Byrjunarliðið tilbúið: Jota byrjar, Gakpo á bekknum

Þá er Slot búin að ákveða hverjir eru í byrjunarliðinu í stærsta leik tímabilsins á Anfield (hingað til). Ljóst að okkar menn þurfa að spila mun betur en í síðasta leik liðanna til að ná í góð úrslit, vonandi að þeir komi inn jafn trylltir og stuðningsmennirnir á pöllunum verða.

 

Image

 

Gestirnir eru ekki svo góðir að pósta flottum myndum af byrjunarliðinu á samfélagsmiðlum, en þeir munu vera með eftirfarandi leikmenn inná:

Paris Saint-Germain (4-3-3): Donnarumma; Hakimi, Marquinhos, Pacho, Mendes; Neves, Vitinha, Ruiz; Kvaratskhelia, Dembélé, Barcola

Subs: Safonov, Tenas, Kimpembe, Ramos, Doué, Lee, Hernández, Mayulu, Zaïre-Emery, Beralso, Mbaye

Anfield skelfur af spenningi ásamt öllum tengdum Liverpool, KOMA SVO STRÁKAR!!!

 

 

64 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Við erum mun öflugri það sem af er leiknum. Eigum inni Júró Gakpo og markheppinn Eliott.

    Taugaveiklun í vörn parísar.

    5
  2. Stórkostlegur leikur og frábær frammistaða hjá okkar mönnum. Að sjálfsögðu eru færi á báða bóga þegar tvö frábær lið eiga góðan leik. En hvað þetta er mikið skemmtilegra en þegar annað liðið pakkar í vörn.

    10
  3. Salah verður að skipta um kant, mendes er með hann í vasanum, og jota er eins og krakki á móti mönnum þarna frammi. Inn með NUNEZ OG GAKPO !

    2
  4. Margt afbragðs gott við þennan leik. Allt annað að sjá til Salah.

    Er sannfærður um að við eigum eftir að skora í seinni. Það mætti setja Eliott inn fyrir Szobo og Nunez fyrir Jota. Svo kemur samúræinn þegar við erum komin með yfirhöndina.

    3
    • Sammála held að Jota sé í smá lægð og mætti setja Nunez inná og bekkja Jota í nokkra leiki.

      1
  5. Framlínan hjá PSG er svakalega hröð. Þeir eru eins og veðhlaupahestar. Okkar framlína hefur ekki þennan griðarlega hraða en vonandi ná miðjumennirnir að,skila goðum sendingum á þá í seinni hálfleik.

    2
  6. Rosalega er ég ánægður með Hödda Magg. Fyrir mér, þá kryddar hann upplifunina á leiknum líkt og kommentin á kop.is

    5
  7. Hættiði þessari endalausu neikvæðni (sumir). Þetta er frábær leikur og aldrei, aldrei, vildi ég skipta á liðum, frekar en börnum mínum. Við erum og verðum Liverpool, hvernig sem allt fer, það fer vel.

    14
  8. úff. Núnez. Herra krummafótur og herra rangstaða ….

    En samt … alltaf fjör

    3
  9. Ég verð að segja og skrifa að ég hef tröllatrú á því að þetta lið okkar sé að fara að landa þessu.

    1
  10. Erum búnir að vera frábærir í kvöld, núna er bara að klára þetta strákar koma svo!

    1
  11. Ég er stoltur af liðinu og mér finnst þessi leikur hafa verið frábær skemmtun. Vonandi gerist eitthvað gott í framlengingu því ég hef illan bifur á vító … en áfram Liverpool. YNWA!

    4
  12. Eigum við ekki að skipta um markmann rétt fyrir lokinn og Kelliher til að taka vítaspyrnukeppnina.

    1
  13. Magnaður leikur Frábær færi á báða bóga. Geggjuð lið.

    Fer sigurliðið alla leið í úrslit? Gæti alveg trúað því.

    7
  14. Skiptingarnar jafn vonlausar og þær voru góðar síðast.

    Júró-Gakpo hvergi sjáanlegur
    Kurteisi Jónas – hægur og missandi boltann
    Eliott – sá ekki til hans
    Nunez…. æææ

    Og við erum fyrir framan últras. Glatað.

    3
  15. Þessi vika gæti verið skita. Missa tvo í meiðsli fyri úrslitaleikinn. Það er þó ljóst að það verður að skora í þeim færum sem við fáum og það gegn þetta góðu liði.

    2
  16. Nunez og Jones með einhver lausustu vítaspyrnur sem ég hef séð . En flottur og skemmtilegur leikur svo það sé nú sagt.

    3
  17. Sumir eru fæddir winnerar en aðrir fæddir skúrkar … það vita allir hvaða leikmenn hér er átt við … úff innkoman í leikinn og síðan í vító …
    Stærstu mistök Slot hingað til sem stjóri að stöðva hann ekki frá því að taka víti !

    2

Leave a Reply to Sinni Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Gullkastið – PSG og Anfield South

Liverpool 0 – 1 PSG, PSG áfram eftir vító. (Leikskýrsla)