Tilboði í Wirtz samþykkt (Staðfest)

Loksins er Liverpool að landa alvöru stórlax því núna í morgun eru fréttir þess efnis að 100m tilboði í Florian Wirtz hafi verið tekið sem geti hækkað í allt að 116m með bónusum. Bara þannig gæti hann orðið dýrari en t.d. Caisedo sem við misstum af til Chelsea í fyrra.

Þetta er fáránlega spennandi leikmaður sem hefur verið leikmaður tímabilsins undanfarin tvö ár í Þýskalandi og er ennþá bara 22 ára. Besti vinur hans er þegar búinn að semja við Liverpool þannig að hann verður vonandi fljótur að aðlagast enska boltanum.

Frábært að þetta sé að komast á hreint þó læknisskoðun sé eftir og væntanleg þegar hann snýr aftur úr fríi. Ekki að ég held að maður myndi nú aðeins hliðra til fríinu sínu fyrir svona…

30 Comments

Skildu eftir athugasemd
    • Ansi ólíkir knattspyrnumenn.

      Ef líkja ætti Wirtz við fyrrum LFC leikmann væri það Coutinho þó nærtækasti samanburðurinn væri auðvitað De Bruyne

      4
  1. Sælir félagar

    Þetta eru frábær tíðindi og svo stenst hann vonandi læknis skoðun og allt klárt. Þá er bara Kerkes eftir af þessum þremur sem byrjað var á og svo framherji (9) og “bakkup” fyrir Grav ásamt miðverði ef Quansa fer til BL. Maður er helsáttur þó ég hefði viljað fá Cherki líka. En maður fær nú ekki allt sem maður vill fá 🙂

    Það er nú þannig

    YNWA

    7
    • spurning hvort Szoboszlai muni ekki spila aftar á vellinum og rótera með Mac Allister og Gravenberch.

      Cherki hefur orð á sér fyrir slæmt “attitude” og maður heyrir að Lyon vilji losna við hann.

      4
    • Það er eitt sem við verðum að taka saman, því núna eru menn að spá í að kaupa Wirtz á þessa upphæð meðan Cherki kostar mun minn.

      Wirtz er mjög ofarlega í % tölum og slíku þegar kemur að pressu og sinna annari varnarvinnu. hann er ekki alveg eins duglegur og Sobo en mjög duglegur!

      En Cherki er mjög latur og takmarkaður í að sinna þessari vinnu á vellinum.
      er slappur í að pressa.
      en vissulega frábær í sókn og í að rekja bolta
      Cherki gæti þess vegna sem næsti Grealish hjá City mönnum en líka R.Mharez sem var flottur í sóknarleiknum hjá þeim.

      Þannig að ég er nokkuð viss um að Cherki sé plan B hjá City en Wirtz hafi verið á undan.
      þar sem við erum að fá mun heilsteyptari leikmann.

      Svo við ættum bara að gleyma þessum Cherki gæja! hann hefði aldrei slegið í gegn á Andield 🙂

      6
      • Cherki ku vera búinn að skrifa undir hjá City.

        Hefur vissulega hæfileika, en er meingallaður að öðru leyti.

        Sá verður fjótur að fara í fýlu fái hann svipaða meðferð og Grelish.

        3
  2. Þetta eru algjörlega geggjuð kaup, svo bara Kerkes og isak ? gleðilegan fössara ??

    5
  3. Hljómar afbragðsvel. Það stefnir i að Liverpool verði sterkir kandidatar í baráttunni um titla á næsta tímabili, jafnvel sterkari kandídatar en á því nýliðna, serstaklega ef við fáum þá sem eru líklegir til viðbótar.

    4
  4. Þetta eru sannarlega góðar fréttir.

    Ég ætla að stinga uppá því við síðuhaldara að …(staðfest) sé einungis notað þegar klúbburinn hefur staðfest undirskrifaðan samning og myndir eru komnar af leikmanni. Allt í lagi að segja …(99% prósent) — en fréttin er ekki staðfest. Hún er bara fengin frá almennt áreiðanlegri heimild, en ekki frá frumheimild.

    -YNWA

    6
  5. menn eitthvað að tala um að versla back up aftarlega á miðjunni? Hvað með Sefan Bajcetic? er hann lengi frá eftir þessa aðgerð? Mjög spennandi ungur leikmaður sem gæti leist af þær stöður og komið inn í þetta einmitt aftar á miðjunni á þessu tímabili

    2
    • Það hefði nú þurft að segja mér það tvisvar í fyrra að báðir bakverðirnir okkar myndu leika í Madrid næsta haust… trúi þessu samt ekki með Robbo.

      1
      • Ég trúi alveg að Robbo fari til Madrídar en á bágt með að trúa að Trent fari þangað.

        1
    • Andy Robertson er og hefur verið einn minn uppáhalds leikmaður síðari ára og er úr mörgum að velja. Hann hefur gefið allt í þetta. En hans bestu ár eru klárlega búin. Væri samt leiðinlegt að sjá hann kveðja núna.

      Atlético Madrid væri samt gott move fyrir hann.

      8
  6. Andy Robertson og Darwin Núñez til Atletico Madrid og á móti fær Liverpool Julian Alvarez?
    Annars er markmaðurinn Vitezslav Jaros að fara á lán til Ajax. Vonandi fær hann að spila fullt af leikjum þar og þannig öðlast dýrmæta reynslu sem mögulega á eftir að nýtast Liverpool síðar.

    2
  7. Spurning hvort liðið fari í tígulmiðju eftir þessi kaup?

    Tækifæri Jones mun minnka eftir þessi kaup,myndi ég halda,meira squad player.

    En virkilega áhugaverð kaup og Kerkez inn og liðið er mun meira hraðfljótandi fram á við.

    1
  8. Vissulega svona gamla karls raus, en ég vona að Robbo fari ekki heldur skrifi undir stuttan samning. Það er mikilvægt að halda í ákveðna staðla og hafa menn í klefanum sem tryggja að nýir menn taki upp gamla siði sem hafa virkað vel. Þegar liðið yngist og breytist hratt er það alveg jafn mikilvægt og hvaða leikkerfi er spilað. Við sjáum það í EPL að jafnvel minnsti skortur á einbeitingu eða vinnuframlagi í leikjum getur leitt til taps.

    – YNWA

    9
    • Sammála, en á móti þá hefur Liverpool staðið sig vel í að endurnýja, Szoboszlai og McAllister góð dæmi um sigurvegara. Endo líka, var fyrirliði í Stuttgart og algjör fagmaður. Það þarf ekkert að efast Kerkez og Wirtz ef þeir koma, báðir leikmenn sem kæmu til að vinna.

      Vona svo innilega þessi tvö kaup gangi í gegn. Elska að horfa á Kerkez spila og bara tilhugsunin um að bæta Wirtz í þennan hóp.

      Af þeim sem er verið að orðað við brottför sæi ég sennilega mest á eftir Diaz. Markið sem hann skoraði á móti Argentínu um daginn er með þeim betri.

      Áfram Liverpool og áfram Slot.

      6
    • Slot leggur mikið upp úr því að leikmenn sætti sig við sitt hlutskipti í hópnum.

      Staðan er bara þannig að verið er að kaupa vinstri bakvörð sem verður á undan Robertson í goggunarröðinni.

      Visulega vonast maður til þess að Robbo sé tilbúinn í samkeppnina um stöðuna en hann gerir sér væntanlega grein fyrir því að allar líkur eru á að hann verði backup/rotation leikmaður.

      Það eru nokkrir áreiðanlegir pennar sem vilja meina að Robertson vilji frekar fara til Atletico en vera nr. 2 hjá Liverpool.

      Robbo er líka með umboðsmanninn Tyler Alexander Arnold sem er væntanlega að agitera fyrir þessum $kiptum.

      2

Leave a Reply to Hafliðason Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Wirtz er Í ALVÖRUNNI að koma!