Loksins er Liverpool að landa alvöru stórlax því núna í morgun eru fréttir þess efnis að 100m tilboði í Florian Wirtz hafi verið tekið sem geti hækkað í allt að 116m með bónusum. Bara þannig gæti hann orðið dýrari en t.d. Caisedo sem við misstum af til Chelsea í fyrra.
Þetta er fáránlega spennandi leikmaður sem hefur verið leikmaður tímabilsins undanfarin tvö ár í Þýskalandi og er ennþá bara 22 ára. Besti vinur hans er þegar búinn að semja við Liverpool þannig að hann verður vonandi fljótur að aðlagast enska boltanum.
Frábært að þetta sé að komast á hreint þó læknisskoðun sé eftir og væntanleg þegar hann snýr aftur úr fríi. Ekki að ég held að maður myndi nú aðeins hliðra til fríinu sínu fyrir svona…
Geggjað!
Get ekki beðið eftir að næsta tímabil byrji.
YNWA
Okkar næsti Bobby Firmino!!
Ansi ólíkir knattspyrnumenn.
Ef líkja ætti Wirtz við fyrrum LFC leikmann væri það Coutinho þó nærtækasti samanburðurinn væri auðvitað De Bruyne
Sælir félagar
Þetta eru frábær tíðindi og svo stenst hann vonandi læknis skoðun og allt klárt. Þá er bara Kerkes eftir af þessum þremur sem byrjað var á og svo framherji (9) og “bakkup” fyrir Grav ásamt miðverði ef Quansa fer til BL. Maður er helsáttur þó ég hefði viljað fá Cherki líka. En maður fær nú ekki allt sem maður vill fá 🙂
Það er nú þannig
YNWA
spurning hvort Szoboszlai muni ekki spila aftar á vellinum og rótera með Mac Allister og Gravenberch.
Cherki hefur orð á sér fyrir slæmt “attitude” og maður heyrir að Lyon vilji losna við hann.
Það er eitt sem við verðum að taka saman, því núna eru menn að spá í að kaupa Wirtz á þessa upphæð meðan Cherki kostar mun minn.
Wirtz er mjög ofarlega í % tölum og slíku þegar kemur að pressu og sinna annari varnarvinnu. hann er ekki alveg eins duglegur og Sobo en mjög duglegur!
En Cherki er mjög latur og takmarkaður í að sinna þessari vinnu á vellinum.
er slappur í að pressa.
en vissulega frábær í sókn og í að rekja bolta
Cherki gæti þess vegna sem næsti Grealish hjá City mönnum en líka R.Mharez sem var flottur í sóknarleiknum hjá þeim.
Þannig að ég er nokkuð viss um að Cherki sé plan B hjá City en Wirtz hafi verið á undan.
þar sem við erum að fá mun heilsteyptari leikmann.
Svo við ættum bara að gleyma þessum Cherki gæja! hann hefði aldrei slegið í gegn á Andield 🙂
Cherki ku vera búinn að skrifa undir hjá City.
Hefur vissulega hæfileika, en er meingallaður að öðru leyti.
Sá verður fjótur að fara í fýlu fái hann svipaða meðferð og Grelish.
Þetta eru algjörlega geggjuð kaup, svo bara Kerkes og isak ? gleðilegan fössara ??
Veit ekki afhverju það komu spurningamerki, en allt í gotti
Hljómar afbragðsvel. Það stefnir i að Liverpool verði sterkir kandidatar í baráttunni um titla á næsta tímabili, jafnvel sterkari kandídatar en á því nýliðna, serstaklega ef við fáum þá sem eru líklegir til viðbótar.
Það hefur verið poddari af minna tilefni en þessu!!:)
YNWA
Sammála
Já væri svo til
Næstum nauðsyn..
Þetta eru sannarlega góðar fréttir.
Ég ætla að stinga uppá því við síðuhaldara að …(staðfest) sé einungis notað þegar klúbburinn hefur staðfest undirskrifaðan samning og myndir eru komnar af leikmanni. Allt í lagi að segja …(99% prósent) — en fréttin er ekki staðfest. Hún er bara fengin frá almennt áreiðanlegri heimild, en ekki frá frumheimild.
-YNWA
það er verið að staðfesta að tilboðið hafi verið samþykkt en ekki að leikmaðurinn hafi skrifað undir. Stendur hvergi í færslunni að leikmaðurinn sé búinn að semja
Það er ekki staðfest af neinum frá LFC að tilboð hafi verið samþykkt. Ég er ekkert stressaður yfir þessu — en það er alveg nóg af bulli á öðrum síðum og þessi hefur verið laus við það. Það er gagn af því að orð hafi skýra og almenna merkingu. Engin ástæða til að gjaldfella hvað “staðfest” þýðir.
Er þetta nógu öruggt fyrir þig, Páló?
https://www.thisisanfield.com/2025/06/florian-wirtz-transfer-fee-liverpool-agree-deal/
Eða þetta? Sett inn kl. 11:50 að breskum tíma að morgni föstudagsins 13. júní.
https://www.theguardian.com/football/2025/jun/13/liverpool-agree-116m-fee-with-bayer-leverkusen-for-florian-wirtz
menn eitthvað að tala um að versla back up aftarlega á miðjunni? Hvað með Sefan Bajcetic? er hann lengi frá eftir þessa aðgerð? Mjög spennandi ungur leikmaður sem gæti leist af þær stöður og komið inn í þetta einmitt aftar á miðjunni á þessu tímabili
Menn segja að Robertson vilji fara til Atletico