Tilboði í Wirtz samþykkt (Staðfest)

Loksins er Liverpool að landa alvöru stórlax því núna í morgun eru fréttir þess efnis að 100m tilboði í Florian Wirtz hafi verið tekið sem geti hækkað í allt að 116m með bónusum. Bara þannig gæti hann orðið dýrari en t.d. Caisedo sem við misstum af til Chelsea í fyrra.

Þetta er fáránlega spennandi leikmaður sem hefur verið leikmaður tímabilsins undanfarin tvö ár í Þýskalandi og er ennþá bara 22 ára. Besti vinur hans er þegar búinn að semja við Liverpool þannig að hann verður vonandi fljótur að aðlagast enska boltanum.

Frábært að þetta sé að komast á hreint þó læknisskoðun sé eftir og væntanleg þegar hann snýr aftur úr fríi. Ekki að ég held að maður myndi nú aðeins hliðra til fríinu sínu fyrir svona…

20 Comments

Skildu eftir athugasemd
    • Ansi ólíkir knattspyrnumenn.

      Ef líkja ætti Wirtz við fyrrum LFC leikmann væri það Coutinho þó nærtækasti samanburðurinn væri auðvitað De Bruyne

      4
  1. Sælir félagar

    Þetta eru frábær tíðindi og svo stenst hann vonandi læknis skoðun og allt klárt. Þá er bara Kerkes eftir af þessum þremur sem byrjað var á og svo framherji (9) og “bakkup” fyrir Grav ásamt miðverði ef Quansa fer til BL. Maður er helsáttur þó ég hefði viljað fá Cherki líka. En maður fær nú ekki allt sem maður vill fá 🙂

    Það er nú þannig

    YNWA

    7
    • spurning hvort Szoboszlai muni ekki spila aftar á vellinum og rótera með Mac Allister og Gravenberch.

      Cherki hefur orð á sér fyrir slæmt “attitude” og maður heyrir að Lyon vilji losna við hann.

      4
    • Það er eitt sem við verðum að taka saman, því núna eru menn að spá í að kaupa Wirtz á þessa upphæð meðan Cherki kostar mun minn.

      Wirtz er mjög ofarlega í % tölum og slíku þegar kemur að pressu og sinna annari varnarvinnu. hann er ekki alveg eins duglegur og Sobo en mjög duglegur!

      En Cherki er mjög latur og takmarkaður í að sinna þessari vinnu á vellinum.
      er slappur í að pressa.
      en vissulega frábær í sókn og í að rekja bolta
      Cherki gæti þess vegna sem næsti Grealish hjá City mönnum en líka R.Mharez sem var flottur í sóknarleiknum hjá þeim.

      Þannig að ég er nokkuð viss um að Cherki sé plan B hjá City en Wirtz hafi verið á undan.
      þar sem við erum að fá mun heilsteyptari leikmann.

      Svo við ættum bara að gleyma þessum Cherki gæja! hann hefði aldrei slegið í gegn á Andield 🙂

      6
      • Cherki ku vera búinn að skrifa undir hjá City.

        Hefur vissulega hæfileika, en er meingallaður að öðru leyti.

        Sá verður fjótur að fara í fýlu fái hann svipaða meðferð og Grelish.

        3
  2. Þetta eru algjörlega geggjuð kaup, svo bara Kerkes og isak ? gleðilegan fössara ??

    5
  3. Hljómar afbragðsvel. Það stefnir i að Liverpool verði sterkir kandidatar í baráttunni um titla á næsta tímabili, jafnvel sterkari kandídatar en á því nýliðna, serstaklega ef við fáum þá sem eru líklegir til viðbótar.

    4
  4. Þetta eru sannarlega góðar fréttir.

    Ég ætla að stinga uppá því við síðuhaldara að …(staðfest) sé einungis notað þegar klúbburinn hefur staðfest undirskrifaðan samning og myndir eru komnar af leikmanni. Allt í lagi að segja …(99% prósent) — en fréttin er ekki staðfest. Hún er bara fengin frá almennt áreiðanlegri heimild, en ekki frá frumheimild.

    -YNWA

    6
  5. menn eitthvað að tala um að versla back up aftarlega á miðjunni? Hvað með Sefan Bajcetic? er hann lengi frá eftir þessa aðgerð? Mjög spennandi ungur leikmaður sem gæti leist af þær stöður og komið inn í þetta einmitt aftar á miðjunni á þessu tímabili

    1

Leave a Reply to Indriði Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Wirtz er Í ALVÖRUNNI að koma!