Arne Slot gaf hópnum aðeins séns um helgina töluverðum timburmannaleik gegn Chelsea og frammistaðan var ekki til að hrópa húrra fyrir. Skipti ekki öllu enda Liverpool nú þegar búið að vinna titilinn og stemningin á pöllunum í takti við það.
Trent nýtti tækifærið til að staðfesta loksins brottför sína eftir tímabilið eftir að hafa forðast blaðamenn (og þannig stuðningsmenn Liverpool) mest allt þetta tímabil.
Næsti leikur og heiðursvörður er gegn Arsenal í deildinni en þeir eiga risaverkefni í Meistaradeildinni í millitíðinni.
Skoðum Ögurverk liðið og eitt og annað í þætti vikunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
MP3: Þáttur 520
Ef Trent vill fara áður en samningur hans líkur til RM (30 juní) þá má hann bara drulla sér í burtu strax.
LFC verður bara að standa í lappirnar og segja við Trentaran að annað hvort ertu úti samnings tímabilið, eða ferð núna og við sendum þér medalíuna í pósti.
takk fyrir allt. Punktur.
Ekki a eg von a að taa lati sja sig meira a Anfield, hvað þá i heiðursrutuni eftir timabilið. Hann veit vel hugarfar folksins i Liverpool, reyndar um allan heim, i sinn garð. Senda svo medaliuna i postkrofu.
Annars goður þattur.
YNWA
Það að Trent þurfi nýja áskorun er að einhverju leyti skiljanlegt. Hann er ekki sá fyrsti sem heldur að grasið sé grænna hinu megin þrátt fyrir að Liverpool sé ekki siðra lið en Real í dag.
Maður veltir fyrir sér hvað TAA var að hugsa þegar hann neitaði að gera 5 ára samning árið 2021 og samdi þess í stað til 4 ára?
Var bróðir hans þá þegar farinn að plotta umboðslaun sín, með því að koma Trent á frjálsa sölu á hátindi ferilsins?
Þegar leikmaður kemur á frjálsri sölu er algengt að leikmaðurinn og umboðsmaður hans fá sirka 20 falda upphæð við undirskrift. Þetta er væntanlega þannig að Trent fær 20, brósi 20 og í stað þess að borga 80-100 millur til Liverpool borgar Real 40 til bræðranna. Eftir sitja Liverpool með 0.
Við vitum hvernig Real vinna. Trent ákvað sig ekki í mars.
Það eru væntanlega 2 ár síðan Real fóru að vinna í þessum málum. Eftir að Bellingham fór til Real eignaðist hann sinn fyrsta vin í enska landsliðshópnum. Trent og Jude urðu óaðskiljanlegir.
Tímasetningin hentar Real fullkomlega vegna aldurs Carvajal.
Mín tilfinning er að í tvö ár hefur Trent dregið Liverpool á asnaeyrunum. Hverjar sýndarviðræðurnar á fætur annarri hafa farið fram, m.a. til að koma í veg fyrir að Liverpool myndi selja Trent sl. sumar.
Trent hefði geta gert eins og Ronaldo gerði þegar sá síðarnefndi fór til Real. Komið heiðarlega fram við klúbbinn og skilið við á faglegan hátt.
Samt eru margir alveg sáttir við þennan aðskilnað Liverpool og Trent. Tala um virðingu hans fyrir Liverpool og hann eigi mögulega eftir að koma aftur.
Trent kom fram við Liverpool á sama hátt og Mbappe kom fram við PSG.
Það kæmi mér ekki á óvar ef svipað plot sé komið í ferli varðandi Konate.
Fullkomlega sammála Indriði
Sælir bræður og takk fyrir þáttinn, sérstaklega fyrir greiningu á leikmannahópnum og hvað er í kortunum fyrir liðið í sumar. Hvað sem öllu líður þá verður miklu til tjaldað í sumar-glugganum. Sé samt ekki fyrir mér að við séum að ‘brjóta bankann’ í upphæðum, þó svo að mörg lið hafi verið að eyða miklu upp á síðkastið þá eru mörg lið sem hafa verið að lenda í stigafrádrátti vegna FFP-reglna – viljum ekki lenda í því rugli – fyrir mér eru 4 leikmenn inn og annað eins út góður gluggi.
Eins gaman og það er að sjá Chelsea standa heiðursvörð fyrir okkur, þá sérstaklega gemlurnar sem ákváðu frekar að fara til Chelsea frekar en Liverpool að þá væri virkilega gaman að sjá liðið sigra fyrsta leik eftir að titillinn er klár. Þetta er bara endurtekið efni frá 2020 þegar við gerðum það sama gegn Man€ity. Ég er virkilega svekktur með hvað það er allt á afturfótunum hjá Quansah eftir frábært tímabil í fyrra. Hann þarf eitthvað að skoða á sér kollinn og koma sjálfstraustinu í gang fyrir næsta tímabil.
Af því sögðu, þá er ég enn gapandi yfir því hversu aumkunarverð þessi umfjöllun ykkar er um TAA. Þið bara ákveðið að taka allt það versta sem slúðurdælan er búin að vera að dæla út í vetur og pinnið það á blessaðan manninn. Haldandi það að það sé hægt að fá 100 milljónir fyrir mann sem er á lokaári samnings er aldrei að gerast. Liverpool hefur aldrei viljað hafa release-klásúlur í sínum samningum þannig að endursemja bara til að fá topp-prís er ekki að gerast. Þið vitið þetta best sjálfir en kjósið að skauta algerlega framhjá þessu í þessari reiði ykkar.
Það að nafni minn segist ekki ætla að eyða meiri mínútum í að tala um TAA en heldur svo rausinu áfram í góðar 10 mínútur í viðbót, haldandi því fram að TAA sé ekki besti hægri bakvörður í sögu Liverpool sýnir manni bara það að TAA býr leigulaust í kollinum á ykkur þannig að það má að einhverju leyti óska honum til hamingju með það.
Staðreyndin er einfaldlega sú að það er Liverpool eins mikið að kenna að þetta fór svona því stjórnendateymi liðsins er búið að vera í skrúfunni í meira en ár eftir að Klopp ákváð að hætta og lítill fókus settur á að semja við leikmenn liðsins. Ef Liverpool ætlaðist til þess að fá topp-verð fyrir þessa leikmenn þá hefðu þeir átt að selja þá bara strax í fyrra… en það er bara ekki það sem Liverpool stendur í. Sagan sýnir að Liverpool fer frekar þá leið að keyra út samninga og fá sem mest út úr leikmanninum á vellinum fremur en að semja í einhverju rugli þannig að leikmaðurinn fái mest út úr því í bókhaldinu.
TAA vann allt galleríið fyrir okkur, besti hægri bakvörður í sögu liðsins. Hann ákvað hinsvegar að leita nýrra áskorana á nýjum vettvangi og ég fyrir mitt leyti þakka honum fyrir sitt framlag með óskum gott gengi í framtíðinni með þeirri von að hann snúi aftur í Liverpool-treyju áður en langt um líður.
Áfram að markinu – YNWA!
Er Trent besti bakvörðurinn í sögu félagsins?
Ég er nú ekki alveg viss um það, hann mjög góður sóknarlega enn ekki eins góður varnarlega
Ef við hefðum átt betri mann í þessari stöðu varnarlega hefði ég haldið að Trent hefði verið færður á miðjuna þar sem hann hefði jafnvel blómstrað enn meira sóknarlega?
Ég vona að Konate sé ekki að fara í sama pakkann og Trent?
Ég held að það sé best að vera ekki að velta okkur meira upp úr einhverjum leikmanni sem er að fara frá okkur. Nú er bara að fókusa á nýjan mann í þessa stöðu í sumarglugganum.
Það sást nokkuð hressilega í Chelsea leiknum að við þurfum meiri breidd.
Því miður virðist þetta ekki vera að ganga upp með Nunez og ég væri hissa á því ef hann er í framtíðar plönum Slot. kaupin Chiesa tel ég að hafi verið mistök.
Sem betur fer sluppum við nokkuð vel við meiðsli á okkar lykilmönnum í vetur sem ég tel að hafi verið stór partur af þessum deildar titli.
Guð hvað ég er sammála. Mér hreinlega bröskrar og finnst það vera fyrir neðan virðingu þessarar síðu hvernig talað er um manninng. Það lýsir ótrúlega takmörkuðu hugarfari og skorti á skilningi á því hvernig heimurinn hefur breyst.
Við munum einfaldlega nánast aldrei aftur sjá leikmenn spila allan ferilinn hjá sama félagi. Heimurinn hefur gjörbreyst og smækkað, og það er algjörlega skiljanlegt að leikmenn vilji upplifa nýja og öðruvísi hluti í blóma lífsins og á hátindi ferilsins. Við erum þar að auki að tala um leikmann sem hefur unnið alla mögulega titla með Liverpool.
Þó við höldum með Liverpool þá er þar að auki fáránlegt að ætlast til þess að leikmenn yfirgefi aldrei félagið nema það sé algjörlega á forsendum félagsins.
Ég vona innilega að þessum hörmungarpistlum og skoðunum fari að linna á síðunni.
Ekki veit hvað þu meinar Magnus, með þvi að vona að hann komi til baka aður en langt um liður. Hann virðist vera að gera 5 ara samning við RM, sem þiðir, að þeim tima loknum er hann 31 ars. Þu hefur goðan tima til þess að undirbua heimkomuna, eins og t.d. storan borða sem a stendur WELCOME TO ANFIELD. Klopp atti að hafa sagt við Coutiniho þegar hann vildi fara, vertu afram hja okkur, og þu munt verða goðsogn a Anfield, en þu veist þu munt verða bara einn af hinum hja Barcelona, allir vita hvernig það endaði, en LFC fekk þo 140m. punda fyrir hann.
YNWA
Sælir félagar
MVS heldur áfram ritskoðunartilburðum sínum og skammar mann og anna fyrir að hafa aðra skoðun en hann á brigslum taa. Ég vil í því sambandi benda á það sem Indriði fer yfir hér fyrir ofan. Það er að flestu leyti afar líkleg greining á atburðarásinni og heilindum téðs taa.
Það er nú þannig
YNWA
Þessu tengt:
https://x.com/i/status/1920059157668827442
😀
LOL Nico lad !
Já, og hey! Enginn fær alveg ámælislaust að skamma okkar menn í Kop.is-stúkunni!
Allt í góðu og enginn er auðvitað hafinn yfir gagnrýni, en svona án gríns þá þá hefur þessi þáttur verið rekinn að mestu eða öllu leyti í sjálfboðavinnu um mjög langt árabil. Í seinni tíð hafa fáeinar vörur verið auglýstar og vonandi kemur það þáttarstjórnendum að einhverju gagni því varla er launatékkinn að öðru leyti feitur við þessa iðju. Eftir sitjum við hlustendur með eitthvert metnaðarfyllsta Liverpool-hlaðvarp á byggðu bóli, drifið áfram af elju og ástríðu með vikulegum þáttum sem fyrir mína parta hafa orðið kærkominn förunautur á leið á beddann síðustu ár. Held að þáttastjórnendur séu ekkert viðkvæmir fyrir líflegri umræðu hér en finn mig þó tilknúinn að taka aðeins upp hanskann fyrir þá, að þeir eigi betra skilið en að samtal þeirra kallist aumkunnarvert raus þegar staðreyndin er sú að galsi og temmilegt alvöruleysi þáttarins hafa lengstum verið mesti styrkur hans sem skemmtiefnis fyrir okkur Liverpool aðdáendur. Allt í lagi að vera óssammála einhverri umfjöllun, mér finnst stjórnendur þáttarins bara eiga virðingu okkar skilið fyrir að gefa okkur þetta frítt.
Og það ER lélegt af Trent að fara frítt, sama þótt hann hafi verið magnaður í okkar búningi.
Það er ekkert sem réttlætir þetta TAA move.
Ný áskorun ? Að vinna laliga með Real madrid þá ?
Nema hann ætli sér í nærbuxna model bransan þá er þetta fínt start í það.
Held að Wenger hitti á þetta uppá 10.
Ég er nú ekki búinn að sjá þetta kveðjuvideo TAA og ætla mér ekki að gera það. Og efa að margir Poolarar nenni því.
TAA fékk að upplifa og gékk í gegnum það sem öllum dreymir um og var á góðri leið með að verða vel sigursæl goðsögn fyrir félagið sitt.
Liverpool sem er á mun sigursælara stað en liðið sem td Gerrard var í.
Það að þessi leikmaður sjái ekki á hvaða stað hann er á hjá félaginu ? Eða er honum mögulega sama?
Hann er og verður aldrei sannur Poolari.
Vonandi kemur hann aldrei til baka á Anfield nema þá sem mótherji!! Það er einmitt það sem hann er
Jæja, það verður engin dolla fyrir Legokallinn í ár…
Núna eru einhverjir miðlar að orða Kevin De Bruyne við Liverpool. Væruð þið til í að sjá hann á 2 ára samning hjá Liverpool ?
Hann yrði engin lykilmaður en hann er töframaður og gæti alveg gert gæfumun
De Bruyne til Liverpool hljómar bara vel. Alltaf fundist hann eiga að vera í Liverpool búning.
Margir spenntir fyrir honum í rauðu. En ég held að sé orðinn alveg lappalaus.
Held þetta hljóti að vera grín, hann er búinn kall greyið.
Var einn af þeim bestu, en það er liðin tíð.
YNWA
Það eina sem þarf að segja um brottför TAA er að margur verður af aurum api.
2 mörk og 1 stoðsendibg frá honum í seinustu 3-4 leikjum, get ekki sagt að hann sé búinn.
En væri hann til í að vera varamaður og þá á hvaða launum.
Ég væri alveg til í hans hæfileika frítt