur plús 5 í klásúlur. Téð veski mun nú reyndar þynnast talsvert á móti þegar Milos Kerkez verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins, væntanlega á morgun ef trúa má slúðrinu.
Annars er orðið laust, svo ef þið hafið heyrt eitthvað áhugavert slúður er um að gera að deila því.
Hvað ætti Slot að gera varðandi Konate, nokkuð ljóst að hann ætlar sér frítt til real á næsta ári. Sagt að hann hafi neitað nýjum samning.
Ég vona að við fáum þennan Guehi frá Palace og Konate sitji á bekknum allt tímabilið ef hann ætlar sér ekki að skrifa undir, eða bara bjóða real að fá hann ódýrt núna í sumar, betra en að missa hann frítt.
Konate og Trent skyggja aðeins á þennan glugga en ef þeir vilja spila fyrir real þá bara verði þeim að góðu, vil bara ekki missa þá báða frítt.
https://www.youtube.com/watch?v=5FxVYmN_stw
Þar sem orðið er laust þá væri gaman að sjá færslu til að gefa fólki meðmæli til að gera í Liverpool þá daga sem eru ekki leikir.
gefa fólki meðmæli hvað skal gera í Liverpool aðra daga en leikdaga 🙂
https://kop.is/liverpoolborg/
Það sem er undir “Liverpool-borg” er frekar gamalt og mætti uppfærast það sem á við
Konate er lítill kall. Var nú ansi óstöðugur i byrjun og meiddist eitthvað. Held að það sé ágætt að kveðja hann og fá smá monní,ekki veitir af. Hughes og þeir talnanördarnir eru örugglega með lista með nöfnum sem okkur aðdáendum hefur ekki dottið í hug. Engin er stærri en LFC.
Konate er svo langt frá því að vera lítill karla, hörku góður varnamaður sem spilaði flest leiki í vetur í liðinu okkar sem vann ensku deildinni og fór langt í flestum keppnum og því er óþolandi að tala kappann niður. Við höfum ekki hugmynd um hvað Liverpool eru að bjóða honum eða hvað hann vil í laun og þess fyrir utan þá er hann enþá leikmaður Liverpool og við sem aðdáendur styðjum okkar menn en gerum ekki lítið úr þeim með niðrandi skrifum hér á kop.
Ætla aðeins að geyma það að dæma Konate strax, þótt ég sé en með óbragð yfir TAA.
Það eru nokkrir púnktar sem láta mig fá þá hugmynd að leyfa honum að njóta vafans í bili.
Hann hefur verið óstöðugur sínum leik útaf meiðslum.
Það sem ég les út úr þessum fréttum er að hann vilji fá samning eins og lykilmaður á meðan Liverpool er að bjóða honum samning með áherslu á frammistöðubónusa en ekki föst há grunnlaun.
Og það er það sem triggeraði hann í þessu öllu. Konate hefur líka talið sig hafa verið mjög þolinmóðan meðan Dijk og Salah dílarnir voru kláraðir og hans mál þá ekki sett í asap hjá félaginu.
Þannig ef ég skil þetta rétt, þá er aðalmálið hlutverk hans sem leikmann í lðinu.
Hann er 26 og 27 ára á næsta ári (Tímabili)
Svo fyrir honum er næsti samningur lykil samningur og mögulega sá stærsti sem hann á völ á að fá á sínum ferli.
þannig nú er staðan bara sú hvort Liverpool horfi á hann sem slíkan leikmann,
Mér finnst liklegast að Konate fái ekki teljanlwga betri samning en þann sem er á borðinu. Regluleg meiðsli og regluleg varnarmistök gera það að verkum að við ættum að geta fengið annan í staðinn sem reynist okkur betur. Konate er flottur leikmaður en ekki úr efstu hillu að mínu mati. Eg reikna með að hann verði eitt ár í viðbót, nema ef gott verð fáist fyrir hann. Auðvitað á að spila honum þótt hann neiti að skrifa undir samning. Í samanburði við uppalinn Trent sem virtist vilja ekkert heitar en að verða goðsögn og fyrirliði Liverpool, þá skil ég vel gremju sumra stuðningsmanna gagnvart Trent en ekki gagnvart Konate.
Akkúrat. Þarna virðast FSG vera samála þér. og þess finnst mér þetta Konate mál blasa öðruvísi við mér eins og ég skil þetta en TAA. ánn þess að ég hafi grafið hvað Liverpool bauð honum nkl vs Real.
Ef ég tek allt óstaðfest en þær tölur sem hægt er að grafa upp á netinu og örugglega hægt að plúsa og mínusa við eitthvað að þessu.
það er talið að Konate sé með um 70k núna og talað er um að hans vilji sé að fara upp í 200k eða 175-180% hækkun
tek nokkra miðverði sem ég sá í fljótu bragði
Saliba 190k
De ligt – 190k
maquire 190k
Stones – 250k
tek það aftur fram að ég hef ekki séð neina launaseðla.
þetta er það sem svokallaðir sérfræðingar í fréttum eru að setja inn.
gæti fundið aðrar tölur plús/mínus eitthvað.
en við erum allavega með grunn til að vinna með þarna.
og er þetta örugglega eitthvað í áttina.
Og ég geri ráð fyrir að þetta sé allt tölur ánn bónusa.
Og allt síðustu samningar sem þeir gera nú þekki ég ekki ártölin á þeim.
þannig að þetta flækir samningstöðu Liverpool, þegar klúbbar sem hafa verið í rugl með rekstur er að bjóða mönnum 190k De ligt sem fyrsta samning.
það sjá það allir langavegu að hann er ekki þess virði.
Og hefur þetta verið aðalsmerki Liverpool hvað þeir hafa haldið vel utan um samnings mál.
en svo koma leikmenn thiaga minnir mig að hafa haft góð laun. og Wirtz er keypt inn sem stórstjarna og framveigis.
þetta býr til að aðrir vilji nú fá eitthvað fyrir sinn snúð.
og Liverpool mögulega metur það þannig að þeir geti fengið sambærilegan varnarmann á mun lægri launum fyrsti samningur inn fyrir Konate.
því hann verður mjög launahár ef þessar tölur temma.
En sjáum hvernig þetta endar allt.
en svo ég endi þetta mér sýnist ekki að hann sé löngu ákveðin í að fara eins og TAA var
Á meðan VVD er að fá 350 á viku þá er Konate að fá 70. Munurinn allt að fimmfaldur.
Í þessum samanburði eru kröfur Konate um að fara upp í 200 ekki óeðlilegar.
Það verður að hafa í huga að Konate myndi auðveldlega fá þessi laun hjá Real og PSG.
Vegna meiðslasögu Konate get ég skilið að LFC séu tregir við að fara svo hátt. Þeir áttu að klára þennan díl sl. sumar.
Út af VVD samningum og þeirri staðreynd að samningur Konate er að fara inn á lokaorð þá eru LFC komnir í klemmu.
Ódýrasti kosturinn að mínu mati væri að ganga að kröfum Konate, að öðrum kosti munu PSG eða PM hirða hann frítt næsta sumar.
fara inn á lokaÁR
Ég held Konate vilji einfaldlega betri samning. Hann er kannski að horfa til fyrirliðans sem er að fá fimm sinnum hærri laun en hann. Og líka að þetta sé stóri samningurinn á hans ferli. Eg stórefa hann sé að reyna að losna frá Liverpool. En ef hann getur tvöfaldað launin sín hjá öðru liði þá skil ég vel hann taki eitt ár til viðbótar og fari á frjálsri sölu. Mér finnst bara ekkert að því. Gott fyrir hann og gott fyrir Liverpool, sem þar þá að kaupa í hans stöðu í sumar.
Talað um læknisskoðun í dag hjá Kerkez ?
Guehi næstur ? ég vona það.
Sælir félagar
Ég þakka Nat fyrir hans framlag til Liverpool á erfiðum tíma og þar skilaði hann sínu besta framlagi til klúbbsins og á þakkir skilið. Hvað Konate varðar þá er staða hans erfið og einnig staða LFC gagnvart honum. Liverpool býður honum örugglega það sem þeir telja að sé hans virði og staða hans verður enn veikari ef Guehi (hvernig er þetta borið fram?) kemur. Eins og Hjalti bendir á þá er Konate góður leikmaður en ekki afburða maður. Hann hefur notið þess að spila með besta varnarmanni í heimi og væri nokkuð örugglega ver staddur án hans.
Ég er ekki viss um að Konate sé með einhvern RM díl upp á vasann en ef hann vill ekki semja þá er best að selja hann og ef hann verður ekki seldur er auðvitað bull að spila honum ekki þá leiki sem á þarf að halda. Best væri að hann semdi og að hann fengi samning sem honum finnst ásættanlegur. Það kæmi svo í ljós ef Guehi kemur hvor þeirra yrði framar í goggunar röðinni. Það er líka ljóst að Liverpool þarf að finna hægri miðvörð fyrir Virgil en það er held ég borin von að finna mann af hans gæðum í þá stöðu. En hvernig sem allt veltist og snýst þá sýnist mér að klúbburinn ætli sé miðvörð og sóknarmann í sumar ofan á frábæran árangur í glugganum fram að þessu.
Það er nú þannig
YNWA
Ánn þess að ætla taka yfir hérna.
Þá er það alveg rétt hjá ykkur. Að Konate sé að horfa til launa t.d. dijk sem spilar sama stað á vellinum. Og svo er ég samála Sigkarl, ég held að Konate sé ekki með neitt RM tilboð í vasanum. Real er pottþétt meira að horfa til Saliba í þeim efnum.
og þess vegna met ég það að Konate dæmið snúist bara um laun.
en vissulega stór biti ef hann losnar og félög eins og Real myndu skoða það. en efast um að þeir hafi verið í umræðu við hann af sama leveli og TAA. sem er mun meira vörumerki sem leikmaður og það er Real að horfa til þar.
við gætum séð fléttu að Konate fari frítt eftir næsta og Guéhi komi inn þá. þótt ég haldi að við verðum að finna CB.
og umræðan um 3 hafsentakerfi myndi hækka ef Guéhi kæmi. myndi ég halda.
allaveg erum við að horfa á gjörbreytt Liverpool lið.
svo ég endi þetta á Nat Phillips!
þá vona ég að hann muni eiga frábæran feril það sem eftir er. hann á það skilið..