Gullkastið – Wirtz Vikan

Frá því að FSG keypti Liverpool hefur leikmannaglugginn aldrei farið eins spennandi af stað og núna. Það er búið að staðfesta kaup á Frimpong frá Leverkusen, eins er svo gott sem búið að staðfesta kaupin á besta vini hans og dýrasta leikmanni í sögu Liverpool, Florian Wirtz. Besta leikmanni þýsku deildarinnar undanfarin tvö tímabil. Ungverjinn Milos Kerkez hefur svo hamast við það sjálfur að staðfesta komu sína til Liverpool þó félagið hafi ekkert staðest með það ennþá.

Miðað við slúðrið er þetta bara byrjunin og einnig er orðað helminginn af hópnum í burtu. Það var því af nægu að taka í leikmannaslúðurs Gullkasti. Leikjalistinn fyrir næsta tímabil kom einnig út í gær þannig að næsta tímabil er í augsýn.

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

MP3: Þáttur 524

11 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Á hvaða flippi er John Henry þessa dagana ?
    Á eftir þeim Frimpong, Wirtz og líklegast Kerkez þá er mjög hávært slúður um Alexander Isak og jafnvel Anthony Gordon líka 🙂

    Ef það er eitthvað til í þessu, erum við þá að fara að losa okkur við Nunez, Jota, Diaz, Gakpo, Chiesa og Doak ?

    5
    • Já og Leverkusen virðast vera í viðræðum sambandi við Quansah og í kring um 40m punda.
      Ágætis upphæð sosem en þá þarf Liverpool að fá inn annan CB sérstaklega með óvissuna í kring um Konate eftir næsta tímabil.

      5
  2. Er búinn að fá tvö tilboð í leik sem er einn af síðustu heimaleikjum liðsins. 108 þúsund kr. er ódýrast og ekki einu sinni góð sæti. Er þetta bara eðlilegt?

    1
    • Já og nei held ég. Held að það sé almennt beðið með að setja lokaleikinn/lokaleikina í sölu strax og þá á einmitt svona verði. Miðað við síðasta lokaleik er verðið núna líklega mjög hátt. Eins fara held ég að þeir hér á landi sem eiga miða fari á lokaleikinn.
      Myndi kanna t.d Verdi hvort þeir bjóði ferð strax á eitthvað nær eðlilegu verði.

      3
  3. Quansah er kominn með munnlegt samkomulag við Leverkusen samkvæmt F.Romano og Ornstein.
    Talað um 40m evra með addons.
    Þá vantar CB og það er verið að slúðra um Guehi frá CP ég myndi ekki fussa við því.

    5
    • Guehi inn fyrir Quansah er mikil styrking.

      Spurning hvort VVD færi sig til hægri í vörninni.

      4
      • Já þetta væru góð kaup maður vonar að það verði af þessum orðrómum. Klárt mál að það vantar miðvörð inn ef Quansah fer.

        2
  4. Andy Robertson er líklega á förum til Spánar. Þetta hryggir mig mikið því Robbó er minn uppáhalds leikmaður. Eins og Scouser-ar almennt, þá er hann með stórt hjarta og góðan húmor sem brýst út þegar góð tækifæri gefast á vellinum. Underdog sem hefur orðið að risa á kantinum. Bastard, en hann er okkar bastard.

    Ég skil vel að metnaðarfullur maður í hans stöðu hugsi sér til hreyfings á þessum tímamótum, en mikið á ég eftir að sakna hans.

    13
  5. Quansah að verða dýrasti leikmaður í sögu fyrrum þýskalands meistarana, það hljómar sem góð sala fyrir leikmann sem Slot virðist ekki treysta.

    Napoli hafa svo boðið 37 miljónir í Darwin Nunez, talað um að Liverpool væru sáttir með 42+ add ons.

    2
  6. Sælir bræður og takk kærlega fyrir langþráðan þátt.

    Maður hefur einhvern veginn verið í eintómri Liverpool-vímu allt tímabilið og áfram inn í sumarið því ekki nóg með það að landa titli nr. 20 þá hafa stöðugar leikmannagluggafréttir haldið manni við efnið. Það sem mér finnst merkilegt við þetta núna er að allar af þessum stóru fréttum sem hafa komið upp í kringum Frimpong, Kerkez og Wirtz eru á rökum reistar – ekkert silly-season í gangi í kringum Liverpool – bara eintómar gleðifregnir og ekki sér fyrir endann á þeim.

    Við þurfum samt ekkert að fara í einhverja minnipoka-mennsku með að nú sé Liverpool loksins að keppa við stóru liðin o.s.frv. – statement-kaup er ekki eitthvað sem Liverpool þarf að fara út í til þess að ógna stóru liðunum í Evrópu. Við erum eitt af stóru liðunum í Evrópu – það er ástæðan fyrir því að menn á borð við Wirtz vilja koma til okkar. Statement-kaup voru t.d. þegar Stan Collymore kom til okkar – þar hentu menn pungnum á borðið ásamt tékkheftinu en voru ekkert að spá í að mögulega passaði Collymore ekkert inn í leikskipulagið hjá okkur eins og raunin varð. Leikmannakaup eiga að snúast um að ná árangri. Ef árangur næst með því að kaupa 23 ára Afghanda fyrir 2 hestakerrur og 12 geitur þá eru það kaupin sem við förum í – statement-ið á ekki að felast í verðmiðanum – sjáum bara hverju það hefur skilað fyrir Chelsea og ManYan.

    Ég held t.d. að með komu Wirtz séum við að sjá pressuna á Salah fara minnkandi því þegar varnarmenn þurfa að hafa bæði gætur á Wirtz fyrir utan teig og svo Salah á kantinum þá muni það skapa færi fyrir báða þarna frammi – þetta er sárlega það sem okkur hefur skort síðan Coutinhio fór frá okkur ég vona að við séum að fara að sjá almennilega keyrslu í sókninni hjá okkur… ekki myndi síðan skemma að þarna yrði bætt einhverjum sóknarmanni eins og allt stefnir í að verði.

    Miðað við flumbruganginn í leikmannakaupum hjá hinum liðunum þá hugsa ég að þetta muni áfram verða hörð keppni milli okkar og Man€ity á næsta tímabili. Þetta eru síðan réttmætar áhyggjur sem menn hafa af því að við séum með erfitt leikjaplan í vetur sökum þess að Afríkubikarinn er að setja strik í reikninginn hjá okkur sem og lúxusvandamál eins og riðlakeppni Meistaradeildarinnar – þið vitið, deildin sem ManYan er ekki með í, enn eitt árið 🙂

    Áfram að markinu – YNWA!

    8

Leave a Reply to PSwnwYQExvQU Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Liverpool byrjar á Anfield á föstudagskvöldi

Tími Breytinga