Kerkez kominn (Staðfest!)

Næsta verst geymda leyndarmálið hefur nú verið staðfest, þ.e. að Milos Kerkez sé orðinn leikmaður Liverpool. Við tökum því fagnandi að sjálfsögðu.

Rétt eins og með Wirtz þá verður treyjunúmerið hans kynnt síðar. Hvaða númer spáið þið að þeir félagar fái?

Ívar ætlar að henda í ítarlegri færslu um bakverðina nýju, bíðið spennt!

9 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Sælir félagar

    Þá er það staðfest sem er bíð að vera ljóst í uþb. mánuð að Milos Kerkez er kominn til Liverpool. Eins og Kjartan segir hér fyrir ofan “veizlan heldur áfram”. Velkominn Kerkes til Liverpool og á Anfield.

    Það er nú þannig

    YNWA

    4
  2. Frábært sæn.

    Þjóðasamsetningin er skemmtileg.

    Fyrstu 11:

    Þjóðverji
    Þrír hollendingar
    Tveir ungverjar
    Brassi
    Kólumbíumaður
    Argentínumaður
    Egypti
    Frakki

    Svo veit maður ekki með bekkinn hvernig hann þróast. Núna erum við með amk tvo enska á bekk, skota og N-íra.

    4
  3. Þá er þetta orðið einn besti gluggi sem ég man eftir. Ótrúlega létt að þessir þrír séu búnir að skrifa undir.

    Persónulega vil ég sjá Konate næst. Hann var mjög góður á síðasta tímabili undir stjórn Slot og það er ekki gott að gera of margar breytingar.

    Ef Nunez fer þá væri gaman að sjá Liverpool kaupa markaskorara.

    8
  4. Frábærar fréttir, er samt alveg hættur að skilja þessar reglur með lágmark Englendinga í hóp

    1
    • Ég held að þetta snúist ekki um fæðingarland, heldur að vera „uppalinn” hjá breskum klúbbi. Frimpong telst t.d. uppalinn og því einn af þessum sjö sem þurfa að vera í leikmannahópnum.

Leave a Reply to Jói #5 Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Kop ferðir næsta tímabils

Milos Kerkez og Jeremie Frimpong