Nat Phillips til WBA (Staðfest)

Þá er hinn eitilharði Nat Phillips genginn til liðs við WBA eftir að hafa átt stuttan (8 ár eða svo) feril með Liverpool, þar af allnokkrum sinnum á láni hjá öðrum félögum. En í þau skipti sem hann var hjá Liverpool gaf hann allt í leikinn, og yfirgefur klúbbinn sem “legend”. Tímabilið 2020-2021 mun að eilífu verða greypt í minni okkar, þar sem hann átti þátt í því að meiðslahrjáðasta lið Liverpool síðustu áratuga náði 3ja sæti.

Hver er ykkar helsta minning af Nat Phillips? Hendið því endilega í athugasemdirnar hér fyrir neðan.

Þessi sala þýðir einhverjar 3 millur í kassann, og líkur á að veskið hjá Edwards og Hughes eigi eftir að fitna enn meira því Jarell Quansah er líklega að fara til Bayer á einhverjar 30 millur plús 5 í klásúlur. Téð veski mun nú reyndar þynnast talsvert á móti þegar Milos Kerkez verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins, væntanlega á morgun ef trúa má slúðrinu.

Annars er orðið laust, svo ef þið hafið heyrt eitthvað áhugavert slúður er um að gera að deila því.

10 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Hvað ætti Slot að gera varðandi Konate, nokkuð ljóst að hann ætlar sér frítt til real á næsta ári. Sagt að hann hafi neitað nýjum samning.
    Ég vona að við fáum þennan Guehi frá Palace og Konate sitji á bekknum allt tímabilið ef hann ætlar sér ekki að skrifa undir, eða bara bjóða real að fá hann ódýrt núna í sumar, betra en að missa hann frítt.

    Konate og Trent skyggja aðeins á þennan glugga en ef þeir vilja spila fyrir real þá bara verði þeim að góðu, vil bara ekki missa þá báða frítt.

    4
  2. Þar sem orðið er laust þá væri gaman að sjá færslu til að gefa fólki meðmæli til að gera í Liverpool þá daga sem eru ekki leikir.

  3. Konate er lítill kall. Var nú ansi óstöðugur i byrjun og meiddist eitthvað. Held að það sé ágætt að kveðja hann og fá smá monní,ekki veitir af. Hughes og þeir talnanördarnir eru örugglega með lista með nöfnum sem okkur aðdáendum hefur ekki dottið í hug. Engin er stærri en LFC.

    2
  4. Ætla aðeins að geyma það að dæma Konate strax, þótt ég sé en með óbragð yfir TAA.

    Það eru nokkrir púnktar sem láta mig fá þá hugmynd að leyfa honum að njóta vafans í bili.

    Hann hefur verið óstöðugur sínum leik útaf meiðslum.
    Það sem ég les út úr þessum fréttum er að hann vilji fá samning eins og lykilmaður á meðan Liverpool er að bjóða honum samning með áherslu á frammistöðubónusa en ekki föst há grunnlaun.
    Og það er það sem triggeraði hann í þessu öllu. Konate hefur líka talið sig hafa verið mjög þolinmóðan meðan Dijk og Salah dílarnir voru kláraðir og hans mál þá ekki sett í asap hjá félaginu.

    Þannig ef ég skil þetta rétt, þá er aðalmálið hlutverk hans sem leikmann í lðinu.
    Hann er 26 og 27 ára á næsta ári (Tímabili)
    Svo fyrir honum er næsti samningur lykil samningur og mögulega sá stærsti sem hann á völ á að fá á sínum ferli.
    þannig nú er staðan bara sú hvort Liverpool horfi á hann sem slíkan leikmann,

    6
    • Mér finnst liklegast að Konate fái ekki teljanlwga betri samning en þann sem er á borðinu. Regluleg meiðsli og regluleg varnarmistök gera það að verkum að við ættum að geta fengið annan í staðinn sem reynist okkur betur. Konate er flottur leikmaður en ekki úr efstu hillu að mínu mati. Eg reikna með að hann verði eitt ár í viðbót, nema ef gott verð fáist fyrir hann. Auðvitað á að spila honum þótt hann neiti að skrifa undir samning. Í samanburði við uppalinn Trent sem virtist vilja ekkert heitar en að verða goðsögn og fyrirliði Liverpool, þá skil ég vel gremju sumra stuðningsmanna gagnvart Trent en ekki gagnvart Konate.

      3
      • Akkúrat. Þarna virðast FSG vera samála þér. og þess finnst mér þetta Konate mál blasa öðruvísi við mér eins og ég skil þetta en TAA. ánn þess að ég hafi grafið hvað Liverpool bauð honum nkl vs Real.

        Ef ég tek allt óstaðfest en þær tölur sem hægt er að grafa upp á netinu og örugglega hægt að plúsa og mínusa við eitthvað að þessu.

        það er talið að Konate sé með um 70k núna og talað er um að hans vilji sé að fara upp í 200k eða 175-180% hækkun

        tek nokkra miðverði sem ég sá í fljótu bragði
        Saliba 190k
        De ligt – 190k
        maquire 190k
        Stones – 250k

        tek það aftur fram að ég hef ekki séð neina launaseðla.
        þetta er það sem svokallaðir sérfræðingar í fréttum eru að setja inn.
        gæti fundið aðrar tölur plús/mínus eitthvað.
        en við erum allavega með grunn til að vinna með þarna.
        og er þetta örugglega eitthvað í áttina.

        Og ég geri ráð fyrir að þetta sé allt tölur ánn bónusa.
        Og allt síðustu samningar sem þeir gera nú þekki ég ekki ártölin á þeim.

        þannig að þetta flækir samningstöðu Liverpool, þegar klúbbar sem hafa verið í rugl með rekstur er að bjóða mönnum 190k De ligt sem fyrsta samning.
        það sjá það allir langavegu að hann er ekki þess virði.

        Og hefur þetta verið aðalsmerki Liverpool hvað þeir hafa haldið vel utan um samnings mál.
        en svo koma leikmenn thiaga minnir mig að hafa haft góð laun. og Wirtz er keypt inn sem stórstjarna og framveigis.
        þetta býr til að aðrir vilji nú fá eitthvað fyrir sinn snúð.
        og Liverpool mögulega metur það þannig að þeir geti fengið sambærilegan varnarmann á mun lægri launum fyrsti samningur inn fyrir Konate.
        því hann verður mjög launahár ef þessar tölur temma.
        En sjáum hvernig þetta endar allt.
        en svo ég endi þetta mér sýnist ekki að hann sé löngu ákveðin í að fara eins og TAA var

Leave a Reply to Jóhannes Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Florian Wirtz